Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.03.2013, Qupperneq 15

Fréttablaðið - 28.03.2013, Qupperneq 15
FIMMTUDAGUR 28. mars 2013 | SKOÐUN | 15 Kallað er eftir því að skólar leggi meiri áherslu á kennslu í fjármálalæsi. Sú krafa er eðli- leg enda var Íslendingum gefin einkunnin 4,3 í fjármálalæsi í rannsókn Háskólans í Reykja- vík 2009. Í skýrslu nefndar skipaðri af viðskiptaráðherra kom auk þess fram að einungis 4,6% aðspurðra töldu sig hafa öðlast fjármálaskilning í skóla. Í nýrri aðalnámskrá grunn- skóla er kveðið á um að kennt sé fjármálalæsi og frá því sl. haust hafa sex grunn- og fram- haldsskólar tekið þátt í tilrauna- kennslu. Markmiðið er að fræða ungmenni um fjármál og efna- hagsmál svo þau verði hæfari til að takast á við eigin fjármál og skilji betur efnahagskerfi heims- ins. Skólar eru þannig að byrja að fylgja þessum kröfum eftir þó það verði seint þannig að færni í fjármálalæsi verði alfarið á ábyrgð skólakerfisins. Áhætta og ávöxtun Viðskiptaráðherra skipaði fyrr- greinda nefnd til að kanna frek- ar stöðu fjármálalæsis á Íslandi árið 2008. Þegar til kom þurfti þó að fresta útgáfu skýrslu nefndarinnar vegna hruns íslenska hlutabréfamarkaðarins sem féll um 95% frá sumrinu 2007 og til byrjunar árs 2009. Sjálf kreppan mikla í Bandaríkj- unum var ekki einu sinni svona slæm, en þá lækkaði bandaríski hlutabréfamarkaðurinn um 89% á þriggja ára tímabili. Ástæða þess að hlutabréfa- markaðurinn á Íslandi lækkaði svona skelfilega mikið var sú að flest fyrirtækin sem mynduðu íslensku hlutabréfavísitöluna lækkuðu ekki bara í virði heldur urðu gjaldþrota. Árangur áranna þar á undan var hins vegar „glæsilegur“, sé horft til þeirrar ávöxtunar sem náðist á því tíma- bili. Vandamálið var að sá árang- ur náðist með gríðarlegri áhættu sem kom ekki að sök fyrr en illa áraði. Skammtímaávöxtunin var glæsileg en langtímaávöxtunin engin. Ávöxtunarleikur sem fjármálalæsi Áhugi almennings á hlutabréfum sem sparnaðarleið er alltaf lítill eftir miklar lækkanir hluta- bréfa. Í því ljósi er skiljanlegt að Keldan, ásamt Kauphöllinni og fleiri aðilum sem hafa hag af því að íslenskur hlutabréfamarkaður blómstri, ráðist í að búa til leik sem ýtir undir áhuga almenn- ings á hlutabréfum. Leikurinn kallast Ávöxtunarleikurinn og gengur nákvæmlega út á það og að stuðla að auknu fjármálalæsi þjóðarinnar. Leikurinn kynnir íslensk hlutabréf og skuldabréf fyrir stórum hópi fólks, þar með talið mörgu ungu fólki, sem annars liti ekki við slíkum verð- bréfum í kjölfar hruns íslenska markaðarins. Í þessu ljósi er leikurinn sniðugur. Sem kynning á verðbréfum sem leið fyrir langtíma sparnað venjulegs fólks er leikurinn hins vegar varasamur. Hann ýtir undir skammtímahugsun sem ætti að kenna öllum frá blautu barnsbeini að forðast þegar kemur að fjárfestingum í hluta- bréfum. Hver nær bestri ávöxt- un yfir nokkurra mánaða tíma- bil skiptir nefnilega engu máli í raunveruleikanum! Í Ávöxtunar- leiknum vinnur sá sem nær hæstri ávöxtun yfir rúmlega hálfs árs tímabil. Að auki er þeim keppendum sem standa sig best í hverjum mánuði veitt sérstök verðlaun en þeir hljóta titilinn hástökkvari mánaðarins. Þetta minnir á árin fyrir hrun þegar íslenskir fjárfestar keppt- ust við að ná sem mestri ávöxtun á sem skemmstum tíma. Fjöl- miðlar kepptust þá við að flytja fréttir af árangrinum og birt voru viðtöl við þá sem stóðu sig best. Viðskiptamenn ársins voru oftast þeir sem höfðu tekið mestu áhættuna það árið. Skammtímahugsun verðlaunuð Leiðin til að vinna leik í ávöxtun þar sem aðeins er horft til nokk- urra mánaða er sú að taka sem mesta áhættu. Þetta er gert með því að kaupa sem fæst hlutabréf eða skuldabréf en taka á móti stærri stöður í hverju þeirra og treysta svo á lukkuna. Í leiknum er sem betur fer sett hámark á það hversu langt er hægt að ganga í þessum efnum þar sem ekki er hægt að fjárfesta fyrir meira en 25% af heildareign í einu verðbréfi eða gjaldmiðli. Þetta er hins vegar miklu meiri samþjöppun á eignasafni en mælt er með. Slíkt getur að sjálf- sögðu gengið til skemmri tíma, en sá sem hegðar sér á þennan hátt til lengri tíma fer nánast örugglega á höfuðið fyrr eða síðar. Mat á áhættu og langtíma- hugsun eru þeir þættir sem er mikilvægast að kenna þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref á hlutabréfamarkaði, kaupa sér íbúð eða ætla að tileinka sér færni í fjármálalæsi. Allir þurfa þannig að taka ábyrgð á að bæta fjármálalæsi þjóðarinnar. Leiki eins og Ávöxtunarleikinn þarf að ígrunda vel, alveg eins og námsefni grunnskóla. Ekki síður þurfa stjórnmálaflokkar, sem keppast nú við að bjóða kjósend- um galdralausnir vegna vanda sem orsakaðist vegna skorts á langtímahugsun við ávöxtun fjármuna, að hugsa sinn gang. Galdralausnirnar eru ekki til, ekki frekar en gervipeningarnir í Ávöxtunarleiknum. Fjármálaólæsi þjóðar Í DAG Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir borgarfulltrúi Mat á áhættu og langtímahugsun eru þeir þættir sem er mikil- vægast að kenna þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref á hlutabréfamarkaði, kaupa sér íbúð eða ætla að tileinka sér færni í fjár- málalæsi. Alger uppgjöf á þingi Fjórflokkurinn með vara- hjólinu náði samkomulagi á þingi í gærkvöldi. Nýju stjórnarskránni var fleygt út á hafsauga. Þjóðaratkvæði gerð marklaus vegna óyfirstígan- legra þröskulda um þátttöku. Náttúruverndarlögum frestað, þangað til annað kemur í ljós. Ekkert ákvæði um þjóðareign auðlinda. Stóriðja á Húsavík ríkisstyrkt að hætti bófaflokk- anna. Ríkisstjórnin og fylgilið hennar gáfust endanlega upp fyrir yfirgangi andstöðunnar á Alþingi. Bófaflokkarnir hafa tekið þar völdin. Aumingja- stjórnin er í minnihluta. Sam- kvæmt ákvörðun kjósenda munu stóru bófaflokkarnir tveir taka við lyklavöldum eftir mánuð. http://www.jonas.is/ Jónas Kristjánsson AF NETINU Lokað laugardag Fæst í apótekum, Fríhöfninni og verslunum um land allt. - www.celsus.is Engin málamiðlun í gæðum. - Engin tilbúin efni. Líkaminn tekur upp og nýtir næringuna sem hreina fæðu. - sem gefur hreysti, orku og einbeitingu Hrein lífræn næring Celsus styrkir alþjóðasýninguna „Frá stríðsmenningu til friðarmenningar“ í Ráðhúsinu 4.-14. apríl 2013. 100 krónur af hverri seldri vöru af Lifestream bætiefnum rennur til styrktar sýningunni. Lifestream er frá Nýja Sjálandi sem er yfirlýst kjarnorkuvopnalaust svæði. Markmið friðarsamtakanna SGI á Ísland með sýningunni er að styðja þá kröfu að sáttmáli um afvopnun og bann við kjarnorkuvopnum í heiminum verði að veruleika fyrir árið 2015. 12 ÁRA VELGENGNI Á ÍSLANDI
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.