Fréttablaðið - 28.02.2013, Page 12

Fréttablaðið - 28.02.2013, Page 12
28. febrúar 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 12 allt að 35% afs láttur af árgerð 2012 49.995 kr. Verð áður 75.995 kr. Tilboð Wheeler Pro 60 21 gíra • álstell • dömu og herra Hyundai Santa Fe Comfort - Jeppi rsins 2013 2,2 dísil, sjálfskiptur. Verð: 7.650 þús. kr. Eyðsla 6,6 l/100 km* Hyundai Santa Fe Sparneytinn d siljeppi NEW THINKING. NEW POSSIBILITIES. Kaupt ni 1 - 210 Garðabæ 575 1200 - www.hyundai.is * M ið as t vi ð bl an da ða n ak st ur s am kv æ m t fr am le ið an da E N N E M M / S ÍA / N M 5 6 7 4 9 Verið velkomin í kaffi og reynsluakstur Opið laugardag frá 10–16 SAMGÖNGUR „Við viljum fá þá ein- hverja vörn austanmegin líka til að verja landið,“ segir Kristján Ólafs- son á Seljalandi um tillögur um að leiða Markarfljót 2,5 kílómetra austur frá núverandi ósi. Eins og fram kom í Frétta- blaðinu í gær leggur Danska straumfræðistofnunin til að far- vegur Markarfljóts verði færður til að hindra að sandur sem áin ber með sér endi í Landeyjahöfn. Til stóð að beina farveginum um tvo kílómetra til austurs fyrir tveimur árum en vegna andstöðu íbúa í nágrenninu varð lendingin sú að byggja varnargarð til bráðabirgða sem færði fljótið aðeins 650 metra. Reynslan af því er sögð jákvæð. Þórhildur E. Elínardóttir, upp- lýsingafulltrúi Siglinga stofnunar, segir ekkert ákveðið varðandi færslu Markarfljóts eða aðrar framkvæmdir til að koma Land- eyjahöfn í ásættanlegt stand. „Sú mögulega framkvæmd er mjög stutt á veg komin og reyndar er málið á viðkvæmu stigi vegna þess að landeigendur og aðrir hags- munaaðilar, til dæmis opinberar stofnanir, eiga eftir að fá tækifæri til að ræða málið,“ segir Þórhildur. Spurð hvort gert sé ráð fyrir varnargarði austan Markarfljóts til að verja landið þeim megin kveður Þórhildur ekkert hafa verið gefið út um það enda sé málið allt svo skammt komið á veg. Kristján á Seljalandi segir hætt- una þá að Markarfljót brjóti sér leið lengra til austurs þegar ánni hefur verið beint í þá átt. „Þá fer fljótið yfir alla Eyjafjallasveitina og þar austur með og getur endað í Hólsós,“ segir Kristján. Heima- menn vilji að ánni verði veitt í stokk með varnargörðum á báðum bökkum. Þórhildur segir færslu Markar- fljóts líta út sem vænlegur kostur. Hins vegar færist mikið efni fram og til baka óháð Markarfljóti og það hafi áhrif á sandburðinn í hafnarmynninu. Margar hug- myndir séu um lausn vandans. „Þessi garður, ef af verður, er ekki patentlausn á efnisburði við Landeyjahöfn og árangurs yrði ekki að vænta í sömu viku og hann yrði tilbúinn. Að líkindum verður eitthvað fleira í pottinum,“ segir Þórhildur. Enn sem komið er liggur hvorki fyrir kostnaðar- né framkvæmda- áætlun vegna færslu Markarfljóts til austurs. gar@frettabladid.is Krefjast varna gegn færslu Markarfljóts Íbúar á Seljalandsjörðunum krefjast þess að verði Markarfljót flutt fari áin í stokk svo hún flæði ekki austur yfir Eyjafjallasveit. Siglingastofnun segir ekkert ákveðið um varnargarða til austurs eða verkefnið í heild. Ræða þurfi við hagsmunaaðila. MARKARFLJÓT OG LANDEYJAHÖFN Náttúröflin eru óblíð við Landeyjahöfn. Hér sést hvernig gosefni úr Eyjafjallajökli bárust til sjávar með Markarfljóti. MYND/ÞÓRDÍS MorGUnþÁT turinn Ómar alLa vIRka dagA kl. 7

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.