Fréttablaðið - 28.02.2013, Page 4

Fréttablaðið - 28.02.2013, Page 4
28. febrúar 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 4 SVISS, AP Rúmlega fertugur starfs- maður timburverksmiðju í Sviss dró upp skammbyssu og hóf skothríð á fólk á vinnustað sínum í gærmorg- un. Tveir lágu í valnum eftir hildar- leikinn. Sjö særðust, þar af sex alvarlega, og sjálfur lét byssumað- urinn lífið. Maðurinn lét til skarar skríða um leið og hann mætti á vinnustað sinn í smábænum Menznau rétt upp úr klukkan níu. Framkvæmdastjóri verksmiðjunnar segir hann hafa starfað þar í meira en tíu ár. Hann hafi verið fámæltur en aldrei verið til vandræða fyrr. Skotvopnaeign er mjög útbreidd í Sviss. Alls eru 2,3 milljónir skot- vopna í eigu landsmanna, sem eru alls um átta milljónir. Glæpir tengdir skotvopnum eru á hinn bóginn frekar fátíðir. Árið 2009 létu 24 manns lífið af völdum skotsára, sem þýðir að hlutfallið er 0,3 af hverjum 100 þúsund íbúum landsins. Í Bandaríkjunum er þetta hlutfall ellefu sinnum hærra. - gb Starfsmaður timburverksmiðju í Sviss skaut á fólk á vinnustað sínum í timburverksmiðju: Myrti tvo samstarfsfélaga og særði sjö aðra NEYTENDAMÁL Rannsókn Mat- vælastofnunar á íslenskum kjöt- vörum leiddi í ljós að ekkert kjöt var í kjötböku fyrirtækisins Gæða- kokka í Borgarnesi. Framkvæmda- stjóri rengir niðurstöðuna en við- urkennir handvömm við merkingar á lambakjötsbollum fyrirtækisins sem innihalda ekkert nautakjöt, eins og segir í merkingum vör- unnar. Hann óttast að orðspor fyr- irtækisins hafi beðið alvarlegan skaða – að hluta til að ósekju. Matvælastofnun lét ný verið rannsaka kjötinnihald sextán íslenskra matvara á markaði til að kanna hvort þær innihéldu hrossa- kjöt án þess að þess væri getið á umbúðum, en rannsóknin var við- bragð stofnunarinnar við hrossa- kjötshneykslinu í Evrópu. Niður- stöður rannsóknarinnar sýndu að hrossakjöti hafði ekki verið bland- að í vörurnar. Hins vegar reynd- ust tvær vörur frá Gæðakokkum í Borgarnesi ekki innihalda nauta- kjöt þrátt fyrir merkingar þar um. Nautabaka sem sögð er innihalda 30% nautahakk í fyllingu inni- hélt ekkert dýraprótein. Lamba- hakkbollur, sem eru framleidd- ar af sama aðila fyrir verslunina Kost og sagðar innihalda lamba- og nautakjöt, innihéldu eingöngu lambakjöt. Magnús Níelsson, framkvæmda- stjóri og eigandi Gæðakokka, seg- ist enga skýringu hafa á niður stöðu Matvælastofnunar. Að sjálfsögðu sé nautahakk í kjöt bökunni. „Ég er ekki að segja að þetta sé stút- fullt af hakki, en við notum soja- hakk til að drýgja auk þess sem nautakraftur er í vörunni sem krydd. Ég veit hvernig uppskrift- irnar eru og þessi niðurstaða er því með ólíkindum,“ segir Magnús, sem vill frekari rannsókn. Hvað varðar lambahakkbollurnar segir Magnús að rétt sé að í því sé ekki nautahakk, eins og áður var, og handvömm að hafa ekki breytt merkingunum strax. Spurður um orðspor fyrirtækis- ins og framtíð þess segist Magnús vera óttasleginn. „Auðvitað kemur þetta illa við mann, ef um föls- un á innihaldslýsingum væri að ræða. En ég ítreka, hvað varðar bökurnar, að við sleppum ekki að setja í þær kjöt.“ Kjartan Hreinsson, sérgreina- dýralæknir hjá Matvæla stofnun, segir rannsóknina skothelda. „Þetta var unnið af Matís, okkar bestu rannsóknastofnun, sem notar viðurkenndar aðferðir á heimsvísu. Nær sannleikanum komumst við einfaldlega ekki.“ Kjartan segir að innan Matvæla- stofnunar hafi ekki að svo komnu máli verið tekin ákvörðun um frekari rannsóknir á matvörum í ljósi fyrirliggjandi niðurstaðna. „Það yrði þá gert í næsta mánuði, komi til þess,“ segir Kjartan. svavar@frettabladid.is 225,1644 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 125,98 126,58 190,62 191,54 164,94 165,86 22,115 22,245 22,064 22,194 19,537 19,651 1,3743 1,3823 190,63 191,77 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR GENGIÐ 27.02.2013 AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigrún Kristinsdóttir sigrunp@365.is, Sigurjón Viðar Friðriksson sigurjon@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Steinunn Sandra Guðmundsdóttir ssg@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is HVERNIG SEM VIÐRAR VIÐ ÞEKKJUM TILFINNINGUNA SKOTÁRÁS Í SVISS Genf Lausanne Bern Menznau ÍTALÍA AUSTURRÍKI ÞÝSKALANDFRAKKLAND SVISS Skotárás í Kronospan- timburverksmiðjunni Fundu ekkert kjöt í íslenskri kjötböku Ekkert nautakjöt fannst í tveimur vörum fyrirtækisins Gæðakokka við rannsókn þrátt fyrir merkingar þar um. Eigandi fyrirtækisins rengir að hluta niðurstöðuna og vill frekari rannsókn. Mjög áreiðanlegar niðurstöður, segir Matvælastofnun. NAUTABAKA Sýnin innihéldu ekkert kjöt yfir höfuð, sem stenst ekki, segir fram- leiðandinn. MYND/MATVÆLASTOFNUN ÆVINTÝRALAND Sumarbúðirnar hafa verið á Kleppjárnsreykjum undanfarin ár. SAMFÉLAGSMÁL Sumarbúðunum Ævintýralandi hefur verið lokað og verða þær ekki starfræktar að Kleppjárnsreykjum í sumar. Ástæða þess að starfsemin hefur verið lögð niður eru rekstrar- erfiðleikar. Sumarbúðirnar voru starfrækt- ar í fimmtán ár og komu þúsundir barna í þær á þeim tíma. Forsvars- menn þeirra segjast vonast til þess að einhvern daginn verði hægt að byggja upp starfið að nýju. „Við viljum þakka innilega öllum þeim þúsundum barna sem hafa komið til okkar, skemmt sér með okkur og gefið til baka ómælda gleði.“ - þeb Sumarbúðum lokað: Ævintýraland lagt niður í bili SVÍÞJÓÐ Þrjátíu prósent sænskra yfirmanna hafa átt í ástar- sambandi við einhvern í vinnunni en 40% hafa daðrað. Helmingur yfirmanna segir starfsmenn hafa daðrað við sig. Þetta eru niðurstöð- ur könnunar meðal 870 yfirmanna sem sænskt tímarit lét gera. Ástarsambönd í vinnunni voru algengari meðal yngri yfirmanna en eldri. - ibs Ástarsambönd yfirmanna: 30% átt í ástar- sambandi við undirmann FRAKKLAND, AP Lögmaður Dom- inique Strauss-Kahn hrósar sigri eftir að útgefandi var dæmdur til að bæta fylgiskjali við bók- ina „Fríða og dýrið“ eftir Marcelu Iacub. Bókin fjallar um kynferðis- legt samband Strauss-Kahn við höfundinn og í fylgiskjal- inu skal tekið fram að bókin brjóti gegn rétti Strauss-Kahn til friðhelgi einka- lífs síns. Ef útgefandinn hlítir ekki úrskurði dómarans þarf hann að greiða 50 evrur, sem nema rúm- lega 8.000 krónum, fyrir hvert selt eintak af bókinni. - möþ Sigur fyrir Strauss-Kahn: Braut á friðhelgi Strauss-Kahn MEXÍKÓ, AP Leiðtogi kennarasam- bandsins í Mexíkó var handtek- inn á Toluca-flugvelli síðla þriðju- dags. Elba Ester Gordillo er ásökuð fyrir að hafa dregið sér um 160 milljónir dollara úr sjóði kenn- arasambandsins. Peningarnir fóru í fatakaup, lýtaaðgerðir og húseign í San Diego. Handtakan átti sér stað degi eftir að forseti Mexíkó undirrit- aði nýja lagasetningu sem á að uppræta spillingu innan mennta- kerfisins. Engin skrá er til yfir fjölda skóla, kennara, eða nem- enda í Mexíkó. Nýju lögin munu leyfa slíka skrásetningu í fyrsta sinn. - hj Leiðtogi handtekinn í gær: Dró sér fé fyrir lýtaaðgerðum STRAUSS-KAHN Elísabet Margeirsdóttir veðurfréttamaður Veðurspá Laugardagur 3-10 m/s. MILT OG SVALT Það verður heldur svalara á landinu í dag miðað við síðustu viku en hlýnar á ný í kvöld með mildu veðri víðast hvar á morgun. Kólnar heldur strax á laugardag og má búast við talsverðu frosti í byrjun næstu viku. 0° 5 m/s 3° 6 m/s 3° 5 m/s 6° 5 m/s Á morgun 8-15 m/s. Gildistími korta er um hádegi 3° 0° 2° 0° -1° Alicante Basel Berlín 14° 6° 4° Billund Frankfurt Friedrichshafen 8° 5° 6° Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas 4° 4° 19° London Mallorca New York 9° 15° 10° Orlando Ósló París 23° 3° 4° San Francisco Stokkhólmur 17° 2° 2° 2 m/s 3° 7 m/s -2° 2 m/s -2° 3 m/s 0° 2 m/s 2° 3 m/s -1° 3 m/s 8° 7° 7° 10° 9° Ég er ekki að segja að þetta sé stútfullt af hakki, en við notum sojahakk til að drýgja auk þess sem nautakraftur er í vörunni sem krydd. Magnús Níelsson, framkvæmdastjóri og eigandi Gæðakokka

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.