Fréttablaðið - 28.02.2013, Side 25

Fréttablaðið - 28.02.2013, Side 25
FIMMTUDAGUR 28. febrúar 2013 | SKOÐUN | 25 Undanfarin ár hafa marg- ir lagt orð í belg varðandi framtíð Reykjavíkurflug- vallar í Vatnsmýrinni. Almennt skiptist fólk í tvær fylkingar, önnur fylkingin vill hafa flug- völlinn áfram þar sem hann er en hin vill láta flytja hann „eitthvert annað“, s.s. á Hólmsheiði, Álftanes eða til Kefla- víkur. Fólk er greinilega ekki sammála, það er bara fínt og skapar líflegar umræður. Þann 25. september sl. kynnti KPMG greinargerð, sem unnin var fyrir sjö sveitarfélög um framtíð innanlandsflugs, um áhrif þess að flytja miðstöð innan landsflugs frá Reykjavík til Keflavíkur. Í greinargerðinni koma fram margar áhugaverðar niðurstöður en eins og ávallt þarf að hafa forsendur í huga þegar niðurstöður eru rýndar. Dæmi um niðurstöður sem fram koma eru: • Fækkun flugferða á einstökum flugleiðum verður allt að 40%. • Innanlandsflug í núverandi mynd leggst af til Ísafjarðar, Hornafjarðar og Vestmannaeyja. • Kostnaður við ríkisstyrkt flug eykst. • Kostnaður við sjúkraflug eykst og öryggi sjúklinga minnkar. • Ferðakostnaður íbúa lands- byggðarinnar eykst um 6 til 7 milljarða á ári. • Landsbyggðin í heild sinni verð- ur afskekktari þegar innanlands- flug dregst saman. Þegar þessar helstu niður- stöður eru skoðaðar finnst mér erfitt að rökstyðja að flytja eigi flugvöllinn úr Vatnsmýrinni til Keflavíkur. Merki- lega lítið hefur farið fyrir umræðu um þessa greinar gerð. Nú virðast einhverjir hallast að því að flytja flugvöllinn á Hólms- heiði. Í desember 2009 gerði Veðurstofan opin- bera skýrslu sem unnin var fyrir Flugstoðir og byggir á veðurmæling- um á Hólmsheiði tíma- bilið 11.01.2006-31.10.2009, eða í tæp fjögur ár. Þar kemur fram að nothæfisstuðull er lægri fyrir Hólmsheiði en Reykjavík- urflugvöll, sem þýðir að not- hæfi flugvallar þar er minna en í Vatnsmýri. Mun það eink- um vera vegna hliðarvinds ann- ars vegar og hins vegar vegna verra skyggnis og lægri skýja- hæðar. Eru Íslendingar tilbúnir að sætta sig við þjónustuskerð- ingu í nútímaþjóðfélagi? Óvíst um ávinning Þeir sem vilja flugvöllinn í burtu nefna gjarnan að Vatnsmýrin sé svo verðmætt byggingarland að óverjandi sé að hafa þar flugvöll. Reyndar er það þannig að mjög margir velja sér búsetu fjarri miðbænum og vilja frekar búa í úthverfum. Ég held að flestir átti sig á því að ef flugvöllurinn færi úr Vatnsmýri væri hægt að skipu- leggja íbúabyggð þar að hluta og þétta byggð. Hvort fjárhagslegur ávinningur verður jafn mikill og rætt hefur verið um er óvíst. Um þessar mundir er raunverð íbúð- arhúsnæðis um 35% undir því sem það fór hæst og er nú svip- að og árið 2004. Líklegt verður því að telja að verðið eigi eftir að hækka verulega, sérstaklega á „verðmætasta“ byggingaland- inu. Ætli það sama megi segja um kaupmátt og ráðstöfunar tekjur fólks? Við skulum svo sannarlega vona það en spyrja má hvort ekki væri gáfulegra að líta til samein- ingar eða samvinnu sveitarfélag- anna á höfuðborgarsvæðinu og þétta byggð með því móti? Þeir sem vilja hafa flugvöll- inn áfram þar sem hann er nefna oftast nálægð við Landspítal- ann, þjónustu við landsbyggð- ina og tímasparnað m.v. að hafa hann í Keflavík eða fjarri opin- berri þjónustu. Ef flugvöllurinn fer úr Vatnsmýrinni má færa rök fyrir því að flytja beri ákveðnar opinberar lykilstofnanir úr mið- bænum nær flugvellinum, mögu- lega til annarra sveitarfélaga eins og Mosfellsbæjar og/eða Kópavogs. Eru Reykvíkingar til í að skoða það? Sem betur fer er þungavigtar- fólk í þjóðfélaginu sem áttar sig á heildarmyndinni og má t.d. hrósa núverandi innanríkisráðherra fyrir hans framgöngu hingað til. Betri farvegur Ég hef alltaf litið á Reykjavík sem höfuðborg Íslendinga, ekki bara Reykvíkinga. Af þeirri ástæðu hefur mér fundist eðlilegt að byggja upp þjónustu í Reykja- vík sem Íslendingar þurfa eða kjósa að notfæra sér. Því fylgir hins vegar ábyrgð að vera höfuð- borg landsins, það verður ekki bæði haldið og sleppt. Hinn 17. mars 2001 fór fram kosning í Reykjavík um Reykja- víkurflugvöll. Borgarráð sam- þykkti að niðurstaðan yrði bindandi ef a.m.k. ¾ hlutar (75%) atkvæðisbærra manna í Reykja- vík tækju þátt í kosningunni eða ef a.m.k. 50% atkvæðisbærra manna greiddu atkvæði á sama veg. Til að gera langa sögu stutta var hvorugt þessara skilyrða uppfyllt sbr. meðfylgjandi töflu. Engu að síður er til fólk sem vísar í þessa atkvæðagreiðslu og leyfir sér að fullyrða að Reykvík- ingar hafi ákveðið að flugvöllur- inn skuli fara úr Vatnsmýri. Mín túlkun á þessum niðurstöðum er sú að flestum Reykvíkingum hafi ekki dottið í hug að neinum væri alvara með hugleiðingum um að flytja flugvöllinn og því sátu yfir 60% þeirra heima. Þrátt fyrir þessa niðurstöðu er umræðan um flugvöllinn á fleygiferð en mér finnst nauðsyn- legt að beina henni í betri far- veg, þjóðaratkvæðagreiðslu. Þegar svona stórt mál er til umræðu, sem skiptir alla lands- menn mjög miklu máli, og stjórn- málamenn treysta sér ekki til að taka afstöðu til er gott að þeir fái skýra leiðsögn frá þjóðinni. Rétt er að hafa í huga að þjóðin á hluta landsins í Vatnsmýri. Ég legg því til að haldin verði þjóðaratkvæðagreiðsla um Reykjavíkurflugvöll sam- hliða næstu alþingiskosning- um sem munu fara fram eigi síðar en í apríl nk. Ég hef fulla trú á að meirihluti Reykvíkinga og landsmanna allra vilji hafa flugvöllinn áfram í Vatnsmýr- inni. Við þurfum hins vegar að vita það með eins mikilli vissu og mögulegt er og að mínu mati er þjóðar atkvæðagreiðsla, sam- hliða kosningum, besta leiðin til þess. Þannig fá líka stjórnmála- menn skýr skilaboð um næstu skref í þessu stóra máli. Ég skora því á innanríkisráðherra og ríkisstjórnina alla að hefja nú þegar undirbúning þjóðar- atkvæðagreiðslu um framtíð Reykjavíkur flugvallar. Er það ekki beint lýðræði? Þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíð Reykjavíkurfl ugvallar Fjöldi Hlutfall Á kjörskrá 81.258 Greidd atkvæði 30.219 37,19% Áfram í Vatnsmýri 14.529 48,08% % af heild 17,88% Fari úr Vatnsmýri 14.913 49,35% % af heild 18,35% Auðir og ógildir 777 2,57% Kosning 2001 ➜ Ég hef fulla trú á að meirihluti Reykvíkinga og landsmanna allra vilji hafa fl ugvöllinn áfram í Vatns- mýrinni. Við þurfum hins vegar að vita það með eins mikilli vissu og mögulegt er og að mínu mati er þjóðar- atkvæðagreiðsla, samhliða kosningum, besta leiðin til þess. SKIPULAGSMÁL Marteinn M. Guðgeirsson bankastarfsmaður Ármúla 30 | 108 Reyk jav í k | S ími 560 1600 | w w w.borgun . i s Gönguskór Ketilbjöllur 22.890 kr. 8.390 kr. 3 nætur á Mývatni 46.370 kr.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.