Fréttablaðið - 23.03.2013, Page 84

Fréttablaðið - 23.03.2013, Page 84
KYNNING − AUGLÝSINGFerðir LAUGARDAGUR 23. MARS 20136 Páskarnir eru mikill ferðatími og flykkist fólk út um land allt á hina ýmsu staði. Mjög margir dvelja í sumarbústöðum, aðrir fara á skíði og annar hópur fer í fjalla- og jöklaferðir á jeppum og snjó- sleðum auk þess sem göngu garpar leggja land undir fót. „Við erum ekki með neinn sérstakan viðbún- að en við tryggjum hins vegar að fólk sé til staðar hjá öllum björg- unarsveitum svo þær séu til tækar ef þörf krefur,“ segir Jónas Guð- mundsson hjá Landsbjörg. Margir á ferð Jónas segir ferðamannastraum margfaldast yfir páska og að oft fjölgi útköllum í kjölfarið þótt ekki sé það gefið. „Þetta fer mjög eftir veðri. Stundum getur meira að segja gott veður leitt til f leiri slysa, einfaldlega vegna þess að það hvetur f leiri til útivistar og ferðalaga. Samanborið við venju- lega viku eru þó oftast fleiri útköll um páska en venjulega.“ Nesti og teppi Góð regla er að hafa ávallt með sér nesti og yfirbreiðslur í bíln- um sé ætlunin að halda af stað í langferð. „Við höfum lent svolít- ið í því í vetur að fólk hefur verið að festa sig og er ekki með neitt nesti né yfir hafnir í bílnum. Það getur verið vont að þurfa að bíða í nokkra klukkutíma eftir aðstoð í köldum bíl með ekkert að borða og ekkert til að hlýja sér. Þetta þarf ekki að vera meira en teppi eða svefnpoki og tveir kexpakkar.“ Ferðaáætlun Ferðaáætlun er gott öryggistæki og inn á vefnum www.safetravel. is er hægt að gera slíka. „Það auð- veldar leitarfólki mikið að leita ef ferðaáætlun liggur fyrir. Leitin verður markvissari og það kemur í veg fyrir að tími fari til spillis við að leita á röngum stöðum.“ Fjarskiptatæki með í för Fjarskiptatæki sem virka á svæð- inu þurfa að vera meðferðis hvort sem það er farsími, talstöð eða gervihnattasími. „Ég mæli því með að fólk kanni hvernig sam- band er á því svæði sem á að ferðast um áður en lagt er af stað. Einnig er mikilvægt að kynna sér veðurspá og almennar aðstæður á svæðinu.“ Allt eftir aðstæðum Útbúnaður þarf að vera eftir að- stæðum og gott er að fara vel yfir hann með góðum fyrirvara. „Hvort sem um er að ræða bifreið, fatnað, skyndihjálpartösku og fleira. Allt þarf að vera búið eftir aðstæðum og gott er að vera við öllu búin,“ segir Jónas að lokum og bætir við. „Inni á Safetravel er líka að finna lista yfir tillögur að búnaðarlistum fyrir f lestar teg- undir ferða.“ Förum í örugga ferð Um páska leggja margir land undir fót. Jónas Guðmundsson verkefnastjóri Slysavarnarfélags Landsbjargar segir mikilvægt að vera með réttan útbúnað og undirbúa sig vel. Þannig aukist líkur á góðu ferðalagi og góðum minningum. Jónas segir allt þurfa að vera búið eftir aðstæðum og að gott sé að vera við öllu búinn þegar haldið er í ferðalag. MYND/VILHELM ÁHUGAVERÐ SÖFN Í LONDON Fjöldi Íslendinga fer til Lundúna árlega. Oxford Street, verslanir og veitingastaðir eru fastir áfangastaðir ferða- langanna. Þeir sem vilja gerast menningarlegir geta valið úr fjölda safna í stórborginni. Þau helstu eru: British Museum. Heimsins elsta þjóðminjasafn og einn helsti viðkomustaður ferðamanna enda kostar ekkert inn. Safnið opnaði árið 1759 og í því er að finna sex milljónir muna frá öllum heimshornum. National Gallery. Hér má finna listaverk eftir listamenn á borð við Michaelangelo og Van Gogh. Science Museum. Vísindasafnið er á sjö hæðum og þar er að finna allt um vísindaafrek mannsins allt frá 1829. National Maritime Museum. Í sjóminjasafninu er til dæmis hægt að sjá blóði drifinn jakka Nelsons aðmíráls sem hann klæddist á bardaganum við Trafalgar. Tower of London er að hluta virki frá miðöldum og að hluta safn. Byggingin hefur þjónað mörgum hlut- verkum, meðal annars sem fangelsi. Veistu hver ég var? Siggi Hlö Laugardaga kl. 16 – 18.30 INNBROTUM FÆKKAR Í nýjustu tölum um afbrotatíðni frá Ríkislögreglustjóra kemur fram að innbrotum hefur fækkað úr 2.700 innbrotum í 1.300 á milli ára, eða um 50 prósent. Þó að svo sé er þarft að minna fólk á að ganga vel frá híbýlum sínum áður en haldið er í lengra frí. Á heimasíðu Sjóvá er ráðlagt að einhver sé fenginn til að fylgjast með eigninni komi eitthvað upp á. Þá er gott að taka rafmagnstæki úr sambandi. Þjófar leita ummerkja um að enginn sé heima og því er gott að láta þann sem fylgist með eigninni fjarlægja póst sem safnast fyrir. Þá er hægt að fá tímastilli á ljós sem kveikja og slökkva og fæla ef til vill frá þjófa.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.