Fréttablaðið - 23.03.2013, Blaðsíða 108
23. mars 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 72
BAKÞANKAR
Hildar
Sverrisdóttur
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
KROSSGÁTA
PONDUS Eftir Frode Øverli
GELGJAN Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
HANDAN VIÐ HORNIÐ Eftir Tony Lopes
BARNALÁN Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
MYNDASÖGUR
Ég var að skoða
ferilskrána þína
og þú ert heppin.
Ég er einmitt að
leita að ritara sem
getur vélritað eitt
orð á mínútu.
Mamma, ég finn ekki hinn
strigaskóinn minn.
Þú ert í honum, Solla.
Ó já.
Var ég að fara í þá eða
úr þeim?
Eru einhver fleiri dularfull skómál sem
ég get hjálpað þér með?
Mér tókst ekki
að klára neitt
í dag!
Það er
allt í lagi,
mamma!
Í mínum heimi
er það af hinu
góða!
Viltu kaupa
lottómiða
til styrktar
skóla-
hljóm-
sveitinni?
Komdu
með
það!
En við skulum samt hafa
það á hreinu að ég hef
keypt lottómiða í 20 ár
og hef ekki fengið svo
mikið sem lambalæri! Ég
býst við lambalæri núna!
Annars get ég svo sem
komist að því hvar þú
átt heima og komið
við og troðið læri í
túbuna þína!
Lottómiði?
Gott að það
rennur til góðs
málstaðar því
við heyrum
aldrei neitt!
Held kannski
að við
gerum það í
þetta sinn!
LÁRÉTT
2. brennt vín, 6. utan, 8. andmæli,
9. endir, 11. tveir eins, 12. iðja, 14.
jurtaríki, 16. sjó, 17. þvottur, 18. skip,
20. fyrirtæki, 21. kaup.
LÓÐRÉTT
1. loga, 3. öfug röð, 4. samhliða, 5.
sigti, 7. nýta, 10. frostskemmd, 13.
upphaf, 15. eldhúsáhald, 16. þörungur,
19. kvað.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. romm, 6. án, 8. nei, 9. lok,
11. ðð, 12. starf, 14. flóra, 16. sæ, 17.
tau, 18. örk, 20. ms, 21. laun.
LÓÐRÉTT: 1. báls, 3. on, 4. meðfram,
5. mið, 7. notfæra, 10. kal, 13. rót, 15.
ausa, 16. söl, 19. ku.
Það er sniðugt þegar augnablik nást á filmu sem gefa spaugilegri mynd af
aðstæðum en þær kannski voru. Nýleg
dæmi eru þegar tveir ráðherrar virtust sofa
í þingsal, sem og sendinefnd Íslands hjá
Sameinuðu þjóðunum. Ég veit ekki hvert
sannleiksgildi myndanna er og það skiptir
minna máli – stundum má skemmtanagildið
ráða för.
Í VIKUNNI varð ég sjálf efniviður slíkrar
ljósmyndar þar sem ég virtist mædd á svip
undir ræðuhöldum á málfundi meðan sessu-
nautur minn sat sem bugaður með andlit í
greipum sér. Þetta var fyndin mynd sem var
gripin á lofti og fór á kreik á netinu. Fyrir
mig var það áhugaverð reynsla, þar sem
ég hef fyrir löngu greint sjálfa mig með
fóbíu fyrir myndavæðingu samtímans.
VITASKULD má búast við opinberum
myndum frá opinberum vettvangi. En
fóbían felst í að mörkin liggja ekki
lengur þar.
LENGI vel fólst eina áhættutakan á
mörkum einkalífs og hinnar opinberu
ásýndar í því að stelast nývaknaður
á náttbuxunum út í bakarí. Það var
vel hægt að komast upp með að
mæta sjúskaður í fjölskylduboð eða
í saumaklúbb og háma í sig tertu án
þess að þurfa að svara til saka fyrir
það gagnvart öðrum en sínum nán-
ustu. Í dag skrifast það á ábyrgðar-
lausa áhættuhegðun ef ekki er um
leið haft vökult auga með tagg-
glaða frændanum eða æstu vinkonunni á
Insta gram.
FÓBÍA er skilgreind sem órökrétt hræðsla
og eflaust er órökrétt að vera hræddur við
fjölskyldumyndatökur. Það á hins vegar rétt
á sér að setja spurningarmerki við að Pétur
og Páll, stóri bróðir og vinkona hans hafi
með þessari þróun aukinn og auðveldari
aðgang að því hvað allir aðrir eru að bauka.
ALMENNT gerum við ráð fyrir að vera
vernduð með vísan til réttarins til friðhelgi
einkalífs. Mannréttindi eiga þó til að rekast
hver utan í önnur og því ekki svart á hvítu
hvort réttindi þess sem lendir inni á mynd
trompi tjáningarfrelsi þess sem tekur hana.
Þar gæti sumsé togast á réttur minn til að
njóta tertu í friði með rjóma út á kinn og
réttur Nonna frænda til að festa það á mynd
og deila með umheiminum.
ÞAÐ er ekki að ástæðulausu að sérstakar
reglur laga um persónuvernd gilda um upp-
tökur úr öryggismyndavélum. Á hinn bóginn
höfum við sjálf komið okkur smám saman
upp okkar eigin handhæga myndavéla búnaði
sem getur kortlagt tilveru okkar nánast eins
og hún leggur sig án þess að við séum sér-
staklega vernduð gagnvart því.
KANNSKI erum við aðeins að upplifa
vaxtarverki tæknivæðingarinnar sem munu
jafna sig áður en við skiptum óvart á frið-
helgi einkalífsins fyrir nokkur læk. Annars
mæli ég bara með að ávallt viðbúinn öðlist
nýja merkingu.
Myndin af heiminum
iPad mini
Verð frá: 59.990.-
Magnaðir litir og ótrúlega skýr texti.
Skjárinn á iPad mini er fullkominn til að
vafra á netinu, skoða tölvupóstinn,
ljósmyndir og horfa á video.
Smáralind | Sími 512 1330
Laugavegi 182 | Sími 512 1300
Undratæki sem smellpassar í lófann.
Þú gætir átt möguleika á að vinna
iPad mini 16GB WiFi!
Taktu þátt á:
www.epli.is/fermingar