Fréttablaðið - 23.03.2013, Síða 55
BLÚS, BLÚS, BLÚS
Blúshátíð í Reykjavík 2013 verður haldin 23.
til 28. mars. Aðalgestir hátíðarinnar í ár verða
hjónin Lucky og Tamara Peterson og goðsögn-
in Guitar Shorty. Þrennir stórtónleikar verða á Hilton
Reykjavík Nordica, þriðjudags-, miðvikudags- og
fimmtudagskvöld, skírdag.
BJARGVÆTTUR
Hjörtur Jóhann leikur
einleikinn Grande í Þjóð-
leikhúskjallaranum í
kvöld og annað kvöld.
Nýverið fékk hann styrk
Leiklistarráðs til að
vinna að Bláskjá, nýju
verki Tyrfings Tyrfings-
sonar, með leikhópnum
Óskabörn ógæfunnar.
Verkið verður frumsýnt
í janúar.
MYND/STEFÁN
Við kærastan ætlum til Barcelona um páskana og ég hlakka svo mikið til að hitta hana að það er
vandræðalegt; ég læt eins og smá-
krakki,“ segir Hjörtur Jóhann, sem eftir
leiksigra helgarinnar ætlar að hendast
í flugvél og svífa á fund unnustu sinnar
Brynju Björnsdóttur, sem síðan í haust
hefur stundað meistaranám í Lund-
únum.
„Við höfum gætt þess að hafa aldrei
meira en mánuð á milli endurfunda úti
eða hér heima en úr því við ákváðum
að eyða páskunum á Spáni höfum við
verið að spara og ekki hist síðan í janú-
ar. Það er allt of langur tími og tekur
virkilega á,“ útskýrir Hjörtur og brosir
breitt af tilhlökkun.
„Brynja elskar páskaegg og hefur
verið að safna þeim upp á síðkastið. Ég
tek með mér stórt egg að heiman og
við förum með þau öll til Barcelona en
maulum kannski eitt saman í Lundún-
um áður en við fljúgum til Spánar.“
SMITAÐIST AF BAKTERÍUNNI
Hjörtur er sonur leikaranna Jóns
Hjartar sonar og Ragnheiðar Tryggva-
dóttur og bróðir leikkonunnar Helgu
Brögu.
„Að vera leikarabarn vó frekar á móti
því að ég yrði leikari sjálfur en hitt. Við-
kvæði foreldra minna var að ég gerði
endilega eitthvað annað við líf mitt en
að verða leikari, ef það væri þá það sem
ég vildi. Maður þarf nefnilega að hafa
ástríðu fyrir leiklist til að leggja hana
fyrir sig því starfið er ótraust og fæstir
fara í það peninganna vegna. Manni þarf
því að þykja gaman í vinnunni til að
ná fram því besta úr sjálfum sér,“ segir
Hjörtur, sem eftir menntaskóla ætlaði
sér sannarlega ekki að verða leikari.
„Ég dreif mig í staðinn upp í háskóla
til að læra heimspeki og landafræði en
tók líka þátt í Stúdentaleikhúsinu og
smitaðist þar af ólæknandi leiklistar-
bakteríu. Ég sem hafði séð fyrir mér að
leikarastarfið væri eintómur hórdómur,
vesen og leiðindi uppgötvaði hvað leik-
húsið er ótrúlega skemmtilegt. Ég fór því
í inntökupróf í Listaháskólanum, komst
inn og útskrifaðist sem leikari í fyrra.“
LÆRDÓMSRÍKT OG GEFANDI
Hjörtur er björgunarsveitarmaður í
Flugbjörgunarsveitinni og fjalla- og
jöklaleiðsögumaður hjá Íslenskum
fjallaleiðsögumönnum.
„Ég er alinn upp við útivist og hef
alltaf haft yndi af fjallgöngum. Því ákvað
ég að sækja um í Flugbjörgunarsveitinni
þegar ég var átján og sá auglýsingu
ELSKAR PÁSKAEGG
RÓMANTÍSKUR Hjörtur Jóhann Jónsson er leikari og björgunarsveitarmaður.
Hann ætlar að elta ástina um páskana en fyrst leika stórskrýtin mæðgin.
hann & hana
Dásamlegar
fermingargjafir
Rúmföt frá 8.390 kr
Sendum frítt
úr vefverslun
lindesign.is
Ofin úr 100% Pima bómull
Dúnsæng 24.990 kr
Eingöngu 100% andadúnn
íslenska
hönnun
Veljum
16.900
Vertu vinur
á Facebook
Skoðið laxdal.is/yfirhafnir
Save the Children á Íslandi