Fréttablaðið - 28.02.2013, Síða 25
FIMMTUDAGUR 28. febrúar 2013 | SKOÐUN | 25
Undanfarin ár hafa marg-
ir lagt orð í belg varðandi
framtíð Reykjavíkurflug-
vallar í Vatnsmýrinni.
Almennt skiptist fólk í
tvær fylkingar, önnur
fylkingin vill hafa flug-
völlinn áfram þar sem
hann er en hin vill láta
flytja hann „eitthvert
annað“, s.s. á Hólmsheiði,
Álftanes eða til Kefla-
víkur. Fólk er greinilega
ekki sammála, það er bara fínt og
skapar líflegar umræður.
Þann 25. september sl. kynnti
KPMG greinargerð, sem unnin
var fyrir sjö sveitarfélög um
framtíð innanlandsflugs, um
áhrif þess að flytja miðstöð
innan landsflugs frá Reykjavík
til Keflavíkur. Í greinargerðinni
koma fram margar áhugaverðar
niðurstöður en eins og ávallt þarf
að hafa forsendur í huga þegar
niðurstöður eru rýndar. Dæmi
um niðurstöður sem fram koma
eru:
• Fækkun flugferða á einstökum
flugleiðum verður allt að 40%.
• Innanlandsflug í núverandi
mynd leggst af til Ísafjarðar,
Hornafjarðar og Vestmannaeyja.
• Kostnaður við ríkisstyrkt flug
eykst.
• Kostnaður við sjúkraflug eykst
og öryggi sjúklinga minnkar.
• Ferðakostnaður íbúa lands-
byggðarinnar eykst um 6 til 7
milljarða á ári.
• Landsbyggðin í heild sinni verð-
ur afskekktari þegar innanlands-
flug dregst saman.
Þegar þessar helstu niður-
stöður eru skoðaðar finnst mér
erfitt að rökstyðja að flytja eigi
flugvöllinn úr Vatnsmýrinni
til Keflavíkur. Merki-
lega lítið hefur farið
fyrir umræðu um þessa
greinar gerð.
Nú virðast einhverjir
hallast að því að flytja
flugvöllinn á Hólms-
heiði. Í desember 2009
gerði Veðurstofan opin-
bera skýrslu sem unnin
var fyrir Flugstoðir og
byggir á veðurmæling-
um á Hólmsheiði tíma-
bilið 11.01.2006-31.10.2009, eða
í tæp fjögur ár. Þar kemur fram
að nothæfisstuðull er lægri
fyrir Hólmsheiði en Reykjavík-
urflugvöll, sem þýðir að not-
hæfi flugvallar þar er minna
en í Vatnsmýri. Mun það eink-
um vera vegna hliðarvinds ann-
ars vegar og hins vegar vegna
verra skyggnis og lægri skýja-
hæðar. Eru Íslendingar tilbúnir
að sætta sig við þjónustuskerð-
ingu í nútímaþjóðfélagi?
Óvíst um ávinning
Þeir sem vilja flugvöllinn í burtu
nefna gjarnan að Vatnsmýrin sé
svo verðmætt byggingarland að
óverjandi sé að hafa þar flugvöll.
Reyndar er það þannig að mjög
margir velja sér búsetu fjarri
miðbænum og vilja frekar búa í
úthverfum. Ég held að flestir átti
sig á því að ef flugvöllurinn færi
úr Vatnsmýri væri hægt að skipu-
leggja íbúabyggð þar að hluta og
þétta byggð. Hvort fjárhagslegur
ávinningur verður jafn mikill og
rætt hefur verið um er óvíst. Um
þessar mundir er raunverð íbúð-
arhúsnæðis um 35% undir því
sem það fór hæst og er nú svip-
að og árið 2004. Líklegt verður
því að telja að verðið eigi eftir
að hækka verulega, sérstaklega
á „verðmætasta“ byggingaland-
inu. Ætli það sama megi segja um
kaupmátt og ráðstöfunar tekjur
fólks? Við skulum svo sannarlega
vona það en spyrja má hvort ekki
væri gáfulegra að líta til samein-
ingar eða samvinnu sveitarfélag-
anna á höfuðborgarsvæðinu og
þétta byggð með því móti?
Þeir sem vilja hafa flugvöll-
inn áfram þar sem hann er nefna
oftast nálægð við Landspítal-
ann, þjónustu við landsbyggð-
ina og tímasparnað m.v. að hafa
hann í Keflavík eða fjarri opin-
berri þjónustu. Ef flugvöllurinn
fer úr Vatnsmýrinni má færa rök
fyrir því að flytja beri ákveðnar
opinberar lykilstofnanir úr mið-
bænum nær flugvellinum, mögu-
lega til annarra sveitarfélaga
eins og Mosfellsbæjar og/eða
Kópavogs. Eru Reykvíkingar til
í að skoða það?
Sem betur fer er þungavigtar-
fólk í þjóðfélaginu sem áttar sig á
heildarmyndinni og má t.d. hrósa
núverandi innanríkisráðherra
fyrir hans framgöngu hingað til.
Betri farvegur
Ég hef alltaf litið á Reykjavík
sem höfuðborg Íslendinga, ekki
bara Reykvíkinga. Af þeirri
ástæðu hefur mér fundist eðlilegt
að byggja upp þjónustu í Reykja-
vík sem Íslendingar þurfa eða
kjósa að notfæra sér. Því fylgir
hins vegar ábyrgð að vera höfuð-
borg landsins, það verður ekki
bæði haldið og sleppt.
Hinn 17. mars 2001 fór fram
kosning í Reykjavík um Reykja-
víkurflugvöll. Borgarráð sam-
þykkti að niðurstaðan yrði
bindandi ef a.m.k. ¾ hlutar (75%)
atkvæðisbærra manna í Reykja-
vík tækju þátt í kosningunni eða
ef a.m.k. 50% atkvæðisbærra
manna greiddu atkvæði á sama
veg. Til að gera langa sögu stutta
var hvorugt þessara skilyrða
uppfyllt sbr. meðfylgjandi töflu.
Engu að síður er til fólk sem
vísar í þessa atkvæðagreiðslu og
leyfir sér að fullyrða að Reykvík-
ingar hafi ákveðið að flugvöllur-
inn skuli fara úr Vatnsmýri. Mín
túlkun á þessum niðurstöðum er
sú að flestum Reykvíkingum hafi
ekki dottið í hug að neinum væri
alvara með hugleiðingum um að
flytja flugvöllinn og því sátu yfir
60% þeirra heima.
Þrátt fyrir þessa niðurstöðu
er umræðan um flugvöllinn á
fleygiferð en mér finnst nauðsyn-
legt að beina henni í betri far-
veg, þjóðaratkvæðagreiðslu.
Þegar svona stórt mál er til
umræðu, sem skiptir alla lands-
menn mjög miklu máli, og stjórn-
málamenn treysta sér ekki til að
taka afstöðu til er gott að þeir fái
skýra leiðsögn frá þjóðinni. Rétt
er að hafa í huga að þjóðin á hluta
landsins í Vatnsmýri.
Ég legg því til að haldin
verði þjóðaratkvæðagreiðsla
um Reykjavíkurflugvöll sam-
hliða næstu alþingiskosning-
um sem munu fara fram eigi
síðar en í apríl nk. Ég hef fulla
trú á að meirihluti Reykvíkinga
og landsmanna allra vilji hafa
flugvöllinn áfram í Vatnsmýr-
inni. Við þurfum hins vegar að
vita það með eins mikilli vissu
og mögulegt er og að mínu mati
er þjóðar atkvæðagreiðsla, sam-
hliða kosningum, besta leiðin til
þess. Þannig fá líka stjórnmála-
menn skýr skilaboð um næstu
skref í þessu stóra máli. Ég
skora því á innanríkisráðherra
og ríkisstjórnina alla að hefja
nú þegar undirbúning þjóðar-
atkvæðagreiðslu um framtíð
Reykjavíkur flugvallar. Er það
ekki beint lýðræði?
Þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíð Reykjavíkurfl ugvallar
Fjöldi Hlutfall
Á kjörskrá 81.258
Greidd atkvæði 30.219 37,19%
Áfram í Vatnsmýri 14.529 48,08%
% af heild 17,88%
Fari úr Vatnsmýri 14.913 49,35%
% af heild 18,35%
Auðir og ógildir 777 2,57%
Kosning 2001
➜ Ég hef fulla trú á að
meirihluti Reykvíkinga og
landsmanna allra vilji hafa
fl ugvöllinn áfram í Vatns-
mýrinni. Við þurfum hins
vegar að vita það með eins
mikilli vissu og mögulegt er
og að mínu mati er þjóðar-
atkvæðagreiðsla, samhliða
kosningum, besta leiðin til
þess.
SKIPULAGSMÁL
Marteinn M.
Guðgeirsson
bankastarfsmaður
Ármúla 30 | 108 Reyk jav í k | S ími 560 1600 | w w w.borgun . i s
Gönguskór
Ketilbjöllur
22.890 kr.
8.390 kr.
3 nætur
á Mývatni 46.370 kr.