Fréttablaðið - 23.03.2013, Síða 12
23. mars 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 12
NÝ BÓK EFTIR
METSÖLUHÖFUNDINN
STEFÁN MÁNA
BÓK SEM AÐDÁENDUR
HUNGURLEIKANNA OG TWILIGHT
MUNU FALLA FYRIR
„Frábær bók, mjög
skemmtileg, hélt athygli
minni allan tímann.“
BIRKIR ÖRN KARLSSON
JAPAN, AP Japanar eru líklega dug-
legri en flestar aðrar þjóðir við
að setja upp grímur. Algengast er
þetta á vorin þegar frjókornin fara
á kreik. En Japanar nota líka grím-
ur til að verjast smiti. Og mengun
sem þeir segja einkum koma frá
Kína.
„Það er engu líkara en annar
hver maður sem fer út fyrir húss-
ins dyr gangi um með grímu þessa
dagana,“ segir Masahiko Haneda,
kaupsýslumaður í höfuðborginni
Tókýó.
Flestir reyndar setja upp grím-
ur til að verjast frjókornum vegna
ofnæmis, og þetta árið er ástandið
óvenju slæmt. Frjókornamælingar
sýna að í andrúmsloftinu eru fimm
sinnum fleiri frjókorn nú en var
á sama tíma í fyrra. Ástæðan er
sögð vera sú að síðasta sumar var
óvenju heitt, auk þess sem óvænt
hitabylgja hefur gert vart við sig
nú í þessum mánuði. Þessi mikli
hiti núna gerir það að verkum að
bæði sedrusviður og hinn japanski
hinoki-grátviður losa samtímis
frjókorn út í andrúmsloftið.
Með árunum hefur grímutískan
breyst. Þær eru ekki lengur ein-
göngu hvítar og skurðstofulegar,
heldur í öllum regnbogans litum
og hannaðar eftir sveiflukenndum
kröfum tískunnar. Sumar eru með
ilmefnum.
Grímuframleiðendur eru farnir
að velta jafnvirði 34 milljarða
króna á ári hverju. Öflugasta
fyrir tækið í bransanum, Kowa Co.,
segist ætla að fimmfalda fram-
leiðsluna þetta árið.
Grímur sjást reyndar á fólki í
Japan allt árið. Margir setja þær á
sig um leið og þeir fá kvef. Þann-
ig komast þeir hjá því að hósta eða
hnerra framan í annað fólk, til
dæmis í þrengslunum í járnbrautar-
lestum eða á vinnustöðum, þar sem
oft er einnig þröng á þingi.
Þá setur fullkomlega heilbrigt
fólk iðulega upp grímuna til að
forðast smit frá þeim sem hnerra
og hósta bullandi kvefaðir en
grímulausir á almannafæri.
Grímur eru ódýrar í Japan og
kannski þess vegna svona vin-
sælar. Þær þjóna líka mjög skýr-
um tilgangi og virðast virka vel.
„Þær eru ódýrar og þær
virka. Það virðist henta mjög vel
hugsunar hætti margra Japana,“
segir Shigeharu Fujeda, ofnæmis-
fræðingur við Háskólann í Fukui.
gudsteinn@frettabladid.is
Grímurnar birtast á
götunum í Japan
Þegar vora tekur í Japan birtist grímuklætt fólk á götunum. Þetta árið er óvenju
mikið um frjókorn. Að sama skapi er óvenju mikið um grímur á götunum. Þær
eru nú orðið ekki bara hvítar og skurðstofulegar, heldur í öllum regnbogans litum.
FÓLK Á FERÐ Sumir segja engu líkara en annar hver maður gangi um með grímu.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Það er engu líkara en
annar hver maður sem fer
út fyrir hússins dyr gangi
um með grímu þessa
dagana.
Masahiko Haneda
kaupsýslumaður í Tókýó
Velkomin í
Landsbankann
Landsbankinn býður viðskiptavinum sínum fjölbreytt
úrval sparnaðarkosta við allra hæfi. Við leggjum
áherslu á persónulega þjónustu, ábyrga ráðgjöf og
upplýstar ákvarðanir. Verið velkomin í Landsbankann.
Framúrskarandi
ávöxtun
Sparibréfa