Fréttablaðið - 23.03.2013, Blaðsíða 104
23. mars 2013 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 68TÍMAMÓT
„Það er rík hefð hér á svæðinu fyrir
textíl í margs konar mynd og mark-
mið okkar er að gera þá sögu sýni-
lega,“ segir Jóhanna E. Pálmadóttir
á Akri í Húnavatnssýslu. Hún hefur
fengið það hlutverk að byggja upp lista-
miðstöð textíllistamanna í Textílsetri
Íslands, sem er í Kvennaskólanum, og
markaðssetja hana bæði innanlands
og utan fyrir sumarið. Þar eiga lista-
menn, erlendir og íslenskir, að geta
sótt um vist, að lágmarki í mánuð, leigt
herbergi á gömlu heimavistinni og haft
vinnuaðstöðu í skólanum.
Reyndar hófst Jóhanna handa strax
upp úr áramótum við að móta lista-
miðstöðina og er búin að prufukeyra
hana síðan. „Þeir sem hafa prófað eru
hrifnir af þessari gömlu heimavistar-
stemningu,“ segir hún og upplýsir að
sex til sjö geti dvalið þar í einu. „Núna
er hér veflistakona frá Kanada, Katarin
Laruelle, búin að vera frá því í janúar,
ein hollensk, Eveline de Lange, dvaldi
hér janúarmánuð og þrír nemar, Kukul-
ina, Trine og Pernille, frá textílskóla
Håndarbejdes Fremme UCC í Kaup-
mannahöfn líka.“
Jóhanna er framhaldsskólakennari
að mennt með útsaum sem sérsvið. Er
hún að kenna í listamiðstöðinni? „Ég tók
þær allar í útsaumsnámskeið eitt kvöld-
ið. Sú hollenska var hér bara að nota
aðstöðuna. Hún elskaði myrkrið okkar
og snjóinn þannig að hún vann mikið
með hvítt og svart. Henni fannst æðis-
legt í hvert sinn sem hríðaði, það gaf
henni innblástur. Sú kanadíska hefur
verið í tvenns konar vefverkefnum af
ólíkum toga, annars vegar að setja upp
nýja heimasíðu fyrir okkur, textilsetur.
com og hins vegar að vefa í vefstól. Þar
vinnur hún mikið með ljós og skugga.
Hún setur upp vefina næstum með ann-
arri hendinni, það er ótrúlegt að sjá
hana. Við erum með svo marga vefstóla
uppi við og hún skottast á milli þeirra.“
Jóhanna er nýlega komin frá Kaup-
mannahöfn þar sem hún var, ásamt
fleirum, að kynna íslensku ullina í
sendiráði Íslands. Hún er framkvæmda-
stjóri Textílsetursins í Kvennaskólan-
um og þar hefur hún haldið utan um
útsaum á refli með myndum úr Vatns-
dælu, verkefni sem var sett af stað 2011.
Fjórir metrar eru full saumaðir og tveir
í viðbót langt komnir. „Verkið gengur
mjög vel. Hingað mun koma hver hópur-
inn eftir annan í apríl og maí, alls stað-
ar að af landinu,“ upp lýsir Jóhanna og
tekur fram að fólk borgi fyrir hvern
klukkutíma sem það saumar. „Ég segi
stundum að það sé ekkert vitlausara
að borga fyrir útsaum en inn á golfvöll
en sumum, sérstaklega karlmönnum,
finnst það mjög slæm samlíking!“
gun@frettabladid.is
Gerir sögu þráðlistar
í Húnaþingi sýnilega
Þekkingarsetrið á Blönduósi hefur ráðið Jóhönnu Pálmadóttur, bónda á Akri, í
tímabundið starf vegna uppbyggingar textíllistamiðstöðvar í Kvennaskólanum.
ÚTSAUMSKONA MEÐ MEIRU „Ég segi stundum að það sé ekkert vitlausara að borga fyrir
útsaum en inn á golfvöll,“ segir Jóhanna á Akri.
VirðingReynsla & Þjónusta
Allan sólarhringinn
www.kvedja.is
571 8222
82o 3939 svafar
82o 3938 hermann
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför elskulegrar
móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu
SIGRÍÐAR SALVARSDÓTTUR
fyrrum húsfreyju í Vigur.
Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólkinu
á Dvalarheimilinu Hlíf og á öldrunardeild
FSÍ, fyrir frábæra umönnun og hlýhug í hennar garð.
Hafsteinn Hafliðason Iðunn Óskarsdóttir
Björg Baldursdóttir
Ragnheiður Baldursdóttir Óskar Óskarsson
Bjarni Baldursson
Salvar Baldursson Hugrún Magnúsdóttir
Björn Baldursson Ingunn Ósk Sturludóttir-
barnabörn og barnabarnabörn.
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Sverrir
Einarsson
Kristín
Ingólfsdóttir
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Suðurhlíð 35, Reykjavík • Símar 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is
Alúð - virðing - traust
Áratuga reynsla
Vaktsími:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Allan sólarhringinn
Yndisleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
UNNUR BENEDIKTSDÓTTIR
Hvassaleiti 58, Reykjavík,
sem lést á heimili sínu fimmtudaginn
14. mars verður jarðsungin frá
Hallgrímskirkju þriðjudaginn 26. mars
kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hennar er
bent á Neistann, styrktarfélag hjartveikra barna.
Erla Magnúsdóttir Örn Þórhallsson
Guðrún S. Magnúsdóttir Jón Sveinsson
Þuríður Magnúsdóttir Björn Árni Ágústsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
ERLA GUÐBJÖRG EINARSDÓTTIR
Skógarseli 11, Reykjavík,
lést fimmtudaginn 21. mars á
líknardeild Landspítalans í Kópavogi.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni
miðvikudaginn 27. mars kl. 13.00.
Ólafur Sigurðsson
Einar Oddur Ólafsson
Guðrún Hanna Ólafsdóttir Gunnar Jensen
Sigurður Óli Ólafsson Björg Harðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir mín, tengdamóðir,
amma og langamma,
HULDA MARGRÉT
ÞORGEIRSDÓTTIR
lést 20. mars á Hjúkrunarheimilinu
Droplaugarstöðum. Útför fer fram frá
Bústaðakirkju 27. mars kl. 13.00.
Gunnar Ómar Gunnarsson Bjarndís Árnadóttir
Ísabella Margrét Gunnarsdóttir
Salóme Huld Gunnarsdóttir Sigurður Haraldsson
og barnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur hlýhug og samúð vegna andláts
og útfarar eiginmanns, föður, tengdaföður,
afa og langafa,
ÓSKARS INGÓLFS ÁGÚSTSSONAR
múrarameistara,
Sóleyjarima 3, Reykjavík.
Fyrir hönd aðstandenda,
Anna Jónsdóttir
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur hlýhug og stuðning í veikindum
og við andlát elskulegs eiginmanns míns
og föður okkar,
STEINARS ARNAR
INGIMUNDARSONAR.
Sérstaklega viljum við senda innilegar
þakkir til Tómasar Guðbjartssonar læknis og
frábærs samstarfsfólks hans á deild 12E á LSH við Hringbraut,
starfsfólki hjúkrunarþjónustunnar Karitas og líknardeildarinnar
í Kópavogi fyrir einstaka alúð og umhyggju. Þið eruð yndisleg.
Jóna Margrét Sigurðardóttir
Þór Steinarsson
Hrund Steinarsdóttir
Björk Steinarsdóttir
Leikstjórinn James Cameron kom, sá og
sigraði með Titanic á Óskarsverðlaunahá-
tíðinni 1998. Mynd hans um risaskipið
ósökkvandi sem sökk í jómfrúarferð sinni
hafði malað gull allt árið og orðið fyrsta
kvikmyndin í sögunni til þess að græða
yfir einn milljarð Bandaríkjadollara í miða-
sölunni.
Titanic átti möguleika á að slá eitt
metið enn þegar kom að Óskarsverðlaun-
unum en hún var tilnefnd til fjórtán
verðlauna. Metið átti Ben Húr, sem var á
sínum tíma tilnefnd til tólf verðlauna og
hlaut ellefu. Þar á meðal fékk Charlton
Heston styttu fyrir titilhlutverkið, Hugh
Griffith sem besti leikari í aukahlutverki og
William Wyler fyrir leikstjórn, en auk þess
var Ben Húr valin besta myndin og fékk
verðlaun fyrir tæknibrellur og klippingu.
Titanic fékk einnig verðlaun fyrir bestu
tæknibrellur og klippingu en þar fyrir
utan hirti myndin verðlaun fyrir bestu
tónlistina og besta lagið, My Heart Will Go
On. Þá var Titanic valin besta myndin árið
1998 og Cameron var verðlaunaður fyrir
leikstjórn. Enginn leikaranna komst þó á
blað en bæði Kate Winslet og Gloria Stuart
misstu af verðlaunum fyrir bestan leik
konu í aðal- og aukahlutverki.
Titanic jafnaði því met Ben Húr en það
gerði síðan líka lokakafli Hringadróttins-
sögu árið 2004 og þær eru því orðnar þrjár
stórmyndirnar sem hafa landað ellefu
Óskarsverðlaunum.
ÞETTA GERÐIST 23. MARS 1998
Titanic jafnar met Ben Húr