Fréttablaðið - 23.03.2013, Side 106

Fréttablaðið - 23.03.2013, Side 106
23. mars 2013 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 70 Fjölbreytt úrval legsteina Frí áletrun og uppsetning Sjá nánar á granithollin.is sími 555 38 88 Bæjarhrauni 26 (á móti Fjarðarkaupum) Bæjarhrauni 26 - 220 Hafnarfirði www.granithollin.is Sími 555 38 88 Okkar ástkæri JÓN MÁR JÓNSSON Austurströnd 12, Seltjarnarnesi, andaðist 19. mars á krabbameinsdeild Landspítalans. Útförin fer fram frá Akraneskirkju miðvikudaginn 27. mars kl. 14.00. Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á krabbameinsdeild 11E, 11B og heimahlynningu LSH. Sigurlaug María Jónsdóttir Guðmundur Páll Magnússon Guðrún Sigríður Jónsdóttir Guðný Steinunn Guðjónsdóttir Jón Magnús, Óðinn Már og Ingibjörg Guðný Guðmundsbörn Páll Indriði Pálsson Helgi Már Pálsson Móðir mín, GUÐRÍÐUR INGVARSDÓTTIR frá Bjalla í Landsveit, Einholti 7, Reykjavík, andaðist á Hrafnistu í Reykjavík fimmtudaginn 21. mars. Jarðarförin verður auglýst síðar. Ingvar Þór Magnússon Móðir mín, amma og langamma, GUÐRÚN HELGA JÓHANNESDÓTTIR Setbergi 12, Þorlákshöfn, lést mánudaginn 18. mars. Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju, þriðjudaginn 26. mars kl. 13.00. Jóhanna Björg Guðmundsdóttir Þórunn Kristín Bjarnadóttir Guðmundur Kristján Bjarnason Rebekka María Jóhannesdóttir Örn Ísak Jóhannesson og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, MAGNÚS S. MAGNÚSSON Lækjasmára 8, Kópavogi, lést á hjúkrunarheimilinu Holtsbúð/Vífilsstöðum fimmtudaginn 14. mars. Jarðsungið verður frá Garðakirkju mánudaginn 25. mars kl. 15.00. Guðbjörg María Gunnarsdóttir Gunnar H. Magnússon Elísabet Eyjólfsdóttir Jón H. Magnússon Magnús H. Magnússon Sissel S. Magnússon afa- og langafabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGIBJÖRG S. JÓHANNESDÓTTIR Hrafnistu, áður Vogalandi 14, er látin. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Guðfríður G. Jónsdóttir Gunnar Jónsson Ásgerður Jóhanna Jónsdóttir Jón Ólafur Karlsson Ingibjörg Jónsdóttir Vignir Eyþórsson Svala Jónsdóttir Jóhann Kr. Gunnarsson barnabörn og barnabarnabörn. Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SVANDÍS NANNA PÉTURSDÓTTIR frá Skáleyjum, andaðist á deild 6B LSH Fossvogi 13. mars. Útför hennar verður gerð frá Bústaðakirkju mánudaginn 25. mars og hefst kl. 13.00 Blóm og kransar eru vinsamlega afþökkuð en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Hjartaheill. Júlíus Gunnar Þorgeirsson Þorbjörg Júlíusdóttir Sigurfinnur Sigurfinnsson Guðrún Júlíusdóttir Valdimar Tómasson Hafsteinn Júlíusson Sigríður Jörundsdóttir Pétur Júlíusson Anna Ágústa Karlsdóttir Ástríður Júlíusdóttir Magnús Jónasson barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN ÓLAFSSON Fagurgerði 5, Selfossi, lést sunnudaginn 17. mars. Útförin fer fram frá Selfosskirkju þriðjudaginn 26. mars kl. 13.30. Þeim sem vilja minnast hans er bent á dagdvölina Vinaminni á Selfossi, reikn.nr. 0152-15-370676 kt. 650598-2029. Ólöf E. Árnadóttir Steingerður Jónsdóttir Örlygur Karlsson Ólafur Jónsson Skafti Jónsson Bente Nielsen barnabörn og barnabarnabörn. „Við höfum alltaf reynt að taka eitthvert þema fyrir á vorin og ákváðum að velja Gúttó núna. Þetta er rosa stuð,“ segir Steingrímur Rúnar Guðmundsson, for- maður Litla leikklúbbsins á Ísafirði um söngsýningu sem frumsýnd verður í Edinborgarhúsinu í kvöld. Þar er saga Gúttó á Ísafirði rifjuð upp á fjörugan hátt í tali og tónum. „Gúttó er auðvitað gamalt stúkuhús en edrúmennsk- an og sukkið réðu þar ríkj- um til skiptis,“ segir Stein- grímur. „Lengi vel var það eini dansstaður bæjarbúa. Við settumst niður með fólki sem hafði spilað þar og sungið, fengum sögur og fullt af lagalistum sem við flettum í gegnum og völd- um úr. Svo var sest niður og skrifuð leikgerð.“ Sagan gerist að hluta til á rakarastofu í bænum að sögn Steingríms. Þar rifja menn upp fjörið í Gúttó og slagsmálin í portinu og döm- unum úr húsmæðraskóla staðarins bregður fyrir. Alls standa um 35 manns á aldrinum 17 til 72 ára að sýningunni á fjölum Edin- borgarhússins. Þar er sex manna hljómsveit, Gúttó- bandið ásamt söngvurum, leikurum og dönsurum og andi hljómsveita eins og BG og Ingibjörg og Ásgeir og félagar svífur yfir vötnum. gun@frettabladid.is Fjörið í Gúttó og slagsmálin í portinu Söngsýningin Gúttó – hlegið dátt og dansað dátt í 40 ár – er sýnd í Edinborgar- húsinu á Ísafi rði í kvöld klukkan 21. Hún verður á fj ölum fram yfi r páska. ÞAU ERU AÐ FARA Á BALL Helga Sigríður Hjálmarsdóttir og Hlöðver Pálsson í hlutverkum sínum. MYND/BENEDIKT HERMANNSSON „Það eru um 40 ár frá því bókin um Emil kom út í íslenskri þýðingu Vil- borgar Dagbjartsdóttur og Böðv- ars Guðmundssonar, 35 og 36 ár frá útkomu platnanna og svo las ég í Fréttablaðinu að enduruppgert Katt- holt yrði opnað í Wimmerby á þessu ári. Það er full ástæða til að fagna og skemmta sér með því að rifja upp kynn- in við Emil og Ídu systur hans, pabba Emils og mömmu, Alfreð vinnumann og Línu vinnukonu og síðast en ekki síst öll skammarstrikin hans Emils,“ segir Helga E. Jónsdóttir leikstjóri. Hún stjórnar fjölskylduskemmtun í Hannesar holti við Grundarstíg í dag. Helga leikstýrði báðum plötunum um Emil á sínum tíma og var líka sögu- maður á þeim. „Plöturnar hafa selst í mörg þúsund eintökum og eru því gull- plötur. Því ætlum við að afhenda átta gullplötuskildi í dag,“ lýsir hún. Vilborg Dagbjartsdóttir mun segja nokkur orð á samkomunni og auk henn- ar koma að dagskránni þau Arnar Jóns- son, Árni Tryggvason, Helgi Hjörv- ar, Margrét Örnólfsdóttir, Sigrún Hjálmtýs dóttir og Þóra Friðriksdóttir, sem öll léku og sungu á fyrstu plötunni. Þá taka Guðrún Alfreðsdóttir, sem var Lína, vinnukona, á seinni plötunni og Þórhallur Sigurðsson, sem leikstýrði Emil í Kattholti í Þjóðleikhúsinu, þátt. Halldór Arnarson, tónlistarmaður sér um undirleik. Tvö börn, Helga Finn- borg Oddsdóttir og Hringur Oddsson, lesa og syngja hlutverk Emils og Ídu og Margrét Friðriksdóttir verður hífð upp í flaggstöngina, þau eru öll barna- börn Helgu. „Ég er með fjölskylduna í þessu,“ segir hún glaðlega. „Uppi á gamla þurrkloftinu í Hannesarholti verður svo leynigestur sem krakkarnir gætu haft gaman af að kynnast.“ Allir krakkar, pabbar og mömmur, afar og ömmur, frændur og frænkur á öllum aldri eru hjartanlega velkomin en sætafjöldi er takmarkaður, að sögn Helgu. Aðgangseyrir er 2000 fyrir full- orðna en ókeypis er fyrir börn. gun@frettabladid.is Emil í Kattholti á Íslandi í fj örutíu ár Hátíð til heiðurs Emil í Kattholti verður í haldin í menningarhúsinu Hannesarholti að Grundarstíg 10 í dag klukkan 15. Þar verða átta gullplötur afh entar. SAMLESTUR Arnar Jónsson flaggstöng sem Margrét Friðriksdóttir hefur verið hífð upp í. Hringur og Finnborg Oddsbörn lesa hlutverk Emils og Ídu, aftan við þau eru móðir þeirra Margrét Örnólfsdóttir sem lék Ídu á plötunum og Helgi Hjörvar sem fór með hlutverk Emils á fyrri plötunni. Þórhallur Sigurðsson leikstjóri fylgist með. FRÉTTABLAÐIÐ/ VALLI HELGA JÓNSDÓTTIR Plöturnar um Emil hafa selst í þúsundum eintaka og eru löngu orðnar gullplötur.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.