Fréttablaðið - 28.02.2013, Side 2

Fréttablaðið - 28.02.2013, Side 2
28. febrúar 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 2 PÁFAGARÐUR Benedikt XVI. páfi flutti sitt síðasta ávarp í gær á Péturs torginu í Róm. Um 150 þús- und manns mættu til að hlýða á. Benedikt hættir í dag sem páfi en fær þó að halda áfram páfa titlinum. Nýr páfi verður kosinn á næstu dögum eða vikum, og þá kemur upp staða sem kaþólskir trúmenn hafa ekki átt að venjast: Tveir menn verða á lífi samtímis með páfa- titilinn. Þetta veldur nokkrum áhyggjum innan kaþólsku kirkjunnar og óttast sumir að helgi embættisins muni bíða hnekki af. „Það geta ekki verið tveir páfar í Vatíkaninu, jafnvel þótt annar þeirra sé formlega fyrrverandi páfi,“ er haft eftir háttsettum en ónefndum embættismanni innan kaþólsku kirkjunnar í ítalska dag- blaðinu Corriere della Sierra. Hann segir þetta vera bæði stór- slys og djúpt sár á kaþólsku kirkj- unni. Fleiri úr æðstu röðum kirkj- unnar manna eru sagðir óttast að afsögn Benedikts verði komandi páfum fordæmi, og það grafi undan mikilvægi embættisins. - gb Benedikt XVI. hættir sem páfi í dag en heldur áfram titlinum: Tveggja páfa kirkja í vanda BENEDIKT XVI. Á annað hundrað þús- und manns mætti þegar hann flutti sitt síðasta ávarp í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP EVRÓPUMÁL Sjávarútvegsráðherrar Evrópu- sambandsins (ESB) hafa náð samkomulagi um að brottkast á fiski verði aflagt í áföngum á tímabilinu frá janúar 2014 til ársins 2019. Samþykkt Evrópu- þingsins þarf til að samkomulagið hljóti gildi en fréttaskýrendur telja það aðeins formsatriði. Bannið tekur á næsta ári til uppsjávarfisks, eins og kolmunna og síldar. Brottkast á bolfiski kemur til síðar á fimm ára aðlögunartíma. Samkomulagið er túlkað sem risaskref í rétta átt til að laga sameiginlega sjávarútvegsstefnu sam- bandsins. Það er afstaða norðlægra landa innan ESB, sem hafa keyrt málið áfram í andstöðu við Spán, Portúgal og Frakkland, sem hafa spyrnt við fótum um árabil. Fyrrnefndar þjóðir náðu fram undanþágum, til dæmis heimildum til brottkasts á úthafsveiðum, en menn hafa efasemdir um að undan þágur verði hluti af lokagerð samningsins. Afstaða háttsettra embættismanna er höfð til vitnis um það en María Damanaki, sjávarútvegs- stjóri ESB, hefur lýst því yfir að ótækt sé að kasta fiski. Richard Lochhead, sjávarútvegsráðherra Skotlands, segir í fréttatilkynningu þarlendra stjórnvalda að samkomulagið marki endi á „30 ára hneyksli“, og að samkomulagið sé raunhæft; milljónum tonna verði ekki lengur hent frá borði. Almennt er talið að fjórðungi veidds afla innan lög- sögu ESB sé kastað aftur í sjóinn. - shá Sjávarútvegsráðherrar ESB ná sögulegu samkomulagi í áralöngu deilumáli: Brottkast aflagt á næstu árum Á VEIÐUM Allt að fjórðungi alls afla skipa ESB er kastað aftur frá borði. Um milljónir tonna er að ræða á síðustu árum. SPURNING DAGSINS FA S TU S _H _0 9. 02 .1 3 Síðumúli 16 | 108 Reykjavík | Sími 580 3900 | www.fastus.is Verslun opin mán - fös 8.30 - 17.00 Glös fyrir stór og smá tilefni Hjá Fastus fæst mikið úrval af glösum fyrir stóra og litla veitingastaði. Komið í verslun okkar að Síðumúla 16 og látið fagmenn hjálpa ykkur við að velja réttu glösin. Ingvar, ertu ekki bara lukku- legur með nýja húsnæðið? „Jú, ég er heppnasti gæinn í bænum.“ Ingvar Geirsson er eigandi plötubúðarinnar Lucky Records. Búðin flytur á næstu dögum frá Hverfisgötu 82 yfir í stærra húsnæði við Rauðarárstíg 6. PORTÚGAL, AP Yfirvöld í Portúgal gerðu 79 tonn af nautaafurðum upptæk á þriðjudaginn eftir að í þeim fannst hrossakjöt. Fimm matvælafyrirtæki voru kærð í kjölfarið. Samkvæmt Matvælastofnun Portúgals hafa tæplega 19 þúsund eintök af forpökkuðum matvælum verið fjarlægð úr stórverslunum, þar á meðal pakkar sem innihalda lasanja, hamborgara, og kjötbollur. Víða í Evrópu hefur hrossakjöt fundist bæði í forpökkuðum rétt- um og á veitingastöðum, í skólum, og á sjúkrahúsum. -hj Meira hrossakjöt í matvöru: Nautakjöt tekið úr umferð ÍRLAND, AP Samkeppniseftirlit Evrópusambandsins hefur komið í veg fyrir kaup írska flugfélagsins Ryanair á flugfélaginu Aer Lingus. Talsmenn ESB óttuðust að sam- eining flugfélaganna myndi skaða neytendur þar sem Aer Lingus er helsti samkeppnisaðili Ryanair í Írlandi. Þeir töldu að ef af sam- einingunni yrði leiddi hún að öllum líkindum til hærra miðaverðs. Stjórnendur Ryanair eru ósáttir við ákvörðunina og ætla að áfrýja henni. - möþ ESB bannar kaup Ryanair: Myndi skaða neytendur DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja- víkur hefur dæmt íslenska ríkið til að greiða 34 ára þýskri konu 1,8 milljónir í bætur fyrir það þegar hún var látin sitja í gæsluvarð- haldi í 117 daga frá sumrinu 2010. Konan kom til landsins með Norrænu 17. júní 2010, í bíl sem í fundust tuttugu lítrar af amfetamínbasa. Með konunni í för var sex ára sonur hennar og önnur þýsk kona sem síðan var dæmd í átta ára fangelsi fyrir smyglið. Hin konan var hins vegar sýknuð og ekki talin hafa vitað af fíkniefnunum. - sh Fær 1,8 milljónir í bætur: Saklaus í haldi þriðjung úr ári IÐNAÐUR Gullið sem fannst í æðum í Þormóðsdal nýlega er talið hreinna en gengur og gerist í heiminum. Fyrirtækið Málmís hefur borað á svæðinu í nokkurn tíma í von um að finna gull, sem varð síðan raunin þegar mældust allt upp í 400 grömm af málminum á hvert tonn af grýti. Það er mesta magn sem hefur fundist af gulli hér á landi, en erlendis er unnið gull úr grýti þegar mælist ein- ungis fjögur grömm á tonnið, að sögn Þorsteins Inga Sigfússonar, forstjóra Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands. „Það háttar svo með þetta íslenska gull að jarðhita vatnið hefur skilað því út án þessara snefilefna eins og alls staðar ann- ars staðar. Það er því hreinna og gæti þetta því orðið umhverfis- vænna verkefni hér heldur en víða erlendis,“ segir Þorsteinn. Nýsköpunarmiðstöð hefur verið að endurmeta og líkanareikna gögn frá borkjörnum í eigu fyrir- tækisins úr Þormóðsdal ásamt ónefndu bresku fyrirtæki sem sér- hæfir sig í góðmálmum. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem gull finnst í jörðu á Íslandi, en stóru fregnirnar eru þær að magn- ið er svo mikið að það er hægt að vinna málminn úr grjótinu. „Það er mjög vinnanlegt, flest sýnin eru ótrúlega lofandi. En við þurfum að vera viss um að jarðhitakerfið í Þormóðsdal nái að skila nógu miklu í heild áður en farið verður í svoleiðis fram- kvæmdir,“ segir Þorsteinn. Gullvinnsla hefur löngum verið gagnrýnd af umhverfisverndar- sinnum í heiminum þar sem mikið magn kvikasilfurs er notað til að skilja málminn úr grjótinu. Því er svo skolað út í umhverfið, en þó er misjafnt eftir löndum hvernig vinnslan fer fram. Þorsteinn segist vonast til að hægt verði að vinna úr gullinu úr Þormóðsdal hér, einkum vegna hreinleika þess sem þýði minna rask fyrir umhverfið. „Þegar hægt verður að sýna fram á að þetta verði umhverfis- lega vænlegt vona ég að svo verði. Það er möguleiki að vinna þetta hér,“ segir hann. „En ég þori ekki að segja neitt meira. Kannski verð- ur þetta flutt til útlanda, til Bret- lands eða Grænlands. Það er gull unnið inni í fjalli.“ Ekki náðist í Svandísi Svavars- dóttur umhverfisráðherra í gær- kvöld vegna málsins. sunna@frettabladid.is Vilja vinna gullið úr Þormóðsdal á Íslandi Gull fannst í borholu í Þormóðsdal í vikunni. Málmurinn mælist um 400 grömm í hverju tonni af grýti og er það með því meira sem gerist. Forstjóri Nýsköpunar- miðstöðvar segir íslenska gullið hreinna en gengur og gerist. GULLSTANGIR Þau 400 grömm af gulli sem mældust í grjótinu eru vel vinnan- leg, að sögn Þorsteins. VIÐ HAFRAVATN Boranir eftir gulli í Þormóðsdal eru ekki nýjar af nálinni en þetta er þó í fyrsta sinn sem svo mikið magn af málminum góða finnst á svæðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM STJÓRNSÝSLA Annie Machon, framkvæmdastjóri Samtaka löggæslu- stétta gegn bannhyggju, fundaði í gær með starfshópi á vegum menntamálaráðuneytisins. Hópurinn vinnur að framgangi þingsálykt- unartillögu sem miðar að því að Ísland skapi sér afgerandi lagalega sérstöðu um vernd tjáningar- og upplýsingafrelsis. Machon var á tíunda áratugnum njósnari hjá bresku leyniþjónust- unni (MI5) en hætti þar árið 1996 til þess að fletta ofan af glæpum sem hún taldi MI5 hafa framið. Á fundinum ræddi Machon meðal annars um uppljóstrara og vernd þeirra. - mþl Stýrihópur vinnur að tillögum til verndar tjáningarfrelsi: Funduðu með MI5-njósnara MENNTAMÁLARÁÐUNEYTINU Í GÆR Annie Machon, fyrir miðju, ásamt Smára McCarthy og Elfu Ýr Gylfadóttur, fulltrúum í stýrihópnum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.