Fréttablaðið - 23.03.2013, Side 54

Fréttablaðið - 23.03.2013, Side 54
KYNNING − AUGLÝSINGFerðir LAUGARDAGUR 23. MARS 20134 Dohop er einföld leitarvél á netinu sem auðveldar fólki að finna ódýr flug, hótel og bílaleigur um allan heim. Dohop. is leitar hjá fjölda síðna og raðar niðurstöðum í röð eftir verði. Not- andinn velur svo þá niðurstöðu sem honum líst best á og bókar ferðina á síðu flugfélags eða ferða- skrifstofu. „Dohop er leitarvél eins og Google, nema sérsniðin fyrir flug, hótel og bílaleigubíla,“ segir Kristján Guðni Bjarnason, fram- kvæmdastjóri Dohop. Hvað gerir Dohop? Margir kannast við að eyða mörg- um stundum í að finna ódýrt og gott f lug á áfangastað, einkum þegar ekki er til beint flug á milli staða. Hugmyndin að Dohop kom einmitt upp á slíkri stundu þegar einn stofnenda þess eyddi kvöld- stund við að finna heppilegt og ódýrt f lug frá Suður-Frakklandi til Íslands. Til að finna góða og ódýra leið þurfti hann að leita á fjölmörgum vefsíðum flugfélaga og ferðaskrifstofa, púsla saman mögulegum flugleiðum og reikna út heildarverð í höndunum. Í dag gerir Dohop þetta á nokkrum sek- úndum. Þín eigin ferðaskrifstofa Sérstaða Dohop er einkum fólgin í f lugleitarvélinni en hún tengir saman flugleiðir sem aðrar leitar- vélar geta ekki. Til dæmis má nefna ferð til Mallorca á Spáni en leit á Dohop sýnir samsetta ferð með easyJet og WOW air. Ferð sem ekki er að finna annars stað- ar á netinu og kostar um 54.000 krónur með tveimur aðskildum bókunum. Aðrar síður myndu annað hvort segja að ekki væri í boði að fara frá Íslandi til Mallorca eða rukka yfir hundrað þúsund fyrir flugið. Verð á nótt fyrir tvo á þriggja stjörnu hóteli á Mallorca er frá 6.000 krónum á Dohop. Því getur tveggja vikna ferð til Mall- orca á þriggja stjörnu hóteli verið undir 100.000 krónum á mann. Hótel og bílaleigur Hjá Dohop er einnig auðvelt að finna hótel og bílaleigubíla. „Við erum líka með leitarvél fyrir hótel og bílaleigu- bíla og því geta ferðalangar farið á einn stað og bókað allt fríið sitt. Við vitum öll hversu mikill tími getur farið í að leita til dæmis að ódýru en jafnframt góðu hóteli. Jafnan fara einstaklingar á margar vefsíður og bera saman verð, staðsetningu, upplifun annarra og svo framvegis. Þetta getur verið mjög tímafrekt,“ segir Kristján. Hótelleit Dohop nær í upplýsingar frá yfir tuttugu síðum og setur saman á einn stað. Upplýs- ingarnar eru fengnar frá helstu hótel- leitarsíðum heims, svo sem Booking. com, Hotels.com og Expedia, og því nóg að fara á dohop.is. Það sama gildir þegar leigja þarf bíl. Dohop sýnir sam- setta ferð með easyJet og WOW air til Mallorca en hana er ekki að finna annars staðar á netinu. Ferðin kostar um 54.000 krónur með tveimur aðskildum bókunum. Aðrar síður myndu annaðhvort segja að ekki væri í boði að fara frá Íslandi til Mallorca eða rukka yfir hundrað þúsund fyrir flugið. MYND/GVA Með tilkomu Dohop er hægt að púsla saman mögulegum flugleiðum og reikna út heildarverð á nokkrum sekúndum en áður gat það tekið heila kvöldstund. Ert þú að borga of mikið fyrir fríið? Á Dohop er hægt að finna ódýrt flug, bílaleigubíl og hótel á einum stað. Síðan hentar sérstaklega vel þegar ekki er til beint f lug á milli staða. Sérstaða Dohop er einkum fólgin í því að síðan tengir saman flugleiðir sem aðrar leitarvélar geta ekki. Arnarker í Ölfusi er stór og mikill hellir skammt frá Þorlákshöfn. Hann hentar vel þeim sem eru vel á sig komnir því hellirinn er mikið hruninn og þarf að ganga inn eftir honum nánast öllum á hvössu stórgrýti. Hellirinn er um 500 metra langur, hellis- göngin eru hvergi þröng utan smá þrengsla rétt fremst en víða er mjög hátt til lofts og vítt til veggja. Í hellinum er oft mikill ís síðla vetrar og fram á vor og verður því að fara með enn meiri gát. Nauðsynlegt er að taka með sér gott ljós til að njóta ískertanna sem eru í hellinum síðvetrar og skapa mikla ævintýrastemningu. Skilti er við veginn (nr. 42, Krýsuvíkurvegur) og er leiðin að hellinum stikuð og því auðvelt að finna hann. Raufarhólshellir er einn þekkt- asti hellir á Suðvesturlandi. Hann er á leiðinni til Þorláks- hafnar. Varasamt er að fara í hellinn á veturna og fram eftir vori vegna ísmyndana sem í honum eru en þá er hellirinn líka fallegastur á að líta. Nauðsynlegt er að hafa góð ljós til að skoða Raufarhólshelli því hann er stór og mikill en heildarlengdin er 1.360 metrar. Þá er yfir stórgrýti að fara mestalla leiðina og mikil- vægt að menn séu í góðu formi og vel útbúnir. Flóki er stærsti hellir í Dauða- dölum sunnan við Helgafell ofan Hafnarfjarðar. Hellirinn er um þúsund metrar að lengd. Flóki teygir arma sína víða og er einn sérkennilegasti og flóknasti hellir landsins og nafn hans af því dregið enda átti sauðfé það til að ráfa þangað inn og rata ekki út aftur. Hellismunnarnir eru fjölmargir. Hnéhlífar eru þarfur búnaður þegar Flóki er sóttur heim því víða þarf að beygja sig, vera á fjórum fótum og til að fara um allan hellinn þarf að leggjast á magann sums staðar. Auðvelt er fyrir ókunna að villast í hellinum. Gjábakkahellir á Þingvöllum er opinn í báða enda og því óþarfi að ganga bæði fram og til baka. Heildarlengd hellisins er 364 metrar. Gjábakkahellir hefur margt að bjóða hellaförum. Hellismunnarnir eru örskammt frá vegi, í hellinum er allajafna töluvert um ísmyndanir, þar eru spenar, storkuborð og ýmsar aðrar hraunmyndanir sem gleðja augað. Guðni Gunnarsson og Gunnar Guðnason tóku myndirnar með greininni fyrir utan myndina af hellinum Flóka. Upplýsingar um fleiri hella er að finna á www. speleo.is. Leiðangur inn í iður jarðar Hellaferðir heilla marga enda skemmtileg upplifun að feta sig eftir dimmum göngum neðanjarðar. Ekki þarf að leita langt eftir áhugaverðum hellum á höfuðborgarsvæðinu. Hellarannsóknarfélagið bendir á nokkra aðgengilega hella í nágrenni Reykjavíkur á vefsíðu sinni www.speleo.is. Þar er einnig að finna fréttir og leiðbeiningar um hvernig best sé að bera sig að í hellaleiðöngrum. NAUÐSYNLEGUR BÚNAÐUR Hellaferðir krefjast ekki mikils útbúnaðar en einhver lágmarks- búnaður er þó nauðsynlegur. Ljós: Best er að vera með tvö ljós. Eitt höfuðljós, en þannig er auðveldara að nota hendurnar til að styðja sig, og annað lítið vasaljós til vara. Nær útilokað er að komast ljóslaus leiðar sinnar í myrkum helli. Kerti og kyndlar eru ótryggt ljós auk þess sem af þeim hlýst sóðaskapur. Hjálmur: Best er að vera með hjálm. Reiðhjólahjálmur dugar en húfa er betra en ekkert því auðvelt er að skera sig á skörpum nibbum. Vettlingar: Til að forðast skrámur og meiðsl á höndum. Skór: Góðir gönguskór með stuðningi því annars er auðvelt að misstíga sig. Mikilvægt er að láta vita af sér eða skilja eftir einhver ummerki á yfirborði, eins og yfirhafnir eða bakpoka. Þá er afar mikilvægt að ganga vel um og skilja ekki eftir rusl í hellum eða skemma myndanir í hellunum.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.