Fréttablaðið - 28.02.2013, Síða 71
FIMMTUDAGUR 28. febrúar 2013 | MENNING | 55
Franska Óskarsverðlaunaleikkonan Juli-
ette Binoche á í viðræðum um að taka
að sér hlutverk í Godzilla-myndinni sem
áætlað er að taka upp í vor og sumar og
frumsýna á næsta ári.
Það er breski leikstjórinn Gareth
Edwards sem hyggst gæða hið goðsagna-
kennda skrímsli nýju lífi í stórmynd sem
framleidd verður af Legendary Pictures
í samstarfi við Warner Bros. Edwards
vakti fyrst verulega athygli fyrir vísinda-
myndina Monsters frá 2010 og eru bundn-
ar miklar vonir við hann í Hollywood.
Edwards, sem er fæddur árið 1975, hefur
ítrekað látið hafa eftir sér í viðtölum að
Stjörnustríðsmyndirnar séu ástæða þess
að hann gerðist kvikmyndagerðarmaður.
Enn sem komið er hefur fátt verið stað-
fest um leikaraval og söguþráð í nýju
Godzilla-myndinni. Fyrir utan Binoche
hefur þó gengið fjöllunum hærra að
breski leikarinn Aaron Taylor-Johnson,
sem lék John Lennon í Nowhere Boy,
Elizabeth Olsen, yngri systir Olsen-
tvíburasystranna, og Bryan Cranston úr
Breaking Bad og Malcolm in the Middle-
þáttunum, séu á óskalista leikstjórans
fyrir myndina.
Binoche í viðræðum um hlutverk í Godzilla
Breski leikstjórinn Gareth Edwards hyggst gæða hið goðsagnakennda skrímsli nýju lífi á næstunni.
JULIETTE BINOCHE Óskarsverðlaunaleikkonan gæti tekið að sér
hlutverk í nýju Godzilla-myndinni.
The Big Lebowski Fest 2013
verður haldin í sjöunda sinn í
Keiluhöllinni í Egilshöll 16. mars.
Hátíðin er haldin fyrir alla aðdá-
endur gamanmyndarinnar The
Big Lebowski. Þangað mætir fólk
í búningum, drekkur hvíta rússa,
slappar af og skiptist á frösum
úr þessari „költ“ mynd. Fimm-
tán ár eru liðin síðan hún kom út
með Jeff Bridges í hlutverki lata
friðarsinnans The Dude.
Á hátíðinni verður haldin
spurningakeppni, spiluð keila
og horft á myndina, auk þess
sem búningakeppni fer fram.
Veitt verða verðlaun fyrir þrjú
efstu sætin og einnig verða veitt
heiðurs verðlaunin Achiever.
Miðasala fer fram á Bolur.is.
Lebowski Fest
í sjöunda sinn
SKIPULEGGJENDUR Svavar Helgi
Jakobsson og Ólafur Sverrir Jakobsson
skipuleggja hátíðina. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Marcus Mumford, höfuðpaur
Mumford and Sons, og Justin
Timberlake hafa verið að taka
upp tónlist saman fyrir nýjustu
kvikmynd Coen-bræðra. Myndin,
sem heitir Inside Llewyn Davis,
skartar Carey Mulligan, eigin-
konu Mumfords, í einu aðalhlut-
verkanna og fjallar um tónlistar-
mann sem reynir að öðlast frægð
og frama í New York á sjöunda
áratugnum.
Í viðtali við MTV sagðist
Timber lake hafa notið samstarfs-
ins. „Þetta verður ekki bara góð
mynd heldur verður tónlistin í
henni frábær,“ sagði söngvarinn.
Mumford
tekur upp með
Timberlake
POPPARI Justin Timberlake naut sam-
starfsins við Marcus Mumford.
Ben Stiller er nýjasti gestaleikar-
inn sem staðfest hefur verið að
bregði fyrir í nýju þáttaröðinni
af Arrested Development sem
kemur á skjáinn í maí. Áður hafa
stjörnur á borð við Kristen Wiig,
Seth Rogen, Conan O’Brien, John
Slattery og Islu Fisher verið til-
kynntar sem hluti af þáttaröðinni
og búist er við að fleiri stjörnur
verði tilkynntar áður en langt um
líður.
Stiller snýr aftur sem töfra-
maðurinn Tony Wonder, erki-
óvinur GOB Bluth sem Will
Arnett leikur, en gestaleikur hans
þótti vel heppnaður í upphaflegu
Arrested Development-þáttunum.
Ben Stiller
verður með
BEN STILLER Einn af mörgum
gestaleikurum í nýju Arrested Develop-
ment-þáttaröðinni.
Miðasölusími 568 8000 | borgarleikhus.is