Fréttablaðið - 23.03.2013, Side 40
23. mars 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 40
Hnignun kaþólsku kirkjunnar
40 prósent kaþólskra í Róm-
önsku Ameríku segjast sækja
kirkju reglulega og í Argentínu,
heimalandi páfans, er þetta hlut-
fall komið niður í 20 prósent.
Tvö fj ölmennustu ríki kaþ-
ólskra í heiminum eru Brasilía
og Mexíkó, en í báðum þessum
löndum hefur kaþólsk trú verið á
undanhaldi síðustu áratugina.
Árið 1970 voru 90 prósent íbúa
Brasilíu kaþólsk, en þetta hlutfall
var árið 2010 komið niður í 65
prósent.
Í Mexíkó var hlutfall kaþólskra
88 prósent árið 2000, en komið
niður í 83 prósent árið 2010.
Haldi þessi þróun áfram verða
kaþólskir íbúar í Rómönsku
Ameríku innan fárra áratuga
orðnir færri en helmingur allra
íbúa álfunnar.
Í Frakklandi segja aðeins 15 prósent kaþ-
ólskra trúna mikilvæga fyrir sig og kirkjusókn
hefur dregist saman þar á síðustu árum, rétt
eins og fl eiri kaþólskum ríkjum Evrópu.
Í Þýskalandi minnkaði kirkjusókn til dæmis
úr 23 prósentum í 16 prósent árin 2009 til
2011, og á Spáni minnkaði hún úr 31 prósenti
niður í 24 prósent á sama tímabili.
Í Belgíu hefur þróunin orðið einna hröðust,
eins og sést á því að prestum kaþólsku kirkj-
unnar þar í landi hefur fækkað úr 10 þúsund
árið 1967 niður í 3.659 árið 2009. Árið 2009
voru einungis 58 prósent nýfæddra barna skírð
og einungis 26 prósent gift u sig í kirkju, en
1967 voru þessar tölur 94 prósent fyrir skírnir
og 86 prósent fyrir gift ingar.
72%
íbúa Rómönsku Ameríku eru
kaþólskir, en árið 1910 voru
þeir 90 prósent íbúa álfunnar.
Mexíkó
Brasilía
Frakkland
Belgía Þýskaland
Argentína
NORDICPHOTOS/AFP
FRANS
PÁFI
Vonlítið
verk að
snúa
þróun-
inni við.
GRAFÍK/JÓNAS
Aðalfundir deilda KEA
verða haldnir sem hér segir:
Deildarfundur Út-Eyjafjarðardeildar
Verður haldinn þriðjudaginn 2. apríl kl. 20:00 í
Safnaðarheimilinu Dalvíkurkirkju
Deildarfundur Þingeyjardeildar
Verður haldinn miðvikudaginn 3. apríl kl. 20:00 á
Veitingahúsinu Sölku á Húsavík
Deildarfundur Austur-Eyjafjarðardeildar
Verður haldinn fimmtudaginn 4. apríl kl. 16:00 á
Öngulsstöðum Eyjafjarðarsveit
Deildarfundur Akureyrardeildar
Verður haldinn fimmtudaginn 4. apríl kl. 20:00 á Hótel KEA
Deildarfundur Vestur-Eyjafjarðardeildar
Verður haldinn mánudaginn 8. apríl kl. 16:00 í Leikhúsinu
á Möðruvöllum
Á fundunum verða venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt
samþykktum um störf deilda félagsins.
Deildarstjórnir
Þegar pólski kardínálinn Karol Jozef Wojtila varð páfi árið 1978 margefld-ust Pólverjar í trúnni. Þetta var fyrsti pólski páfinn, og sá fyrsti í
meira en 450 ár sem ekki var
ítalskur. Pólverjar eru enn stoltir
af Jóhannesi Páli II., enda átti seta
hans á páfastól sinn þátt í því að
efla með Pólverjum styrk í frelsis-
baráttunni undan stjórn kommún-
ista fyrir tæpum aldarfjórðungi.
Svipaðrar þróunar varð vart
þegar Þjóðverjinn Joseph Alois
Ratzinger var kosinn páfi árið
2005 og tók sér nafnið Benedikt
sextándi. Kaþólskir Þjóðverjar
fylltust eldmóði, en sá eldmóður
entist ekki jafn lengi og hjá Pól-
verjum því strax árið eftir voru
kaþólskir Þjóðverjar dottnir í
sama farið og farnir að dofna í
trúnni á ný.
Búast má við að Argentínu-
menn og Suður-Ameríkumenn
fyllist sambærilegum eldmóði
nú, þegar þeirra fulltrúi er orðinn
páfi. Argentínu maðurinn Jorge
Mario Bergoglio er fyrsti fulltrúi
Rómönsku Ameríku á páfastóli og
raunar fyrsti fulltrúi þriðja heims-
ins svonefnda.
Umdeildur heima fyrir
Hafi kardínálarnir í Róm, sem
völdu hinn argentínska Bergoglio
til að verða páfi, gert sér vonir um
að með því að leita út fyrir Evrópu
gæti það átt þátt í að afla kirkj-
unni fylgis á ný, að minnsta kosti
í Suður-Ameríku ef ekki víðar um
heim, þá kemur á móti sú staðreynd
að Bergoglio hefur verið nokkuð
umdeildur í Argentínu.
Forseti Argentínu, Cristina
Fernandez de Kirchner, hefur átt í
harkalegum deilum við hann, meðal
annars út af áformum hennar um
að lögleiða hjónabönd samkyn-
hneigðra. Bergoglio kardínáli and-
mælti þeim áformum harðlega, en
hún tók fast á móti og sagði hann
vera forngrip sem vekti upp óþægi-
leg hugrenningatengsl við miðaldir
og rannsóknarrétt kaþólsku kirkj-
unnar.
Þá hvílir enn skuggi yfir fortíð
Bergoglios frá tímum herforingja-
stjórnarinnar í Argentínu á áttunda
áratugnum. Hann þótti leiðitamur
og hefur verið sakaður um að hafa
komið til hjálpar þegar hrottar her-
foringjastjórnarinnar réðust gegn
prestum kirkjunnar, rændu þeim
og pyntuðu.
Afturhald
Æðsta stjórn kaþólsku kirkjunnar,
með páfann sjálfan í fararbroddi,
hefur jafnan haft mikil áhrif á allan
hinn kaþólska heim, og raunar langt
út fyrir raðir hans. Orð páfa hafa
jafngilt lögum og stjórnvöld í kaþ-
ólskum ríkjum hafa forðast að setja
lög sem stangast illilega á við kenn-
ingar kirkjunnar.
Pólitískt hlutverk páfa virðist
hins vegar í seinni tíð hafa skroppið
saman og einskorðast nú að mestu
við óbilgjarna andstöðu gegn getn-
aðarvörnum og samkynhneigð.
Páfinn stendur vörð um trúarlega
helgi kynlífs og neitar að horfast í
augu við raunveruleikann, jafnvel
þótt hinn nýkjörni Frans hafi ein-
hvern tímann viðrað þá skoðun að
smokkanotkun geti verið réttlætan-
leg – enda tók hann fram að smokk-
anotkun gæti einungis verið kirkj-
unni þóknanleg ef hún þjónaði þeim
tilgangi að koma í veg fyrir smit-
sjúkdóma. Hvað varðar hlutverk
smokka sem getnaðarvarnar þá
hefur hann aldrei hvikað frá stefnu
kirkjunnar svo vitað sé.
Einstrengingsháttur
Þessi einstrengingslega afstaða
yfirstjórnar kirkjunnar í
kynferðis málum hefur hins
vegar gert það að verkum að
kirkjan einangrast og fjarlægist
almenning, jafnvel í mörgum
kaþólsk ustu löndum Evrópu og
Suður-Ameríku.
Mörg helstu vígi kaþólsku kirkj-
unnar í Evrópu, svo sem Írland,
Frakkland, Pólland og jafnvel
Ítalía, eru farin að láta á sjá.
Kirkjusókn minnkar, úrsögnum
úr kirkjunni fjölgar og mikilvægi
kirkjunnar fyrir þá, sem skráðir
eru í hana, minnkar jafnt og þétt
í skoðanakönnunum.
„Innviðir kirkjunnar eru orðnir
mun veikari, hvort sem litið er á
tölfræðina eða vitsmunahliðina,“
hefur bandaríska fréttastofan AP
eftir belgíska þingmanninum Rik
Torfs, sem jafnframt er prófess-
or í kirkjulögum við háskólann í
Leuven.
Hneyksli
Linnulít i l l fréttaf lutningur
árum saman af kynferðisbrotum
kaþólskra presta víða um heim
hefur, ásamt tilraunum yfirmanna
þeirra til að þagga þau niður, orðið
til þess að grafa enn hraðar undan
kaþólsku kirkjunni. Hún fjarlægist
almenning og einangrast.
Á Írlandi er ástandið þannig að
innan við þriðjungur landsmanna
lítur jákvæðum augum á kaþólsku
kirkjuna, og samkvæmt könnun
írska skoðanakönnunarfyrirtækis-
ins Amarach vega kynferðisbrota-
málin þar þyngst ásamt tilraunum
yfirstjórnar kirkjunnar til að þagga
þau niður.
Kaþólikkar í Bandaríkjunum
segja sömuleiðis að kynferðisbrot
gegn börnum og önnur kynferðis-
hneyksli séu stærstu vandamál
kaþólsku kirkjunnar nú um stundir.
Andóf
Jafnt almenningur sem pólitísk-
ir ráðamenn í kaþólskum ríkjum
ganga í síauknum mæli gegn boð-
skap kirkjunnar.
Víðast hvar sér almenningur í
annars ramm kaþólskum löndum
ekkert athugavert við að nota
getnaðarvarnir, og hjónabönd
samkynhneigðra hafa verið lög-
leidd bæði á Spáni og í Portúgal,
þrátt fyrir andstöðu kirkjunnar.
Sama hefur gerst í Argentínu og
fleiri kaþólskum löndum Suður-
Ameríku.
Í Mexíkóborg tóku yfirvöld sig
til árið 2009 og lögleiddu á einu
bretti fóstureyðingar, líknardráp,
hjónabönd samkynhneigðra og
rétt samkynhneigðra hjóna til að
ættleiða börn.
Allt þetta gengur í berhögg við
yfirlýsta stefnu páfakirkjunnar.
Og vart er sjáanlegt annað en að
þessi þróun haldi áfram þannig að
hinn kaþólski heimur fjarlægist æ
hraðar kirkju sína.
Kaþólskir gegn kirkju páfans
Víða um heim hefur kaþólska kirkjan átt í vök að verjast, rétt eins og flest önnur trúarbrögð, Óþrjótandi kynferðisbrotamál
og einstrengingsleg afstaða gagnvart getnaðarvörnum og samkynhneigð gerir illt verra. Erfitt verður fyrir nýjan páfa að
snúa við þeirri þróun, þótt hann sé fyrsti páfinn frá Suður-Ameríku og þyki bæði ljúfur og lítillátur.
KIRKJUSÓKN MINNKAR Kaþólskir á bæn í Frakklandi, þar sem kirkjusókn hefur, rétt eins og víðar í kaþólskum löndum, dregist
saman á síðustu árum. NORDICPHOTOS/AFP
Guðsteinn
Bjarnason
gudsteinn@frettabladid.is