Fréttablaðið - 23.03.2013, Side 4
23. mars 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 4
LÖGREGLUMÁL Gæsluvarðhald
yfir 82 ára bónda á Snæfells-
nesi, sem grunaður er um lang-
vinn kynferðis brot gegn þroska-
heftri stjúpdóttur sinni, rennur út
á þriðjudaginn kemur. Ekki ligg-
ur fyrir hvort óskað verður eftir
framlengingu á því.
Ríkisútvarpið sagði fyrst frá
fjölskylduharmleiknum á laugar-
daginn fyrir viku. Svo virðist sem
konan hafi sætt langvarandi mis-
notkun af hálfu minnst fjögurra
karlmanna sem allir tengdust
henni fjölskylduböndum.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins hófst málið í ársbyrjun
þegar ófeðruð dóttir konunnar
uppgötvaði að maður hennar hafði
beitt móður hennar kynferðislegu
ofbeldi um nokkurt skeið. Þau
höfðu öll búið saman á Vesturlandi.
Dóttirin, sem er um þrítugt,
fór með málið til lögreglunnar og
þegar í stað hófst umfangsmikil
rannsókn hjá lögreglunni á Akra-
nesi. Hún hefur í kjölfarið slitið
samvistum við manninn og býr nú
ein með móður sinni.
Konan, sem er nú um fimmtugt,
er verulega greindarskert eftir
heilaskaða sem hún hlaut í æsku.
Tengdasonur hennar, maður um
fertugt, gekkst fljótlega við því
að hafa brotið gegn henni. Hann
sætti aldrei varðhaldi. Rannsókn
þess máls er á lokastigi og verður
það fljótlega sent Ríkissaksóknara
til ákærumeðferðar.
Við rannsókn þess opnaðist hins
vegar ormagryfja, þegar konan
greindi frá kynferðislegu ofbeldi
sem hún hefði þurft að sæta í um
fjóra áratugi af hálfu fyrrverandi
stjúpföður síns, bóndans sem nú
situr í gæsluvarðhaldi.
Móðir konunnar átti í sambandi
við bóndann áratugum saman með
hléum og misnotkunin sem konan
segist hafa sætt átti sér stað á
sveitabæ þeirra á Snæfellsnesi.
Nýjustu brotin munu vera frekar
nýleg.
Þar með er ekki öll sagan sögð,
því að konan hefur einnig borið að
hún hafi verið beitt kynferðislegu
ofbeldi af tveimur bræðrum stjúp-
ans fyrrverandi. Annar þeirra bjó
á bænum. Báðir létust árið 2003.
Rannsókn á máli gamla manns-
ins er skammt á veg komin og að
því er fram kom í fréttum RÚV
hefur hann ekki játað sök.
stigur@frettabladid.is
16.03.2013 ➜ 22.03.2013
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn
Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigrún Kristinsdóttir sigrunp@365.is, Sigurjón Viðar Friðriksson sigurjon@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir
elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Steinunn Sandra Guðmundsdóttir ssg@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
LEIÐRÉTT
Rangt var farið með nafn viðmælanda
í frétt gærdagsins. Hún heitir Bryndís
Björk Ásgeirsdóttir. Beðist er velvirð-
ingar á mistökunum.
Mistök urðu við merkingu dálka í töflu
yfir brautskráningar karla og kvenna
á háskólastigi veturinn 2009/2010 á
síðu 12 í gær. Í töflunni urðu karlar að
konum og öfugt.
Röng mynd birtist
með grein Brynhildar
Jónsdóttur, Heila-
hreysti í hárri elli, í
Fréttablaðinu í gær.
Rétt mynd fylgir hér.
1,1
MILLJÓN
ferðamanna mun
koma til landsins
árið 2015 sam-
kvæmt spám.
FLUGVÖLLUR
Á HÓLMSHEIÐI
myndi vera ónothæfur
28 daga á ári sam-
kvæmt nýrri skýrslu.
400 kr.
40% kvenna á aldr-
inum 25 til 64 eru
með háskólapróf en
30% karla.
STANGVEIÐAR Á ÍSLANDI
velta um 20 milljörðum króna á ári.
Fáðu þér íslenskt gott kex
með chilli- eða hvítlauksbragði.
Bættu við bragðgóðum íslenskum osti,
smá af sultu og njóttu þess.
Elísabet
Margeirsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
Mánudagur
Hæg breytileg átt víðast.
GOTT HELGARVEÐUR Ljómandi gott veður næstu daga. Yfirleitt hæg austanátt
og léttskýjað en heldur hvassara allra syðst og líkur á stöku skúrum eða slydduéljum.
Hitinn breytist lítið.
2°
5
m/s
3°
7
m/s
4°
9
m/s
7°
15
m/s
Á morgun
3-8 m/s.
Gildistími korta er um hádegi
6°
4°
5°
1°
0
Alicante
Basel
Berlín
17°
13°
-3°
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
-1°
3°
13°
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
0°
0°
22°
London
Mallorca
New York
3°
17°
6°
Orlando
Ósló
París
29°
-1°
8°
San Francisco
Stokkhólmur
17°
0°
5°
8
m/s
4°
8
m/s
3°
6
m/s
3°
8
m/s
2°
5
m/s
3°
8
m/s
-3°
8
m/s
4°
3°
4°
2°
2°
MÓÐIR
ÞOLANDANS
78 ára.
Býr í Reykjavík
ÞOLANDINN
Um fimmtugt.
Verulega
þroskaskert.
ÓFEÐRUÐ
DÓTTIR
Um þrítugt.
FV. STJÚPFAÐIR
ÞOLANDANS
82 ára.
FV. TENGDASONUR
ÞOLANDANS
Um fertugt.
BRÓÐIR
STJÚPANS
Lést 2003,
þá 76 ára.
BRÓÐIR
STJÚPANS
Lést 2003,
þá 80 ára.
FJÓRIR GERENDUR OG ÞOLANDI
20.000.000.000 kr.
28
10MILLJÓNIR
GUNNAR ÞORSTEINSSON
vill fá 10 milljónir króna frá konum sem
sökuðu hann um kynferðisbrot.
kostar hádegismatur í Seðlabankanum.
Á Landspítalanum kostar maturinn
460 krónur en 530 á Alþingi.
Krabbameinsfélagið
safnaði um
25 MILLJÓNUM
í Mottumars þetta árið
Sérstakur saksóknari
hefur ákært 15 fyrr-
verandi starfsmenn
Kaupþings og Lands-
bankans fyrir markaðs-
misnotkun.
Ormagryfja misnotkunar
opnaðist í kjölfarið á kæru
Þroskaskert kona segist hafa sætt langvarandi misnotkun stjúpa síns og tveggja bræðra hans á sveitabæ á
Snæfellsnesi. Þegar upp komst um brot tengdasonar hennar gegn henni hófst víðtæk lögreglurannsókn.
SNÆFELLSNES Konan býr nú með dóttur sinni á Vesturlandi. Tengdasonurinn er farinn af heimilinu. Gamli maðurinn sem nú
situr í gæsluvarðhaldi býr á sveitabæ á Snæfellsnesi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ÍSRAEL Benjamín Netanjahú,
forsætisráðherra Ísrael, bað
tyrknesk yfirvöld í gær afsök-
unar á árás sérsveita hersins á
hjálparskipið Mavi Marmara.
Skipið reyndi árið 2010 að koma
hjálpargögnum til Gasaborgar í
Palestínu. Níu skipverjar féllu í
árásinni.
Ísraelar hafa hingað til neitað
að ganga lengra en að harma
manntjónið. Tyrkir hafa kraf-
ist afsökunarbeiðni og skaða-
bóta til fjölskyldna hinna látnu.
Fullar sættir hafa nú náðst og
fullu stjórnmálasambandi verið
komið á.
Samkomulagið er runnið undan
rifjum Baracks Obama, forseta
Bandaríkjanna. - shá
Ísraelar og Tyrkir sættast:
Bað Tyrki for-
láts á morðum
ALÞINGI
Enn óvissa um þinglok
Þingfundi verður fram haldið í dag,
en ekkert samkomulag liggur fyrir um
þinglok. Ásta R. Jóhannesdóttir, forseti
Alþingis, fundaði með formönnum
þingflokkana í gær og einnig með
formönnum stjórnmálaflokkanna, án
árangurs.