Fréttablaðið - 28.02.2013, Síða 68

Fréttablaðið - 28.02.2013, Síða 68
28. febrúar 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 52 ➜ Í byrjun janúar hvarf flugvél með Vittorio Missoni, forstjóra fyrirtækisins, eiginkonu hans, Mauriziu Castiglioni, og tveimur öðrum innanborðs. „Ég hef ekki hugmynd um hvernig allt þetta gerðist. Ég veit að ég hef verið heppnari en ég hef nokkru sinni átt skilið á ævi minni.“ Day-Lewis þegar hann tók á móti Óskarnum. „Það með hverjum hann vinnur er mikilvægur þáttur hvað varðar þá athygli og virðingu sem hlutverk hans fá.“ Michael Rosser, blaðamaður Screen International, við BBC. „Það sem myndi draga miklu frekar úr mér kraft er að hoppa inn og út úr veröld sem við höfum lagt svo mikið á okkur að búa til.“ Day-Lewis um að halda sér í karakter á meðan á tökum stendur. „Það er ótrúlegt hversu alvarlega hann tekur starf sitt. Við vitum hversu mikið hann leggur á sig. Hann er fullkomin blanda af enskum, klassískmenntuðum leikara og bandarískum „method“- leikara.“ Nick James, blaðamaður hjá Sight and Sound, í viðtali við BBC. „Það hvernig hann vinnur er sveipað dulúð. Það hefur frést að hann hafi verið ávarpaður sem herra forseti á tökustað Lincoln og að hann hafi fengið starf sem slátrari eftir að hann tók að sér hlut- verk slátrarans í Gangs of New York.“ Robbie Collin, blaðamaður hjá Daily Telegraph, við BBC. „Hvorugt okkar leyfði sér að trúa því að þetta gæti gerst. Sérstaklega eftir að hann hafði unnið öll verðlaun fram að Óskarnum fyrir Gangs of New York en vann samt ekki. En einhvern veginn efaðist ég aldrei um að hann myndi vinna þrisvar.“ Tamasin Day-Lewis, systir Daniels, í Daily Telegraph um nýjustu Óskars- verðlaunin. „Maður reynir að vinna grunnvinnuna og gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn. Þegar það hefur tekist hefur maður enga hug- mynd hvað gerist. Þannig að þessi aðferð heftir mann ekki heldur hefur þveröfug áhrif.“ Day-Lewis um aðferðafræðina þar sem hann sökkvir sér inn í persónuna. Tekur starfi ð alvarlega Leikarinn Daniel Day-Lewis skráði nafn sitt í sögubækurnar með því að vinna Óskars- verðlaunin í þriðja sinn sem besti aðalleikarinn fyrir hlutverk sitt í Lincoln. Aðeins Kather- ine Hepburn hefur náð betri árangri, eða fernum verðlaunum sem besta aðalleikkonan. FIMM AÐRIR DANIEL Í HOLLYWOOD DANIEL CRAIG ( James Bond) DANIEL RADCLIFFE (Harry Potter) DANIEL BRÜHL (Inglorious Basterds) DANIEL STERN (Home Alone) DANIEL BALDWIN (Homicide: Life on the Street) ■ Lincoln (2013) - SIGUR ■ There Will Be Blood (2008) - SIGUR ■ Gangs of New York (2003) ■ In the Name of the Father (1994) ■ My Left Foot (1990) - SIGUR ÓSKARAR DAY-LEWIS OG ÓSKARSTILNEFNINGAR Leikaraparið Jason Segel og Michelle Williams er hætt saman ef marka má nýjustu fréttir. Parið byrjaði saman í byrjun síð- asta árs en var nokkuð lengi að staðfesta samband sitt opinber- lega. Þau hafa ávallt haldið einka- lífi sínu frá kastljósi fjölmiðla en síðast sást til parsins saman að fagna áramótunum í Mexíkó. Á meðan á ástarsambandinu stóð hefur Segel kynnst dóttur Williams, Mathildu, vel en faðir hennar er leikarinn sálugi Heath Ledger. Ástæðan fyrir sambands- slitunum ku vera ströng dagskrá hjá báðum leikurunum en Willi- ams er þessa dagana að kynna nýjustu mynd sína Oz: The Great and Powerful. Er sambandið alveg búið? EINHLEYP Á NÝ Leikkonan Michelle Williams og gamanleikarinn Jason Segel hafa slitið sambandi sínu. NORDICPHOTOS/GETTY Ítalska tískuhúsið Missoni var á meðal þeirra er sýndu haust- og vetrarlínur sínar á tískuvikunni í Mílanó um helgina. Línan þótti vel heppnuð, en flíkurnar minnti marga á náttfatnað og yfirhafn- irnar á náttsloppa. Þessu var blandað saman við netaboli, -skó og -sokkabuxur og virkuðu andstæðurnar vel saman. Svörtum, gráum og hvítum litatónum var svo blandað saman við sterkari liti líkt og eiturgrænan, bláan og appelsínugulan. Tískuhúsið er fjöl- skyldufyrirtæki og í byrjun janúar hvarf flugvél með Vittorio Missoni, forstjóra fyrirtækisins, eigin- konu hans, Mauriziu Castiglioni, og tveim- ur öðrum innanborðs undan strönd Venesúela. Í vikunni bárust þær fregnir að flugvélar- flak hefði fundist við strönd eyjarinnar Curacao. Enn er óljóst hvort hér er komið flak flugvélarinnar sem Missoni og kona hans voru farþegar í. Hin fallega haustlína Missoni-tískuhúss- ins var því sköpuð á heldur ömurlegum tíma í lífi fjöl- skyldunnar. - sm Mjúkar línur frá hinu ítalska Missoni-húsi Hönnun Missoni vakti athygli á tískuvikunni í Mílanó. Enn hefur ekkert spurst til forstjóra fyrirtækisins sem hvarf ásamt eiginkonu sinni í byrjun ársins. EINLEIKIN GAMANSEMI EFTIR KARL ÁGÚST, LADDA OG SIGGA SIGURJÓNS Sýningar fara fram í Kaldalóni, Hörpu. Einungis 200 miðar í boði á hverja sýningu. Miðaverð er 3.900 kr. Miðasala fer fram á Miði.is, Harpa.is, í miðasölu Hörpu og í síma 528-5050. 5. APRÍL Í HÖRPU NÁNAR Á SENA. IS/ LA DD I TRYGGÐU ÞÉR MIÐ ANN Á AÐ EINS 2.475,- EF ÞÚ KA UPIR 4 MI ÐA SAMA N FYRSTA M IÐASÖLU DAGINN OPNUNAR TILBOÐ FRUMSÝNING Föstudagur 5. apríl kl. 20 Laugardagur 6. apríl kl. 20.00 Miðvikudagur 10. apríl kl. 20.00 Fimmtudagur 11. apríl kl. 20.00 Laugardagur 20. apríl kl. 20.00 Föstudagur 3. maí kl. 20.00 Laugardagur 4. maí kl. 21.30 MIÐASALA OPNAR 7. MARS KL. 12 Póstlistaforsala hefst 6. mars kl. 12! Skráðu þig á viðburðapóstlista Senu og tryggðu þér eins dags forskot.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.