Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.02.2013, Qupperneq 54

Fréttablaðið - 28.02.2013, Qupperneq 54
28. febrúar 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 38 BAKÞANKAR Björns Þórs Sigbjörnssonar 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 KROSSGÁTA MYNDASÖGUR PONDUS Eftir Frode Øverli GELGJAN Eftir Jerry Scott & Jim Borgman HANDAN VIÐ HORNIÐ Eftir Tony Lopes BARNALÁN Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman LÁRÉTT 2. umrót, 6. tveir eins, 8. árkvíslir, 9. mánuður, 11. þófi, 12. framburður, 14. sáldra, 16. býli, 17. vefnaðarvara, 18. angan, 20. tveir eins, 21. stígur. LÓÐRÉTT 1. útmá, 3. í röð, 4. vegklæðning, 5. frostskemmd, 7. heilladrjúgur, 10. kæla, 13. hnoðað, 15. skynfæri, 16. strit, 19. eldsneyti. LAUSN LÁRÉTT: 2. rask, 6. ff, 8. ála, 9. maí, 11. il, 12. árset, 14. salla, 16. bæ, 17. tau, 18. ilm, 20. gg, 21. slóð. LÓÐRÉTT: 1. afmá, 3. aá, 4. slitlag, 5. kal, 7. farsæll, 10. ísa, 13. elt, 15. auga, 16. bis, 19. mó. Jæja? Hvernig er útkoman eftir þrjár vikur á eplasalat- kúrnum? Elza? Afhverju svararðu ekki? Ah! 101 hlutur sem þú ættir að gera fyrir 16 ára aldur 39. Setja einhvers konar met Í guðanna bænum, Palli, farðu á fætur! Ekki strax... Hvað segiði gaurar? Eruð þið nettir á því? Frasa- bókin Hvað fékkstu í afmælisg jöf? Sama og venjulega. Ég fékk það sama í fyrra og hitteðfyrra og hitteðfyrra og hitteðfyrra. Í alvöru? Hvað? Ekki smáhest. Já, ég fæ það líka á hverju ári. Mögnuð breyting hefur orðið á miðborg Reykjavíkur á tiltölulega skömmum tíma. Þar sem áður voru verslanir eru veit- ingastaðir og þar sem áður voru fjölmennir vinnustaðir eru hótel. FYRIR minna en aldarfjórðungi var eitt hótel í miðborginni og reksturinn í slíkum vandræðum að útlit var fyrir að honum yrði hætt. Um tíma stefndi í að Alþingi eignaðist hótelið og breytti í skrifstofur fyrir þingmenn en af því varð ekki. Reykja- víkurborg, sem þá laut stjórn Davíðs Odds- sonar, var á móti, keypti hótelið og seldi aftur nokkrum árum síðar. Davíð og fleiri gátu illa hugsað sér að ekkert hótel yrði í bænum. Enda er sú höfuðborg aum sem ekki státar af hóteli í miðborg sinni. Síðan eru sem sagt liðin tæp 25 ár og Hótel Borg í blóma. Í raun er stutt síðan að í Reykjavík voru fjögur hótel sem eitthvað kvað að. Auk Borgarinnar voru það Loft leiðir, Holtið og Saga. Ég veit ekki hve mörg hótel in í borginni eða á höfuðborgar- svæðinu eru í dag. Ég er ekki viss um að ég geti talið svo hátt. Á reitnum milli Aðal- strætis og Pósthús strætis eru fimm hótel og í seilingar fjarlægð að minnsta kosti önnur fimm og sennilega gott betur. Á teikni- borðinu eru alla vega tvö af stærri gerðinni og eitt til, ofarlega á Laugaveginum. Það þarf svo ekki að spyrja hvernig starfsemi verður komið á fót í húsakynnum Lands- bankans í Austurstræti þegar hann hefur reist sér nýjar höfuðstöðvar eða í húsinu þar sem nú er Héraðsdómur Reykjavíkur þegar það apparat verður komið þangað sem það á heima; upp í Tún. VIÐ öll þessi hótel bætast svo hostelin, gistiheimilin og lúxusíbúðirnar og hvað þau nú heita öll formin af gistirými sem standa ferðamönnum til boða. Og ég er bara að tala um miðborgina. ENN mun bætast við þegar nýbyggingar LSH verða teknar í notkun því hvað ætla menn að gera við Landakot og Borgar- spítalann og jafnvel Vífilsstaði annað en að breyta í hótel? Tímabundin blankheit komu í veg fyrir að Heilsuverndarstöðin við Baróns stíg yrði að hóteli fyrir nokkr- um misserum og þó að Landlæknir hafi nú hreiðrað þar um sig er sjálfsagt ekki full- reynt hvað það varðar. Þá er líklegt að fyrr en vari rísi hótel við Kringluna. Teikning- arnar eru til. Og stórhuga menn eru vita- skuld að spá í það sama við Smáralind. VONANDI halda útlendingar áfram að koma til Íslands. Alþingi mun aldrei hafa þörf fyrir svona mikið skrifstofurými. Hótel Reykjavík Rannsóknir sýna að notkun sykurlauss Extra eykur munnvatnsframleiðslu, jafnar sýrustig, heldur tönnunum hreinum og stöðvar sýklaárásir á þær. Extra minnkar upptöku hitaeininga og dregur það úr streitu í amstri hversdagsins.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.