Stígandi - 01.10.1947, Blaðsíða 89
dularfullu orðum mínum. Ég hljóp frá einum til annars og æpti
setningar þær, sem hvíslað var að mér, og allir engdust sundur
og saman af hlátri.
Látið þið nú drenginn eiga sig, sagði einhver.
Þetta gerir honum ekkert til, sagði annar.
Þetta er skammarlegt, sagði ein af stúlkunum flissandi.
Hypjaðu þig heim, æpti einhver í salnum.
Snemrna kvölds létu þeir mig fara. Ég skögraði þéttkenndur
eftir gangstéttinni og endurtók kráarmunnsöfnuðinn, öllu kven-
fólki, sem ég mætti, til skelfingar, en karlmönnum til skemmt-
unar.
t
Það varð ástríða á mér að sníkja mér áfengi í kránni. Mörg
voru þau kvöldin, sem móðir mín hirti mig af götunni, þar sem
ég ráfaði um dauðadrukkinn, fór með mig heim og hýddi mig.
En hún var ekki fyrr farin til vinnu sinnar á morgnana, en ég
hljóp til kráarinnar og hímdi þar og beið þess, að einhver kall-
aði á mig inn fyrir dyrnar og gæfi mér að súpa á. Móðir mín
klagaði mig grátandi fyrir kráareigandanum, sem skipaði mér að
snáfast burtu. En ýmsir kráargestanna vildu ógjarnan missa af
skemmtun sinni, svo að þeir gáfu mér vín utan við krána og
espuðu mig upp til að endurtaka klámglósur sínar.
Sex ára var ég orðinn drykkjumaður. Og ég var ekki farinn að
ganga í skóla. í fylgd með öðrum .smástrákum flæktist ég um
göturnar og sníkti peninga hjá vegfarendum, hékk úti fyrir
kránni og varð meir og meir framandi heimili mínu. Ég sá fleira
en ég gat munað. Það var mín æsta sæla að fá vínsopa. Móðir mín
var örvæntingin sjálf. Hún hýddi mig. Síðan bað hún til guðs
og grét sáran yfir mér og sárbændi mig um að vera góður og
sagði eins og satt var, að hún væri neydd til að vinna utan heim-
ilisins. En ég lét þetta allt sem vind um eyrun þjóta. Loks fékk
hún gamla Svertingjakonu til að gæta okkar bræðranna og varna
því, að ég fæktist á kránni og sníkti vín. Og að lokum fjaraði vín-
þorstinn úr æðum mér og ég gleymdi því, hvernig áfengi var á
bragðið.
I götunni, sem við bjuggum við, var margt skólabarna, sem
oft gleymdu sér í leik á heimleiðinni úr skólanum. Þau létu bæk-
urnar sínar liggja á gangstéttinni, og ég blaðaði í þeim og spurði
börnin, hvað hin furðulegu prentuðu teikn þýddu. Er ég hafði
lært að þekkja nokkur orð, sagði ég móður minni, að mig lang-
aði að læra að lesa, og hún hvatti mig til þess. Brátt varð ég fær
STÍGANDI 3 1 1