Fréttablaðið - 23.03.2013, Side 45

Fréttablaðið - 23.03.2013, Side 45
Margt smátt ... Páskablað Hjálparstarfs kirkjunnar 2O13 PI PA R\ TB W A • S ÍA • 1 20 74 4 Enn á Hjálparstarf kirkjunnar erindi við þig, lesandi góður, til að kynna þau viðfangsefni sem að hjálparstarfinu snúa. Við starfsmennirnir viljum fylgja hér úr hlaði breytingum á innanlandsstarfinu, nýjum − og að við teljum, áhrifaríkari leiðum til að hjálpa fólki. Lestu um það hér sem hefur áunnist, með dyggri aðstoð fjölda Íslendinga. Á næstu síðum sérðu víða tilvitnanir í nýútkomið rit, Farsæld. Þar sést ávöxtur viðamikillar vinnu Hjálpar- starfs kirkjunnar og Rauða kross Íslands við að kanna eðli og orsakir fátæktar hér á landi. Með nýrri orðræðu, nýjum lausnum, er fjallað um farsæld fyrir alla. Aðaláherslan er lögð á að einstaklingurinn sem höllum fæti stendur, sé styrktur og efldur með von og vilja til að leggja allt sitt af mörkum − og þar mæti samfélagið honum. Hvatning og umbun þurfa að fara saman í slíku uppbyggingarstarfi. Samábyrgð samfélagsins og ábyrgð einstaklingsins verður að haldast í hendur. Starfsfólk Hjálparstarfsins hefur séð margan manninn koma algerlega niðurbrotinn og eygja litla von en séð hann, eftir ráðgjöf og hvatningu, ganga hnarreistan og glaðan aftur til móts við lífið. Þannig viljum við sjá fleiri. Páskasöfnun Hjálparstarfsins er helguð innanlands- aðstoð. Þú hefur fengið valgreiðslu senda í heima- bankann þinn. Við biðjum um liðsinni þitt. Með þakklæti og ósk um gleðilega páska. Starfsfólk Hjálparstarfs kirkjunnar. Óttinn – ráðandi afl í bókhaldi heimilisins Ein tegund ráðgjafar sem Hjálparstarf kirkjunnar býður upp á er heldur óvenjuleg fjármálaráðgjöf. Þar er minna horft til talna, prósenta og mínusútkomu, meira hugsað um tilfinningar sem tengjast fjármálum. Það gefur góða raun. Sigurður Erlingsson ráðgjafi hefur langa reynslu og telur brýnast að ráðast fyrst að óttanum. „Þegar okkur líður illa, þá leitum við leiða til að hugga okkur, deyfa sársaukann. Við huggum okkur og til að létta á samviskunni segjum við: „Ég leyfi mér aldrei neitt, ég kaupi mér þetta bara núna!“ Það þarf oft ekki að vera eitthvað stórt, það getur bara verið nammipoki sem fólk gúffar í sig á leiðinni heim því það átti ekki nóg til að kaupa handa öllum heima. Eftir situr samviskubit, sem síðan elur á meiri vanlíðan.“ Sjá alla greinina á bls. 9. Betri leiðir − meiri árangur Umræðan um f átækt þarf að vera l ausna- miðuð. Fátækt er ekki náttúrulögmál en samt halda því til haga að viðvarandi f átækt rænir fólk mikilvægum lífsgæðum og er því óviðunandi. Farsæld – baráttan gegn fátækt útg. Hk og RKÍ 2O12 Börn s em búa við f átækt eru í hættu á að skaðast heilsufarslega og félagslega a uk þess sem greina m á beina fylgni m illi f átæktar á uppvaxtarárum og lítillar menntunar er fram líða stundir. Farsæld – baráttan gegn fátækt útg. Hk og RKÍ 2O12 Starfsmenn Hjálparstarfs kirkjunnar eru sjö alls. Á myndina vantar einn félagsráðgjafa og félagsráðgjafarnema sem er í starfsþjálfun.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.