Fréttablaðið - 28.02.2013, Side 20

Fréttablaðið - 28.02.2013, Side 20
28. febrúar 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR VIÐSKIPTI | 20 FRÉTTASKÝRING Fjármálastöðugleiki Verið er að teikna upp mögulegar sviðsmyndir um hvernig eigi að losa um eignir kröfuhafa þrota- búa Glitnis og Kaupþings. Stór hluti af líklegri lausn felst í að selja Íslandsbanka og Arion banka og finna leið til að losa um eignir kröfuhafanna í íslenskum krónum án þess að það hafi neikvæð áhrif á fjármálalegan stöðugleika. Seðlabanki Íslands og stjórnvöld hafa gefið það skýrt til kynna að ekki standi til að samþykkja fyrir- liggjandi nauðasamninga Glitnis og Kaupþings á næstunni. Því sé nauðsynlegt að komast að sam- komulagi um hvernig verði höggv- ið á hnútinn. Nú eru allir aðilar að setja sig í stellingar til að gera nákvæmlega það. Bankasala fyrsta skref Eitt af skrefunum sem þarf að taka í þessu ferli er að selja eignarhluti Glitnis og Kaupþings í Íslands- banka og Arion banka. Framtaks- sjóður Íslands (FSÍ), stórir lífeyris- sjóðir og aðrir fjárfestar höfðu frumkvæði að óformlegum við- ræðum við slitastjórn Glitnis um kaup á 95 prósenta hlut í Íslands- banka fyrir nokkrum vikum síðan. Skömmu síðar var skýrt frá því að hluti bjóðendanna, aðallega líf- eyrissjóðir, horfðu einnig til Arion banka. Þeir vilja þó eignast bank- ana með töluverðum afslætti og eru tilbúnir að skoða ýmsar leiðir til að greiða fyrir hlutinn, meðal annars með erlendum eignum. Í yfirlýsingu slitastjórnarinn- ar vegna tilboðsins sagði að MP banki væri ráðgjafi hópsins og að stærstu hluthafar þess banka væru á meðal fjárfestanna sem tengdust hópnum. MP banki hefur ekkert viljað láta hafa eftir sér um málið en samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er aðkoma eigenda bankans að málinu ólíkleg eins og stendur. Hreyfing á næstu vikum Ekki hafa borist formleg viðbrögð við tilboðinu en hópurinn vonast til að hreyfing komist á viðræð- urnar á allra næstu vikum og að ákvörðun um hvort kaup þeirra verði raunverulegur möguleiki eða ekki liggi fyrir þá. Ljóst er að sala bankanna yrði eitt skref af nokkrum í til- raun til að finna heildarlausn á útgreiðslum til kröfuhafa, væntan- lega með töluverðum afföllum af kröfum þeirra. Einn viðmælenda Fréttablaðsins orðaði stöðuna þannig að ef kröfuhafarnir hjálp- uðu ekki til við að búa til fram- kvæmanlega lausn þá yrði lausn búin til fyrir þá. Samhliða, og í aðdraganda kosninga, hefur póli- tískur þrýstingur á farsæla og sameiginlega lausn aukist. Það sést sérstaklega á yfirlýsingum á borð við þá sem Bjarni Bene- diktsson, formaður Sjálfstæðis- flokksins, gaf frá sér í síðustu viku þegar hann sagði að afskrifa ætti kröfur erlendra vogunarsjóða í þrotabú föllnu bankanna að veru- legu leyti. Nú hafa bæði fulltrúar kröfu- hafa og stjórnvöld stigið í átt að því að reyna að finna slíka lausn. Kröfuhafar Glitnis og Kaupþings hafa á síðustu vikum myndað hóp sem gengur undir nafninu krónu- hópurinn (e. ISK-working group). Hlutverk hópsins er að kanna for- sendur fyrir því að losa um eignir þrotabúanna, sérstaklega í íslensk- um krónum. Allir setja sig í stellingar Fyrr í vikunni sagði Katrín Júlíus- dóttir fjármálaráðherra að hún hefði virkjað stýrinefnd um losun fjármagnshafta í nóvember í fyrra. Katrín leiðir þá nefnd sjálf. Á milli funda hennar er síðan virk samráðsnefnd með fulltrúum Seðlabanka Íslands, Fjármála- eftirlitsins, stjórnvalda og fleiri. Katrín sagði við sama tilefni að stjórnvöld ynnu að því að draga upp mismunandi sviðsmyndir af því hvernig hægt yrði að losa um krónur erlendra aðila. Krónuhópi kröfuhafa er ætlað að ræða við stýrinefnd Katrínar. Því er ljóst að töluverð hreyfing er komin á hlutina. VIÐSKIPTI Matvælaframleiðslufyrirtækið Bakkavör Group hagnaðist um 2,1 milljón punda, jafngildi tæplega 409 milljóna íslenskra króna, í fyrra. Þetta er mikill við- snúningur frá árinu áður þegar félagið tap- aði 75 milljónum punda. Bakkavör birti á fimmtudag uppgjör sitt fyrir árið 2012. Kemur þar fram að tekjur samsteypunnar voru 1.694,2 milljónir punda á árinu 2012 en 1677,7 milljónir punda árið áður. Þá var leiðréttur rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði, afskriftir og skatta 115,1 milljón punda og hækkaði um 6,9% milli ára. Stærstu eigendur félagsins eru nú þeir Ágúst og Lýður Guðmundssynir sem hafa á síðustu misserum keypt samtals 40% hlut í því fyrir ríflega átta milljarða króna. Hópur annarra íslenskra hluthafa á ríflega 50% en í hópnum eru meðal ann- arra Arion banki, Lífeyrissjóður verzlun- armanna og Gildi lífeyrissjóður auk fleiri lífeyrissjóða Sá hópur hefur staðið í vegi fyrir því að bræðurnir eignist á ný meirihluta í félaginu en þeir voru stærstu eigendur þess áður en kröfuhafar eignuðust megnið af félaginu eftir bankahrunið. - mþl Ágúst og Lýður Guðmundssynir búnir að eignast 40% í félaginu: Hagnaður hjá Bakkavör í fyrra BAKKABRÆÐUR Þeir Lýður og Ágúst Guðmundssynir eru orðnir stærstu einstöku eigendur Bakkavarar á ný. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Póstdreifing | Vatnagörðum 22 | 104 Reykjavík | Sími 585 8300 | www.postdreifing.is Póstdreifing dreifir fjölpósti sex daga vikunnar til heimila á stærsta markaðssvæði landsins. Mælingar sýna að 60% landsmanna skoða fjölpóst og er hann því áhrifarík leið til að koma skilaboðum um vöru eða þjónustu beint inn á heimilin. Örugglega til þín. Nánari upplýsingar veitir söludeild í síma 585 8300. Við sjáum um örugga dreifingu á fjölpósti Við náum til fjöldans B ra n de n bu rg VIÐSKIPTI Stjórn Icelandair Group leggur til við aðalfund félags- ins að alls 1.500 milljónir verði greiddar út sem arður til hluthafa félagsins 12. apríl næstkomandi. Þetta kemur fram í tillögum sem stjórn Icelandair Group hefur samþykkt að leggja fyrir aðalfund félagsins sem fram fer 13. mars. Þá er lögð til breyting á lögum félagsins sem tryggja á að minnst tveir stjórnarmenn af fimm séu af hvoru kyni til að félagið upp- fylli ný lög um kynjakvóta í stjórnum fyrirtækja sem taka gildi í september. - mþl Stutt í aðalfund Icelandair: Greiði 1,5 millj- arða út í arð ICELANDAIR Fyrir aðalfundi Icelandair Group liggur tillaga sem tryggja á að minnst tveir af fimm stjórnarmönnum félagsins séu af hvoru kyni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM VIÐSKIPTI Fasteignafélagið Reg- inn hf. hagnaðist um 2.599 millj- ónir króna á árinu 2012. Til sam- anburðar var hagnaður félagsins 1.893 milljónir árið áður. Rekstrarhagnaður fyrir fjár- magnsliði, afskriftir og skatta var 1.981 milljón en hrein fjár- magnsgjöld voru neikvæð um 1.834 milljónir. Félagið naut hins vegar góðs af 770 milljóna hagn- aði vegna sölu fjárfestingareigna og þess að verðmat á fasteignum félagsins hækkaði um tæpar 2.400 milljónir króna á árinu. Heildareignir félagsins voru í lok árs rúmir 32 milljarðar króna og eigið fé ríflega 11 milljarðar. - mþl Matsbreytingar áhrifamiklar: 2,6 milljarða hagnaður Regins SMÁRALIND Helgi S. Gunnarsson, for- stjóri Regins, við Smáralindina, aðra af stærstu eignum félagsins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Hreyfing á sölu bankanna Íslensk stjórnvöld og kröfuhafar föllnu bankanna hafa bæði myndað vettvang til að ræða um lausn á slitum þrotabúa þeirra. Fyrsta skref gæti verið sala á Íslandsbanka og Arion banka til innlendra fjárfesta. KATRÍN JÚLÍUSDÓTTIR Katrín Júlíusdóttir fjármálaráðherra leiðir starf stýri nefndar um losun fjármagnshafta sem virkjuð var í nóvember síðastliðnum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Samtals eiga Glitnir og Kaupþing því um 454 milljarða króna hið minnsta í íslenskum krónum. Glitnir kynnti uppgjör fyrir árið 2012 á kröfuhafafundi í gær. Þar kemur fram að heildareignir þrotabúsins eru 935,6 milljarðar króna. Þar af eru 256,7 milljarðar króna í íslenskum krónum og munar þar mestu um 95 prósenta hlut búsins í Íslandsbanka. Hann er metinn á 115,8 milljarða króna í bókum Glitnis, sem er töluvert undir innra virði bankans. Kaupþing hefur ekki birt uppgjör fyrir árið 2012 en um mitt síðasta ár átti þrotabúið 861,3 milljarða króna. Þar af voru 197,7 milljarðar króna í íslenskum krónum og 87 prósent eignarhlutur í Arion banka þá metin á um 96,2 milljarða króna. Það er líka töluvert undir þeim upphæðum sem mögulegir innlendir bjóðendur hafa rætt um að vera tilbúnir til að borga fyrir bankann. Krónueignin er stórt vandamál Þórður Snær Júlíusson thordur@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.