Fréttablaðið - 23.03.2013, Side 94
23. mars 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 58
3 Borgen
Birgitte Nyborg í túlkun Sidse Babett
Knudsen er sennilega ástsælasta
persóna í sjónvarpsseríum seinni
tíma. Þessi skelegga kona, sem í
fyrstu seríunni varð fyrst kvenna til
að verða forsætisráðherra Danmerk-
ur, nýtur ómældrar aðdáunar og elsku
sjónvarpsáhorfenda, jafnt á Íslandi
sem í Danmörku. Þættirnir eru líka
vel skrifaðir og hlutfallið milli póli-
tískra átaka og dramatíkur í einkalífi
persónanna í hárfínu jafnvægi.
Átökin á fréttastofu sjónvarps-
stöðvar, jafnt fagleg sem persónuleg,
gefa þáttunum aukna vídd. Hver áhorfandi á sér sína uppáhalds-
persónu sem hann stendur með í gegnum þykkt og þunnt og
sviptingarnar í pólitíkinni og á fréttastofunni tryggja að þriðja
serían, þar sem Nyborg reynir að koma sér á framfæri í póli-
tíkinni á ný eftir að hafa tapað í kosningum, er jafnfersk og sú
fyrsta. Sunnudagskvöld eru sýningarkvöld RÚV á Borgen og því
fylgir að matarboð, bíóferðir, leikhúsferðir og önnur sósíalísering
eru ekki lengur til umræðu á Íslandi á sunnudagskvöldum. Við
erum öll að horfa á Borgen eins og sunnudagskvöldsstatusar á
Facebook bera ljósasta vitnið um.
4 Boss
Kelsey Grammer (Frasier) sýnir á sér
nýja hlið í þessum mögnuðu þáttum
sem hafa hlotið mikið lof gagn-
rýnenda. Hann leikur Tom Kane,
borgarstjóra Chicago, sem stýrir
borginni eins og herforingi. Hann
svífst einskis til að halda völdum
og ná árangri. En borgarstjórinn á
marga óvini sem eru ávallt tilbúnir
að koma höggi á hann. Hann
berst einnig í laumi við illvígan og
ólæknandi hrörnunarsjúkdóm sem
veldur minnisleysi og gæti gert út
af við stjórnmálaferil hans. Hann
getur ekki treyst sínum nánustu
samstarfsmönnum og jafnvel ekki
sjálfum sér. Grammer á snilldar-
leik í hlutverki Kanes og samspilið
milli hans og nánustu samstarfs-
manna, fjölskyldu, vina og óvina er
ógnvekjandi og áhrifaríkt.
Boss er sýndur á Stöð 2 á mánudags-
kvöldum sem þar með eru einnig úr
leik sem annað en sjónvarpskvöld.
1 Já, ráðherra
Þættirnir Já, ráðherra og síðar Já,
forsætisráðherra eru dálítið sér á
parti í flóru pólitískra sjónvarpsþátta.
Þeir eru breskir og hinn kaldhæðnis-
legi breski húmor er nýttur til hins
ýtrasta. Nigel Hawthorne fer á
kostum sem ráðuneytisstjórinn Sir
Humphrey Appleby sem stjórnar öllu
og hefur ráðherrann Jim Hacker, sem
Paul Eddington leikur, algjörlega í
vasanum. Togstreitan á milli þeirra
bitnar helst á ritara ráðherrans, sem
leikinn er af Derek Fowlds, og er
samleikur þessara þriggja eðalleikara
ógleymanlegur. Þættirnir fóru í fram-
leiðslu 1980 og voru sýndir á RÚV við
miklar vinsældir á níunda og tíunda
áratugnum.
Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is
Baktjaldamakk
og spilling
Borgen og Boss eru meðal vinsælustu sjónvarpsþátta sem
sýndir eru í íslensku sjónvarpi þessar vikurnar. Þeir þættir eru
þó aðeins angi af stærra trendi, en svo virðist sem pólitíkusar
séu hinar nýju stjörnur sjónvarpsþáttanna og hafi tekið við því
hlutverki af löggum og alríkisfulltrúum. Við kíktum á nokkra
þætti um pólitíkusa sem hafa notið og njóta vinsælda.
WEST WING Martin Sheen glansaði í hlutverki forseta Bandaríkjanna.
BOSS Kelsey Grammer fékk
Golden Globe-verðlaun fyrir
túlkun sína á Kane.
THE WIRE Þætt-
irnir sem Jón Gnarr
gerði heimsfræga
á Íslandi í síðustu
borgarstjórnar-
kosningum.
BORGEN Við elskum öll
Birgitte Nyborg og sam-
starfsfólk hennar.
HOUSE OF CARDS Kevin Spacey sýnir snilldarleik í hlutverki Francis Underwood.
JÁ, RÁÐHERRA Þríeykið í ráðuneytinu er öllum ógleyman-
legt.
2 West Wing
Aaron Sorkin á heiðurinn af West Wing-þáttunum sem lýsa lífinu
í Hvíta húsinu með dramatískum hætti. Martin Sheen leikur
forseta BNA og hópur frægra leikara er í hlutverkum starfsfólks
Hvíta hússins. Þættirnir voru framleiddir af NBC og sýndir á
árunum 1999 til 2006 við fádæma vinsældir. Þeir voru reyndar
gagnrýndir fyrir tilfinningasemi og einföldun á valdabaráttunni
í bandarískri pólitík, en áhorfendum var slétt sama og þau kvöld
sem RÚV sýndi þættina var messufall á mannfögnuðum á Íslandi.
5 The Wire
Þættirnir The Wire urðu heimsfrægir á Íslandi eftir þau ummæli Jóns Gnarr í
síðustu borgarstjórnarkosningum að hann vildi ekki mynda borgarstjórn með
neinum sem ekki hefði séð þættina. Sögusviðið er Baltimore og sjónarhornið
víðara en gengur og gerist í slíkum þáttum. Þar koma við sögu pólitíkusar,
lögfræðingar, fjölmiðlafólk og kennarar, svo eitthvað sé nefnt. Þættirnir voru
gerðir af David Simon á árunum 2002-2008, alls fimm þáttaraðir, og eru þegar
orðnir nokkurs konar költ í sjónvarpsþáttageiranum.
islandsbanki.is | Sími 440 4000
Við bjóðum
góða þjónustu
Frumkvöðlasjóður
Íslandsbanka auglýsir
eftir umsóknum um styrki
Frumkvöðlasjóður Íslandsbanka styrkir
verkefni á sviði umhverfismála með
sérstakri áherslu á endurnýjanlega orku,
sjálfbæran sjávarútveg og verndun
hafsvæða. Markmið sjóðsins er að hvetja til
nýsköpunar og þróunar á þessum sviðum.
Heildarupphæð úthlutunar er allt að fimm
milljónum króna. Nánari upplýsingar um
sjóðinn og úthlutunarreglur hans má finna
á vef Íslandsbanka.
Úthlutunardagur er 18. apríl 2013
Sækja skal um á vef bankans
til og með 11. apríl 2013:
www.islandsbanki.is/frumkvodlasjodur
Umsóknum skal fylgja, eftir því sem við á:
· Greinargóð lýsing á verkefninu
· Verk- og tímaáætlun
· Ítarleg fjárhagsáætlun
· Upplýsingar um aðra fjármögnun verkefnis
· Ársreikningur
· Upplýsingar um eignarhald og rekstrarform
6. House of Cards
Nýjasta þáttaröðin um pólitíkusa sem fengið hefur áhorfendur til að límast
við skjáinn er House of Cards. Þar leikur Kevin Spacey bandarískan þingmann,
Francis Underwood, sem stefnir á forsetastólinn. Samkvæmt upplýsingum
um þættina er hann einn sá alspilltasti pólitíkus sem ratað hefur á skjáinn og
við Íslendingar bíðum spennt eftir að einhver sjónvarpsstöðin taki þættina
til sýningar, það er að segja þau okkar sem ekki hafa þegar hlaðið þáttunum
niður af Netflix eða iTunes. Ekki spillir fyrir að í öðrum aðalhlutverkum eru
þau Robin Wright, Kate Maras og Corey Stoll.