Fréttablaðið - 23.03.2013, Síða 120
23. mars 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 84
Episodes
Þetta app er nauðsynlegt fyrir þá
sem horfa á erlenda sjónvarps-
þætti á internetinu. Í þessu appi
getur þú stillt upp þinni eigin
sjónvarpsdagskrá og látið símann
þinn eða spjaldtölvuna minna
þig á þegar nýjustu þættirnir í
uppáhaldsþáttaröðunum þínum
eru sýndir. Appið er erlent svo
ekki er að finna íslenskt sjón-
varpsefni í því, sem er vissulega
synd. Fréttablaðið hvetur íslenska
app-áhugamenn um að koma
svona appi fyrir íslenskt sjónvarp
á koppinn.
Episodes býður þér líka upp á
að lesa um hverja þáttaröð svo
það er jafnvel hægt að finna sér
eitthvað nýtt og spennandi til að
byrjað að horfa á í Episodes, og
uppgötva nýjar perlur.
Skýringar:
App fyrir Apple-tæki
App fyrir Android-tæki
App fyrir Windows
APP VIKUNNAR
Tónlistarmenn eru margir
hverjir ansi pólitískir og hafa
sterkar skoðanir á því hvað
má betur fara í samfélaginu.
Góð dæmi um þetta eru Bubbi
Morthens og Hörður Torfason,
auk þess sem Árni Johnsen
hefur verið þingmaður og tón-
listarmaður í fjölda ára. Úti
í heimi eru Bob Dylan og
John Lennon þekkt dæmi um
tónlistar menn sem hafa látið til
sín taka á pólitíska sviðinu.
Nú styttist óðum í alþingis-
kosningar og sjaldan eða aldrei
hafa jafnmargir tónlistarmenn
verið í framboði. Flestir eru þeir á
lista Bjartar framtíðar, sem býður
fram í fyrsta sinn.
Auðveldlega væri hægt að setja
saman öfluga hljómsveit úr þess-
um tónlistarmönnum og jafn-
vel tvær. Alþingisbandið yrði að
mestu skipað söngvurum og gæti
auðveldlega slegið í gegn. Allir
meðlimir rokksveitarinnar Ham
eru einnig í framboði fyrir Bjarta
framtíð og gætu hljómsveitirn-
ar tvær því mögulega skipst á að
halda uppi stuðinu á Alþingi og
brjóta í leiðinni upp hinar hefð-
bundnu og oft og tíðum þurru
stjórnmálaumræður.
Alþingisbandið gæti
slegið rækilega í gegn
Hvaða tónlistarmenn gætu haldið uppi stuðinu á Alþingi í Alþingisbandinu?
Alþingisbandið
Arnar
Ómarsson
trommari
20. sæti í
Reykjavíkur-
kjördæmi
suður
Sigurður
Björn
Blöndal
bassaleikari
7. sæti í
Reykjavíkur-
kjördæmi
norður
Sigurjón
Kjartansson
söngvari og
gítarleikari
10. sæti í
Suðvestur-
kjördæmi
Óttarr
Proppé
söngvari
2. sæti í
Norðvestur-
kjördæmi
Flosi
Þorgeirsson
gítarleikari
15. sæti í
Norðaustur-
kjördæmi
Ham á Alþingi?
Hera Björk
18. sæti Bjartrar framtíðar í
Suðurkjördæmi
Egill Ólafsson
Stuðmenn
2. sæti Lýðræðisvaktarinnar í
Reykjavíkurkjördæmi suður
Mugison
16. sæti Bjartrar framtíðar í
Norðvesturkjördæmi
Gylfi Ægisson
Heiðurssæti Hægri grænna
í Norðvesturkjördæmi
Heimir Eyvindarson
Á móti sól
3. sæti Bjartrar framtíðar í
Suðurkjördæmi
Björn Kristinsson
Borkó
21. sæti Bjartar framtíðar í
Norðvesturkjördæmi
Einar Örn Benedikts-
son Ghostigital
21. sæti Bjartrar framtíðar
í Reykjavíkurkjördæmi
norður
Guðmundur
Steingrímsson
Skárren ekkert
1. sæti Bjartrar framtíðar í
Suðvesturkjördæmi.
Dave Grohl, höfuðpaur Foo Fighters, reyndi
að fá bresku tónlistarkonuna PJ Harvey til
að koma fram með eftirlifandi meðlimum
Nirvana á tónleikum í London.
„Fyrir tónleikana í London vorum við að
velta fyrir okkur tónlistarfólki til að bjóða að
koma fram með okkur, því Stevie Nicks og John
Fogerty komust ekki. Einhverjum datt í hug
að fá PJ Harvey til að taka Nirvana-lag
með okkur. Kurt dýrkaði hana og við
dýrkum hana,“ segir Grohl og bætir við
að ætlunin hafi verið að söngkonan tæki
lagið Milk It af In Utero, þriðju plötu
Nirvana. Harvey átti þó ekki heiman-
gengt og því varð ekkert úr samstarfinu.
Reyndu að fá PJ Harvey
PJ HARVEY Breska söngkonan var
í miklu uppáhaldi hjá Kurt Cobain.
Hvað er CISV?
CISV (Children International Summer
Villages) er alþjóðleg friðarsamtök
óháð stjórnmálum og trúarbrögðum.
Samtökin voru stofnum af
barnasálfræðingnum Dr. Doris Allen
eftir seinni heimsstyrjöldina. Hugmynd
Doris Allen var sú að börn frá ólíkum
löndum kæmu saman, lærðu að lifa
saman á grundvelli umburðarlyndis og
jafnréttis, lærðu að hugsa og draga
ályktanir í anda alþjóðavitundar og
vinna þannig að friði í heiminum.
Einstakt tækifæri fyrir ævintýragjörn
ungmenni frá 11–18 ára.
Cisv heldur yfir 50 sumarbúðir á hverju ári og í hverjum
búðum erum þátttakendur frá 16 þjóðum.
Ennþá er laust í eftirfarandi búðir:
Sumarbúðir fyrir 11 ára:
• Ísland – 21. júní – 18. júlí – laust fyrir stelpu
Youth meeting:
• Pólland – 5. júlí – 19. júlí – laust fyrir 14 – 15 ára stráka
Jc fyrir 16 – 17 ára:
• Ísland – 21. júní – 18. júlí – laust fyrir strák
• Filippseyjar – Queson city – 21. júní – 18. júlí – laust fyrir strák
Námstefnubúðir (seminar) fyrir 17 – 18 ára.
• Kanada – London – 8. júlí – 28. júlí – laust fyrir strák og stelpu
Nánari upplýsingar gefur Ásta í síma 861 1122 eða á
cisv@cisv.is www.cisv.is
Ert þú 21 árs eða eldri?
Viltu taka þátt í spennandi verkefni í sumar?
Hefur þú gaman af því að vinna með börnum og unglingum?
CISV á Íslandi (Alþjóðlegar sumarbúðir barna) leitar að sjálfboðaliðum til
að taka þátt í því frábæra starfi sem fer fram á sumrin.
Við erum að senda börn/unglinga í alþjóðlegar sumarbúðir og tökum þátt í
unglingaskiptum. Nú leitum við að einstaklingum sem eru 21 árs eða eldri
til að fara með þessum hópum í búðir. Ennþá eru nokkur pláss laus. Þessar
búðir eru bæði hérlendis og erlendis.
Fararstjórar bera engann kostnað við ferð í sumarbúðir.
Fyrir nánari upplýsingar um fararstjóra hafið samband við
Arnór Fannar sími: 822 1319 á fararstjori@cisv.is
Námskeiðið er fyrir þá sem vilja njóta lífsins, lifa lífinu aðeins
hægar og huga að andlegri og líkamlegri líðan. Dvölin gefur
einnig einstakt tækifæri til að taka upp nýjar og skynsam-
legar leiðir hvað varðar hreyfingu, næringu og svefn.
Innifalið: Ljúffengur og hollur matur, skipulögð dagskrá,
hugleiðsla og jóga, aðgangur að sundlaugum, baðhúsi og
líkamsrækt. Einnig nudd og val um ýmsar meðferðir.
Verð á mann 109.900 kr. ef bókað er fyrir 27. mars.
Eftir 27. mars kostar heilsudvölin 121.900 kr.
7 daga heilsudvöl 14. - 21. apríl
Aukadagur fyrir þá sem vilja lengja dvölina er 9.900 kr. pr. sólarhring