Fréttablaðið - 28.02.2013, Page 48

Fréttablaðið - 28.02.2013, Page 48
Velferðarsvið Stuðningsheimili fyrir karlmenn Velferðarsvið Reykjavíkurborgar leitar að rekstrar aðilum stuðningsheimilis fyrir karlmenn að Miklubraut 18. Velferðarsvið Reykjavíkurborgar auglýsir eftir áhuga- sömum aðilum til að taka að sér rekstur stuðningsheimilis fyrir karlmenn að Miklubraut 18. Um er að ræða úrræði sem rekið hefur verið í Reykjavík á undanförnum árum en samningur við núverandi rekstraraðila rennur út á næstu mánuðum. Markmið með rekstri stuðningsheimilisins er að bjóða einstaklingum sem hætt hafa neyslu áfengis og vímuefna öruggt heimili, stuðning og aðhald á meðan þeir aðlagast samfélaginu á nýjan leik. Endurhæfing og stuðningur fer fram í nánu samstarfi við heimilismenn með það að mark- miði að auka lífsgæði þeirra og möguleika á að ná tökum á lífi sínu. Þjónustusamningur til 3ja ára verður gerður við þann aðila sem valinn verður til að reka þjónustuna. Leitað er eftir einstaklingum eða félagasamtökum sem hafa reynslu af þjónustu við fólk sem á við margháttaða félagslega erfiðleika að stríða með sérstakri áherslu á reynslu af vinnu með fólk sem á við áfengis- og vímuefna- vanda að etja. Daglegur rekstur og þjónusta er í höndum þjónustusala en til daglegs reksturs teljast t.d. starfsmannamál, almennur rekstur húsnæðis og eldhúss auk annarrar þjónustu. Reykjavíkurborg leggur til húsnæði fyrir reksturinn. Gert er ráð fyrir 8 rýmum. Þjónustusali þarf að tryggja að starfsemin sé ætíð mönnuð nægilega mörgum starfsmönnum. Frekari upplýsingar veitir Birna Sigurðardóttir, verkefnis- stjóri á Velferðarsviði, netfangið birna.sigurdardottir@reykjavik.is Áhugasamir skili inn umsókn um verkefnið ásamt kostnaðarmati fyrir 11. mars 2013. Umsóknum ber að skila til skrifstofu Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík eða á netfangið; birna.sigurdardottir@reykjavik.is. Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er. Kynning á lýsingu verkefnis og drögum að breytingu Aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2009-2025 Efnistaka og varnargarðar í Múlakvísl Sveitarstjórn Mýrdalshrepps hefur samþykkt að kynna lýsingu skipulagsverkefnis skv. 1. mgr. 30. gr. skipulags- laga nr. 123/2010, ásamt matslýsingu í samræmi við lög nr. 105/2006 um umhverfismat áætlana. Í kjölfar kynningar á lýsingu verða kynnt drög að breytingu á Aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2009-2025 ásamt umhverfisskýrslu í sam- ræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Öll gögn verða aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins (www.vik.is). Lýsing á skipulagsverkefnis verður aðgengileg frá og með 28. febrúar og drög að aðalskipulagsbreytingu verða aðgengileg 4. mars. Breytingin á aðalskipulagi snýr að nauðsynlegum fram- kvæmdum vegna áforma Vegagerðar að endurbyggja þau mannvirki, brú, veg og varnargarða, sem skemmdust eða eyðilögðust í jökulhlaupi sem kom í Múlakvísl á Mýrdals- sandi 9. júlí 2011 og rauf þar Hringveginn. Breyting á skipulagi felur m.a. í sér stækkun efnistökusvæða og gerð varnargarða. Ábendingar og athugasemdir við lýsingu verkefnis og drög að skipulagsbreytingu skal senda til sveitarstjóra á netfangið sveitarstjori@vik.is. Einnig er hægt að senda athugasemdir merktar Aðalskipulag Mýrdalshrepps á póst- fangið, Skrifstofa Mýrdalshrepps, Austurvegi 17, 870 Vík. Frestur til að gera athugasemdir eða koma með ábendingar við lýsingu og drög að aðalskipulagsbreytingu er til og með 15. mars 2013. Ásgeir Magnússon sveitarstjóri. Kynningarfundur á Ferðamála stefnu Hafnarfjarðarbæjar Fimmtudaginn 28.febrúar kl. 17.00 verður Ferðamálastefna Hafnarfjarðarbæjar kynnt í Bungalowinu við Vesturgötu 32. Að kynningu lokinni munu Ferðamálasamtök Hafnarfjarðar standa fyrir hugarflugsfundi. Allir velkomnir. Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar Íslenskukennsla við Sorbonneháskóla Staða íslenskukennara við Sorbonneháskóla í París er laus til umsóknar. Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. september 2013. Ráðning er tímabundin til þriggja ára með möguleika á endurráðningu til jafnlangs tíma. Krafist er M.A. prófs í íslensku. Æskilegt er að umsækjendur hafi lokið kennararétt- indanámi og hafi reynslu af því að kenna íslensku sem annað eða erlent mál. Umsækjendur þurfa að geta kennt íslenskt mál og bókmenntir og fjallað um íslenskt samfélag. Æskilegt er að þeir hafi búið á Íslandi undanfarin ár. Kunnátta í frönsku er nauðsynleg. Mögulegt er að stunda framhalds- nám við skólann með kennslu. Umsóknir, sem greini frá námi og störfum umsækjenda, ásamt skýrslu um ritsmíðar og rannsóknir, skulu sendar til Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, stofu Sigurðar Nordals, pósthólf 1220, 121 Reykjavík, fyrir 15. mars 2013. Nánari upplýsingar veitir Úlfar Bragason rannsóknarprófessor í síma 562 6050. Reykjavík 25. febrúar 2013 Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum SÆBÓLSBRAUT 22 - KÓPAVOGI Fjarðargötu 17, Hf. Sími 520 2600 as@as.is www.as.is Eiríkur Svanur Sigfússon lögg. fasteignasali Sérlega fallegt miðjuraðhús með aukaíbúð í kjallara með sér- inngangi. Húsið er alls 309,5 fm og skiptist í 173,1 fm aðalíbúð, 26,8 fm bílskúr og 109,6 fm aukaíbúð (auðvelt að opna aftur á milli hæða). 5 rúmgóð svefnherb. Svalir og verönd. Frábært fjölskylduhús á góðum stað. Verð 52.9 millj. Eiríkur Svanur löggiltur fasteignasali tekur á móti gestum, s. 862-3377. OPIÐ HÚS Í DAG KL. 16:45-17:15 OP IÐ HÚ S Anton Karlsson, Sölufulltrúi 771 8601 Anton Karlsson kynnir gott 250 fm raðhús á góðum stað, steinsnar frá allri þjónustu. Eignin skiptist í tvær hæðir. Glæsilegt útsýni, suður garður með sólpalli og setlaug. Bílskúr 31 fm. Verð: Tilboð Skipti skoðuð á minni eign! Nánari upplýsingar veitir Anton Karlsson sölufulltrúi í síma 771 8601/517 2600 anton@fastko.is Fasteignasala Kópavogs • Hamraborg 14a • S 517 2600 Vegna mikillar sölu vantar fleiri eignir á skrá. Laugavegi 170, 2. hæð • Opið virka daga kl. 9:00-17:00 Sími 552 1400 • Fax 552 1405 • www.fold.is • fold@fold.is Er með trausta og fjársterka kaupendur að stóru og vel staðsettu einbýlishúsi í Laugardalnum. Leitað er að reisulegu og glæsilegu húsi en eignin má líka þarfnast endurnýjunar og viðhalds. Staðgreiðsla í boði fyrir rétta eign. Einnig gætu verið skipti á glæsilegu minna sérbýli í hverfinu. Önnur hverfi sem koma til greina eru í póstnr. 101 og 107. Allar nánari upplýsingar gefur: Einar Guðmundsson Lögg. fasteignasali s. 896-8767. Viðar Böðvarsson viðskiptafræðingur og lögg. fast. Laugardalur og nágrenni Einbýlishús óskast! Tilkynningar atvinna fasteignir Dagforeldranámskeið Í lok mars mun Miðstöð símenntunar í Hafnarfirði bjóða upp á starfsréttindanámskeið fyrir verðandi dagforeldra. Upplýsingar í síma 585 5860 eða senda fyrirspurnir á simenntun@hafnarfjordur.is Save the Children á Íslandi Aðalfundur Rauða krossins í Reykjavík verður haldinn fimmtudaginn 14. mars 2011, kl. 17:00 í húsnæði deildarinnar að Laugavegi 120 – 5 . hæð. Gengið er inn frá Rauðarárstíg Á dagskrá verða venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins. Á dagskrá verður m.a. lögð fram tillaga til lagabreytinga sem kynntar verða einni viku fyrir aðalfundinn á heimsíðunni www.redcross.is/reykjavik Framkvæmdastjóri Aðalfundur Boltinn á Xinu 977 – alla virka daga kl. 11 - 12 | SMÁAUGLÝSINGAR | 28. febrúar 2013 FIMMTUDAGUR12

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.