Fréttablaðið - 28.02.2013, Side 36

Fréttablaðið - 28.02.2013, Side 36
FÓLK|TÍSKA Kristján Már Hauks- son, kerfis- og inter- netmarkaðsfræðingur hjá Nordic eMarketing, segir að Íslendingar séu á eftir í netsölu miðað við aðrar þjóðir. „Hugsanlega er það vegna þess að það er ekki nægjanlegur skilningur á uppsetn- ingu á netsíðunni og engin þolinmæði til að klára verkið. Það má þó bæta því við að Ís- lendingar eru „stökkva út í búð“ fólk þar sem stuttar vegalengdir eru á milli staða. Annar vinkill er hversu mikið fólk notar netið til að sækja upplýsingar á erlendum vefsíðum um vöru sem það fer síðan og kaupir úti í búð. Þetta fólk kynnir sér vel vöruna og les umsagnir um hana áður en það fer og kaupir, þetta eru viðskiptavinir sem kallast „horfir og kaupir á netinu“ og „horfir og kaupir í búð“. Verslunareigendur þurfa að gera sér grein fyrir að netkynslóð er að vaxa úr grasi,“ segir Kristján Már. „Örfá fyrirtæki hafa gert sér grein fyrir þessari þróun og má þar nefna Elko og IKEA. Sumar heimasíður eru þó flóknar og líta fremur út eins og vörulager. Nokkrar vefverslanir hafa verið sett- ar upp hér á landi og eru að gera það gott á vefnum. Ég get nefnt dæmi um nordicstore.is sem byrjaði í bílskúr og er að gera það mjög gott. Sú verslun selur út um allan heim og er gjaldeyris- skapandi. Vefurinn er landamæralaus.“ Bandarískar tískubúðir eru sífellt að auka sölumöguleika sína með því að nýta sér netið. Verslanir óska eftir net föngum við- skiptavina við sölu á netinu og eru ófeimnar við að nota þau þegar kynna þarf tilboð. Stór- ar verslanir eins og Gap, Old Navy, Victoria‘s Secret, Macys og margar fleiri verslana keðjur nýta vel þennan sölumöguleika. Verslanir um allan heim hafa tekið upp þennan sölumáta og eru duglegar að byggja upp netsölur. Í Bandaríkjunum hafa sömu- leiðis skotið upp á netinu afsláttarsíður eins og CouponCodes4u.com þar sem hægt er að fá afslætti af alls kyns vörumerkjum undir einum hatti. ÁHRIFAMIKIÐ Samkvæmt nýrri bandarískri könnun viður- kenna 55% kvenna að þær kaupi tískufatnað vegna áhrifa frá tískusíðum fjölmiðla, jafnvel þótt þær noti aldrei vöruna. Þær vilja klæðast nýjustu tísku og þar er netið áhrifamikið. Auð- velt er að ota ákveðnum flíkum að viðskipta- vininum, til dæmis í gegnum Facebook. Það er ekki gott að segja hversu mörg prósent kvenna í heiminum versla á netinu en talið er að um 27% fólks í öllum heiminum noti þennan viðskiptamáta. Sá hópur stækkar stöðugt. Stærsti hópurinn sem verslar í gegn- um netið kemur frá Asíu, flestir frá S-Kóreu og Kína. Þá hefur orðið risastökk í netsölu í Póllandi eftir að fleiri heimili þar netvæddust. Stærstu verslanir í Bandaríkjunum bjóða upp á sendingar um allan heim, þar á meðal til Ís- lands. HEIMSBÚÐIN Margir líta á netsölu sem stærsta „outlet“ heimsins, sérstaklega þar sem nettilboð eru algeng. Netkaup spara auk þess tíma. Það þarf ekki að aka á dýru bensíni milli verslana og þramma síðan á milli þeirra í stórum verslunar miðstöðvum. Þá getur fólk verslað á þeim tíma dags sem hentar best. Það eru þó ekki bara fatnaður sem fólk kaupir í gegnum netið því eftirspurn eftir rafbókum hefur auk- ist mikið undanfarið. Með tilkomu spjaldtölva og snjallsíma hafa áskriftir að hinum ýmsu tímaritum og dagblöðum færst yfir á netið. Vinsælasta netsala í heimi er Amazon.com sem hefur verið starfandi frá árinu 1995. Stöð- ugt er verið að bæta vöruúrval á síðunni og hefur salan meira en þrefaldast undanfarin ár. Yfir hundrað milljón heimsóknir eru á síðuna í hverjum mánuði en Target hefur 23,2 milljónir heimsókna og Best Buy hefur 18,3 milljónir. Stærstu söludagar á netinu eru föstudagur og mánudagur eftir þakkargjörðarhátíðina í Bandaríkjunum. AUKNING Í BRETLANDI Í Bretlandi er sala í gegnum netið stöðugt að aukast. Á síðasta ári jókst hún um að minnsta kosti 14%. Forsvarsmenn stórfyrirtækisins John Lewis sögðu í samtali við BBC í janúar að sala á vefnum hefði aukist mikið á síðasta ári og væri nú 25% af allri sölu verslunar- innar. Sprenging varð í sölu hjá verslun- inni þegar hún opnaði netútsölu klukkan fimm á aðfangadag. Samkvæmt frétt í The Guardian í febrúar höfðu notendur greiðslukorta hjá Barclay-bankanum eytt 12% meiru á netinu árið 2012 en árið á undan. Fatnaður var fyrirferðarmikill í netsölu en einnig alls kyns rafmagnsvara. Enn einn þátturinn sem einnig hefur tekið mikinn kipp á netinu eru ódýrir hlutir eins og bíómiði (8%) og skyndi- biti (26%). Þannig má segja að netið sé sífellt að breyta lífi hins venju- lega manns og tækifærin stöðugt að aukast og batna í gegnum tölvuna. ■ elin@365.is SPRENGING Í SÖLU Á NETINU MET Árið 2012 varð metár í sölu tískufatnaðar á netinu. Sérstaklega á tilboðsdögum eins og Black Friday, Cyber Monday og öðrum slíkum dögum. Netsalan eykst stöðugt og er farin að skipta miklu máli í heildarveltu fyrirtækja. RISA OUTLET Margir líta á netsölu sem stærsta „outlet” heims, sérstaklega þar sem nettilboð eru algeng. SÉRFRÆÐINGURINN Kristján Már Hauksson segir að íslensk netkynslóð sé að vaxa úr grasi. VIÐ SITJUM EFTIR Sjá fleiri myndir á Kjólar skokkar - ný sending Áður 14.900 Nú 9.900 Áður 14.900 Nú 11.900 Áður 14.900 Nú 11.900 Áður 14.900 Nú 11.900

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.