Fréttablaðið - 23.03.2013, Side 46
Framkvæmdastjóri: Jónas Þ. Þórisson
Margt smátt, 1. tbl. 25. árg. 2O13
Ábyrgðarm.: Anna M. Þ. Ólafsdóttir
Umbrot: PIPAR/TBWA
Prentun: Ísafoldarprentsmiðja
Í huga flestra vinnur sjálfboðaliði í þágu góðra
málefna án þess að þiggja laun fyrir. Þetta má til
sanns vegar færa, en þetta með launin er ekki
allskostar rétt. Þau eru ríkuleg í þakklátu brosi,
traustu handtaki og oft hlýju faðmlagi. Slík laun
rýrna heldur ekki í verðbólgu nútímans.
Þurfum að þekkja lagerinn vel
Ég er þakklát fyrir að hafa komist í hinn góða hóp
sjálfboðaliða hjá Hjálparstarfi kirkjunnar. Við erum
átta sem vinnum við fataúthlutun einu sinni í viku. Við
fáum mikið af góðum og vönduðum fatnaði og stoppar
hann stutt í hillunum, en einnig kemur vandaður
fatnaður sem nýtist okkur ekki, t.d. vegna þess að
hann er ekki í tísku lengur og fáir sníða og sauma upp
úr gömlu í dag, hvað þá að venda eins og það var
kallað þegar ég var að alast upp. En ekkert fer til
spillis. Það sem ekki hentar fólkinu okkar rennur til
Krisniboðssambandsins sem nýtir hann erlendis. Við
flokkum eins nákvæmlega og við getum til að hafa
betri yfirsýn og geta hjálpað fólki að finna það sem
það vantar. Tískan er harður húsbóndi. Skjólstæðingar
okkar eru í flestum tilfellum barna fjölskyldur, oft fólk
af erlendu bergi brotið, en Íslendingum hefur fjölgað
mikið. Það sem mér finnst þó eftirtektarvert er að eldri
borgarar koma sjaldan. Ef til vill ólst það upp við meiri
sparnað og nægjusemi en nú tíðkast. Margir minnast
þess eflaust að það voru til ef til vill tvenn hvunndags-
föt og ein sunnudagaföt og þar með var það upptalið.
Ég held að oft sé erfitt fyrir efnalitla foreldra að
uppfylla fataóskir stálpaðra barna og unglinga. Tískan
er harður húsbóndi.
Takk fyrir fötin!
Skjólstæðingar okkar eru yfirleitt mjög þakklátir.
Sumum virðist erfitt að koma í fyrsta skipti, en ég verð
vör við að það breytist og margir nýta sér að koma í öll
4 skiptin, sem hver einstaklingur fær á árinu. Við erum
þakklát öllu því góða fólki sem hefur sent okkur föt og
ýmsa nytjahluti árum saman, án þeirra væri engin
fataúthlutun. Að vera sjálfboðaliði fyrir Hjálparstarf
kirkjunnar er gefandi starf, hér er gott að vera hjá
góðu fólki, og alltaf hlakka ég til þriðjudaganna.
Sigríður Ásgeirsdóttir
Sjálfboðaliði í fataúthlutun
2 – Margt smátt ...
Hjá Hjálparstarfi kirkjunnar er hægt að fá
ókeypis föt á fjölskylduna. Það nýtist barnafólki
sérstaklega vel enda börnin fljót að vaxa upp úr
fötunum sínum.
Sigríður Ásgeirsdóttir er önnur frá vinstri í þéttum hópi sjálfboðaliða í fatahúthlutun.