Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.02.2013, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 28.02.2013, Qupperneq 16
28. febrúar 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 16 Einn af kostunum við hlýnun jarðar er sá að nú eru færri ísjakar í Norður- Atlantshafi. Clive Palmer milljarðarmæringur ÍTALÍA Ítalski skemmtikrafturinn Beppe Grillo, sem nú er orðinn leiðtogi þriðja stærsta stjórnmála- afls Ítalíu, getur ekki sjálfur sest á þing. Hann er ekki með hreina sakaskrá, og bauð sig því ekki fram til þings sjálfur. Honum hefur hins vegar tekist að hrista duglega upp í ítölskum stjórnmálum, og þótti mörgum ekki vanþörf á, en aðrir hafa sagt ástandið hafa verið nógu ruglað fyrir, svo mjög að varla sé á það bætandi. Þýskir ráðamenn eru meðal þeirra sem segja Grillo vera sams konar trúð og Silvio Berlusconi og óttast að ítalska þingið geti næstu mánuðina ekki komið nokkru í verk. Margt bendir til þess að stutt sé í nýjar kosningar á Ítalíu. Grillo er fæddur í Genúa árið 1948. Hann verður því 65 ára gam- all á þessu ári. Hann er sex barna faðir og menntaður sem endur- skoðandi. Hann átti hins vegar auðvelt með að komast skemmti- lega að orði og sneri sér að gríninu strax eftir útskriftina. Grínið var oftar en ekki pólitískt og fór iðu- lega fyrir brjóstið á heldra fólki og framámönnum. Kosningabaráttan síðustu mán- uðina var í raun beint framhald á því sem hann hefur verið að gera á grínsviðinu. Hann hefur tekið sér stöðu meðal almennings úti á götum og torgum og krefst þess að fólkið fái að ráða sjálft, án milli- göngu stjórnmálamanna. Stefn- an sem Fimm stjörnu hreyfing- in hans stendur fyrir hefur verið nefnd „fancullismo“ á ítölsku, sem er dónalegt orð og gengur helst út á það að gefa skít í ráðamenn og stjórnmálaelítuna. Glæsilegur sigur hans í þing- kosningunum í byrjun vikunn- ar gerir það að verkum að varla er nokkur möguleiki á að mynda stjórn nema með þátttöku flokks hans, eða einhvers konar stuðn- ingi. Yfirlýsingar hans í kosninga- baráttunni benda þó varla til þess að hann hafi mikinn áhuga á því að hjálpa gömlu flokkunum. Sjálfur segist Grillo ekkert vita hvað hann eigi að gera í stöðunni, en útilokar þátttöku í stjórnar- samstarfi. Á bloggsíðu sinni segir hann það hreinlega vera „glæp gegn vetrarbrautinni“ að afhenda Berlusconi stjórnina á ný. Hann segist hins vegar reikna með að gömlu vinstri og hægri öflin reyni að mynda breiða stjórn: „Þeir geta haldið það út í sjö eða átta mánuði og út úr því koma hörmungar einar, en við munum reyna að hafa eftirlit með þeim.“ gudsteinn@frettabladid.is Hefur tekist að snúa öllu á hvolf á Ítalíu Ítalski stjórnmálaleiðtoginn Beppe Grillo tekur sér stöðu meðal fólksins gegn ráðamönnum og stjórnmálaelítunni. Hann útilokar þátttöku í stjórnarsamstarfi en reiknar með að gömlu vinstri og hægri öflin reyni að mynda breiða stjórn. BEPPE GRILLO Þýskir ráðamenn segja hann sams konar trúð og Berlusconi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Ítalska orðið Grillo þýðir „krybba“ og er upphaflega komið af gríska orðinu gryllos, sem merkir „engispretta“. Sama orðið er að finna í íslenska orða- tiltækinu að „fá grillu í höfuðið“, eða að „fá flugu í höfuðið“ eins og það er einnig orðað. Grillur og flugur í höfði BANDARÍKIN, AP Ástra lskur milljarða mæringur ætlar að smíða nýja útgáfu af Titanic sem gæti orðið sjófær árið 2016. Clive Palmer afhjúpaði teikningarnar af skipinu í New York á þriðjudaginn, en skipið mun heita Titanic II og smíði þess mun hefjast fljótlega í Kína. Palmer segir að 40 þúsund manns hafi nú þegar sýnt áhuga á því að kaupa miða í jómfrúar- ferðina, sem verður farin frá Southampton til New York, rétt eins og ætlunin var að hið upp- runalega skip færi. Hann hefur hug á að endurskapa andrúms- loftið sem var um borð í Titanic, en farþegar í jómfrúarferð nýja skipsins munu til að mynda klæð- ast fötum frá tímabilinu þegar Tit- anic sökk og panta máltíðir af mat- seðli gamla skipsins. Titanic II á að verða öruggasta skemmtiferðaskip heims, en það sama var einmitt sagt um for- vera þess. Nýja skipið verður búið björgunarbátum sem styðjast við nýjustu tækni auk þess sem öll nýjustu öryggistæki verða til staðar. „Einn af kostunum við hlýnun jarðar er sá að nú eru færri ís- jakar í Norður-Atlantshafi,“ segir Palmer, sem er ekki hræddur um að Titanic II muni hljóta sömu örlög og upprunalega skipið, sem sökk árið 1912. - möþ Ástralskur milljarðamæringur er stórhuga í skipasmíðum: Smíðar eftirlíkingu af Titanic STÓRHUGA MILLJARÐAMÆRINGUR Clive Palmer hyggst smíða eftirlíkingu af Titanic. E N N E M M / S ÍA / N M 5 6 6 9 0 * M ið a ð v ið b la n d a ð a n a ks tu r BL Sævarhöfða 2 110 Reykjavík 525 8000 Bílahúsið / Reykjanesbæ / 421 8808 – Bílasalan Bílás / Akranesi / 431 2622 – Bílasala Akureyrar / Akureyri / 461 2533 – Bílaverkstæði Austurlands / Egilsstöðum / 470 5070 DACIA DUSTER – 4x4 Dísil, beinskiptur. Verð 4.090 þús. kr. Eyðsla: 5,1 l/100 km* SKYNSAMLEG KAUP Hrikalega gott ver ð ELDSNEYTI MINNA SHIFT_ NISSAN QASHQAI – 4x4 Dísil, beinskiptur. Verð 5.090 þús. kr. Eyðsla: 4,6 l/100 km* VINSÆLASTI SPORTJEPPINN Samkv. Umferðars tofu 2012 SUBARU XV – 4x4 Bensín, sjálfskiptur. Verð 5.590 þús. kr. Eyðsla: 6,6 l/100 km* SPARNEYTINN SUBARU Ný vél, aukinn ben sínsparnaður NÝIR SPARNEYTNIR BÍLAR ks Eyðsla: 3,4 l/100 km* RENAULT CLIO Expression ECO 1,5 dísil, beinskiptur. Verð 2.890 þús. kr. / S Í / ð ð ð b l d ð k N E M M / S ÍA / N M 5 6 6 9 0 * M ið a ð v ið b la n d a ð a n a k E N N GLÆSILEGUR AUKABÚNAÐUR M.a. íslenskur leið sögubúnaður
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.