Fréttablaðið - 23.03.2013, Side 24
23. mars 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 24
➜ Auk þess að eiga von á barni og starfa með Nóru er
Auður í BA-námi í mannfræði og ætlar að útskrifast
í haust. Barnið á að fæðast um miðjan ágúst en þangað
til ætlar Nóra að sækja fast á tónleikamarkaðinn.
Við Egill bróðir bjuggum í húsi með bílskúr í Vesturbænum þegar við vorum krakkar og fengum bíl-skúrinn til afnota til að glamra og leika okkur með Hrafni vini okkar,“ segir Auður Viðarsdóttir,
söngkona og hljómborðsleikari Nóru, um tilurð
hljómsveitar innar. „Smám saman fengum við
svo kjark til að syngja hvort fyrir annað. Við
vorum alls ekkert sísyngjandi frá fæðingu eins
og margir halda.“
Samstarfið þróaðist, þau fengu tvo hljóð-
færaleikara í viðbót til liðs við sig og hljóm-
sveitin Nóra varð til árið 2008. Himinbrim
er önnur platan sem sveitin sendir frá sér. Sú
fyrri, Er einhver að hlusta?, kom út árið 2010.
Himinbrim kom út í lok október á síðasta ári,
hvernig stendur á því að útgáfu tónleikarnir eru
í lok mars? „Það er góð spurning. Við vorum
alltaf á leiðinni að halda tónleika, en ég var
nýorðin ólétt og illa haldin af morgunógleði í
tvo mánuði og ekki alveg í stuði. Svo er gítar-
leikarinn okkar tæknimaður hjá Björk og fór
að túra með henni aðeins, þannig að það fannst
aldrei tími. Okkur fannst samt að platan ætti
það skilið að vera flutt í heild með öllum auka-
hljóðfæraleikurunum og bakröddum og það er
akkúrat það sem mun gerast á morgun. Þetta
verður alveg rosalega flott.“
Auður og Egill bróðir hennar semja alla tón-
list og texta Nóru og syngja ýmist sitt í hvoru
lagi eða saman. „Það er yfirleitt þannig að
annað okkar kemur með hugmynd að lagi og
við semjum það saman, svo semjum við sjálf þá
texta sem við syngjum hvort fyrir sig.“ Eruð
þið óskaplega samrýmd? „Ja, við verðum eigin-
lega að vera það, þetta er svo mikil samvinna.
Það er nú samt stundum dálítill systkina bragur
á okkur, við förum að kýta og svona, en við
reynum að halda því í lágmarki.“
Auk þess að starfa með Nóru og eiga von
á barni með Hrafni Fritzsyni, bassaleikara
sveitar innar, er Auður í BA-námi í mannfræði
og ætlar að útskrifast í haust. Barnið á að fæð-
ast um miðjan ágúst en þangað til ætlar Nóra
að sækja fast á tónleikamarkaðinn. „Það er ein-
hvern veginn alltaf þannig að allt gerist í einu.
Við erum reyndar búin að sökkva okkur svo
mikið í að undirbúa útgáfutónleikana að við
erum ekki búin að bóka neitt annað, en stefnum
á að nýta tímann áður en barnið fæðist.“
Nóru skipa, auk Auðar, Egils og Hrafns, þeir
Óskar Kjartansson og Frank Arthur Blöndahl
Cassata. Útgáfutónleikarnir verða í Tjarnarbíói
og hefjast klukkan 20.30.
HELGIN
Himinbrim, barn og BA-próf
Hljómsveitin Nóra fagnar útkomu plötu sinnar Himinbrim í Tjarnarbíói annað kvöld. Auður Viðarsdóttir,
söngkona og hljómborðsleikari Nóru, lofar rosalega fl ottum tónleikum þar sem öll lög plötunnar verða fl utt.
Hún hugsi bara um hljómsveitina núna þótt hún eigi von á barni og sé að ljúka BA-námi.
LAUS VIÐ
MORGUN-
ÓGLEÐINA
Ein af ástæðum
þess að útgáfu-
tónleikarnir
frestuðust
var morgun-
ógleðin sem
Auður glímdi
við á fyrstu
mánuðum
meðgöngunnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Friðrika Benónýsdóttir
fridrikab@frettabladid.is
Laugardagur Áhugafólk um íslenska
tónlist ætti ekki að láta úrslitakvöld
Músíktilrauna fram hjá sér fara. Að
þessu sinni keppa til úrslita Aragrúi,
CeaseTone, For Colourblind People,
Glundroði, Hide Your Kids, In The
Company of Men, Kaleo, Kjurr,
Skerðing, Vök og Yellow Void.
Músíktilraunir hefjast klukkan fimm
og fara fram í Silfurbergi í Hörpu.
Músíktilraunir 2013
Stjörnur
framtíðar
Helgin Íslenskar kvikmyndaperlur á
borð við Hrafninn flýgur og Sódóma
Reykjavík verða sýndar á átján
stöðum um land allt um helgina,
meðal annars í Háskólabíói og Bíó
Paradís. Leikstjórar og aðstandendur
verða viðstaddir fjölmargar sýning-
anna en ókeypis er inn á þær allar.
Nánari upplýsingar á á vef Kvik-
myndamiðstöðvar, kvikmynda-
midstod.is.
Íslensk kvikmyndahelgi
Ókeypis í bíó
Sunnudagur Kjarvalsstaðir Listasafn
Reykjavíkur býður til afmælishátíðar
á Kjarvalsstöðum á morgun. Þann
dag eru 40 ár liðin frá opnun
Kjarvalsstaða. Formleg hátíðarhöld
hefjast klukkan tvö og meðal þess
sem boðið verður upp á í tilefni dags-
ins eru leiðsögn um Kjarvalsstaði,
fræðsla um uppbyggingu hverfisins
í kringum safnið og leiðsögn um
afmælissýninguna Flæði.
Afmælishátíð Kjarvalsstaða
40 ár frá opnun
SÝNINGIN
Síðasta sýningarhelgi sýn-
ingarinnar Origami– brot
í brot í Gerðubergi er nú
um helgina. Á sýningunni
sem opin er á laugardag og
sunnudag má sjá pappírs-
listaverk eftir hjónin Dave
og Assiu Brill. Þau
hafa hannað fjölda
bréfbrota,
gefið út bækur,
fengist við
kennslu og
sýnt verk sín
víða.
HÓFST Í JAPAN
Sýningin er samstarfsverk-
efni Gerðubergs og félags-
ins Origami Ísland þar
sem þeir Björn Finnsson
og Jón Víðis eru í forsvari.
Á morgun klukkan milli
eitt og fjögur tekur Björn
á móti gestum og leiðir
þá í allan sannleikann um
leyndardóma Origami.
Það á rætur sínar að
rekja til Japans sautjándu
aldarinnar, þaðan kemur
orðið Origami sem þýðir
bókstaflega pappírsbrot.
TRÖNUR
Flestir kannast
við trönur í
origami-broti,
froska, gogga
og skutlur en á
sýningunni má
einnig sjá hestar, flóð-
hestar, ljón, gíraffar, kettir
og mýs auk blóma, vasa,
engla, stjarna, kassa og
kubba auk meistarastykkis
hjónanna heilagan Georg
og drekann og Basiliku-
kirkjuna á Rauða torginu í
Moskvu.
PAPPÍRSBROT
Markmið Origami
er að búa til verk úr
pappír með því að
brjóta hann saman
eftir kúnstarinnar
reglum, að klippa og
líma er alveg bannað.
En origami höfðar ekki
bara til fagurfræðinnar,
stærðfræðingar hafa
stúderað pappírsbrot og
aðferðafræði origami
hefur verið nýtt til þess að
hanna líknarbelg í bíla og
forrit í tölvur.
Margbrotin veröld pappírsarkarinnar
Á Origami-sýningu í Gerðubergi sem lýkur um helgina er margt að sjá.
BARA PAPPÍR
Margvíslegar verur
búnar til úr pappír
má sjá í Gerðubergi
nú um helgina.
Sylvía Erla Scheving
söngkona
Til Kefl avíkur
Ég er að fara í afmæli og svo
ætla ég að verja helginni
með kærastanum mínum.
Hann býr í Keflavík svo við
reynum að nýta helgarnar
vel og gera eitthvað saman.
Lilja Katrín Gunnarsdóttir
leikkona
Breiðholt er best
Um helgina ætla ég að kynna
vinum mínum undur Breið-
holtsins og í lok dags eiga
þeir eftir að sannfærast um
að 111 sé eina póstnúmerið
sem er hægt að búa í.
Benedikt Brynleifsson
trommari
Æfi r Sögu Eurvision
Ég er að spila á árshátíð
Bootcamp í kvöld. Svo er ég
að fara að æfa fyrir Sögu
Eurovision. Ætli ég fari ekki
líka í göngutúr með fjölskyld-
unni og viðri hana aðeins.
Logi Bergmann Eiðsson
dagskrárgerðarmaður
Veislustjóri hjá Breiðabliki
Ég hafði hugsað mér að halda upp á þriggja ára
afmæli dóttur minnar um helgina því ég var
lasinn um síðustu helgi og þurftum að fresta
því, en nú er hún líka orðin veik. Ætli ég taki
því ekki bara rólega, fyrir utan að ég verð
veislustjóri á Herrakvöldi Breiðabliks, sem
verður örugglega gaman.
EITTHVAÐ
FYRIR ALLA