Fréttablaðið - 28.03.2013, Blaðsíða 15
FIMMTUDAGUR 28. mars 2013 | SKOÐUN | 15
Kallað er eftir því að skólar
leggi meiri áherslu á kennslu í
fjármálalæsi. Sú krafa er eðli-
leg enda var Íslendingum gefin
einkunnin 4,3 í fjármálalæsi í
rannsókn Háskólans í Reykja-
vík 2009. Í skýrslu nefndar
skipaðri af viðskiptaráðherra
kom auk þess fram að einungis
4,6% aðspurðra töldu sig hafa
öðlast fjármálaskilning í skóla.
Í nýrri aðalnámskrá grunn-
skóla er kveðið á um að kennt
sé fjármálalæsi og frá því sl.
haust hafa sex grunn- og fram-
haldsskólar tekið þátt í tilrauna-
kennslu. Markmiðið er að fræða
ungmenni um fjármál og efna-
hagsmál svo þau verði hæfari til
að takast á við eigin fjármál og
skilji betur efnahagskerfi heims-
ins. Skólar eru þannig að byrja
að fylgja þessum kröfum eftir þó
það verði seint þannig að færni
í fjármálalæsi verði alfarið á
ábyrgð skólakerfisins.
Áhætta og ávöxtun
Viðskiptaráðherra skipaði fyrr-
greinda nefnd til að kanna frek-
ar stöðu fjármálalæsis á Íslandi
árið 2008. Þegar til kom þurfti
þó að fresta útgáfu skýrslu
nefndarinnar vegna hruns
íslenska hlutabréfamarkaðarins
sem féll um 95% frá sumrinu
2007 og til byrjunar árs 2009.
Sjálf kreppan mikla í Bandaríkj-
unum var ekki einu sinni svona
slæm, en þá lækkaði bandaríski
hlutabréfamarkaðurinn um 89%
á þriggja ára tímabili.
Ástæða þess að hlutabréfa-
markaðurinn á Íslandi lækkaði
svona skelfilega mikið var sú að
flest fyrirtækin sem mynduðu
íslensku hlutabréfavísitöluna
lækkuðu ekki bara í virði heldur
urðu gjaldþrota. Árangur áranna
þar á undan var hins vegar
„glæsilegur“, sé horft til þeirrar
ávöxtunar sem náðist á því tíma-
bili. Vandamálið var að sá árang-
ur náðist með gríðarlegri áhættu
sem kom ekki að sök fyrr en illa
áraði. Skammtímaávöxtunin var
glæsileg en langtímaávöxtunin
engin.
Ávöxtunarleikur sem fjármálalæsi
Áhugi almennings á hlutabréfum
sem sparnaðarleið er alltaf lítill
eftir miklar lækkanir hluta-
bréfa. Í því ljósi er skiljanlegt að
Keldan, ásamt Kauphöllinni og
fleiri aðilum sem hafa hag af því
að íslenskur hlutabréfamarkaður
blómstri, ráðist í að búa til leik
sem ýtir undir áhuga almenn-
ings á hlutabréfum. Leikurinn
kallast Ávöxtunarleikurinn og
gengur nákvæmlega út á það og
að stuðla að auknu fjármálalæsi
þjóðarinnar. Leikurinn kynnir
íslensk hlutabréf og skuldabréf
fyrir stórum hópi fólks, þar með
talið mörgu ungu fólki, sem
annars liti ekki við slíkum verð-
bréfum í kjölfar hruns íslenska
markaðarins. Í þessu ljósi er
leikurinn sniðugur.
Sem kynning á verðbréfum
sem leið fyrir langtíma sparnað
venjulegs fólks er leikurinn hins
vegar varasamur. Hann ýtir
undir skammtímahugsun sem
ætti að kenna öllum frá blautu
barnsbeini að forðast þegar
kemur að fjárfestingum í hluta-
bréfum. Hver nær bestri ávöxt-
un yfir nokkurra mánaða tíma-
bil skiptir nefnilega engu máli í
raunveruleikanum! Í Ávöxtunar-
leiknum vinnur sá sem nær
hæstri ávöxtun yfir rúmlega
hálfs árs tímabil. Að auki er
þeim keppendum sem standa
sig best í hverjum mánuði veitt
sérstök verðlaun en þeir hljóta
titilinn hástökkvari mánaðarins.
Þetta minnir á árin fyrir hrun
þegar íslenskir fjárfestar keppt-
ust við að ná sem mestri ávöxtun
á sem skemmstum tíma. Fjöl-
miðlar kepptust þá við að flytja
fréttir af árangrinum og birt
voru viðtöl við þá sem stóðu
sig best. Viðskiptamenn ársins
voru oftast þeir sem höfðu tekið
mestu áhættuna það árið.
Skammtímahugsun verðlaunuð
Leiðin til að vinna leik í ávöxtun
þar sem aðeins er horft til nokk-
urra mánaða er sú að taka sem
mesta áhættu. Þetta er gert með
því að kaupa sem fæst hlutabréf
eða skuldabréf en taka á móti
stærri stöður í hverju þeirra og
treysta svo á lukkuna. Í leiknum
er sem betur fer sett hámark
á það hversu langt er hægt að
ganga í þessum efnum þar sem
ekki er hægt að fjárfesta fyrir
meira en 25% af heildareign í
einu verðbréfi eða gjaldmiðli.
Þetta er hins vegar miklu meiri
samþjöppun á eignasafni en
mælt er með. Slíkt getur að sjálf-
sögðu gengið til skemmri tíma,
en sá sem hegðar sér á þennan
hátt til lengri tíma fer nánast
örugglega á höfuðið fyrr eða
síðar.
Mat á áhættu og langtíma-
hugsun eru þeir þættir sem er
mikilvægast að kenna þeim sem
eru að stíga sín fyrstu skref á
hlutabréfamarkaði, kaupa sér
íbúð eða ætla að tileinka sér
færni í fjármálalæsi. Allir þurfa
þannig að taka ábyrgð á að bæta
fjármálalæsi þjóðarinnar. Leiki
eins og Ávöxtunarleikinn þarf
að ígrunda vel, alveg eins og
námsefni grunnskóla. Ekki síður
þurfa stjórnmálaflokkar, sem
keppast nú við að bjóða kjósend-
um galdralausnir vegna vanda
sem orsakaðist vegna skorts á
langtímahugsun við ávöxtun
fjármuna, að hugsa sinn gang.
Galdralausnirnar eru ekki til,
ekki frekar en gervipeningarnir
í Ávöxtunarleiknum.
Fjármálaólæsi þjóðar
Í DAG
Þorbjörg Helga
Vigfúsdóttir
borgarfulltrúi
Mat á áhættu og
langtímahugsun eru
þeir þættir sem er mikil-
vægast að kenna þeim sem
eru að stíga sín fyrstu
skref á hlutabréfamarkaði,
kaupa sér íbúð eða ætla
að tileinka sér færni í fjár-
málalæsi.
Alger uppgjöf á þingi
Fjórflokkurinn með vara-
hjólinu náði samkomulagi
á þingi í gærkvöldi. Nýju
stjórnarskránni var fleygt út á
hafsauga. Þjóðaratkvæði gerð
marklaus vegna óyfirstígan-
legra þröskulda um þátttöku.
Náttúruverndarlögum frestað,
þangað til annað kemur í ljós.
Ekkert ákvæði um þjóðareign
auðlinda. Stóriðja á Húsavík
ríkisstyrkt að hætti bófaflokk-
anna. Ríkisstjórnin og fylgilið
hennar gáfust endanlega upp
fyrir yfirgangi andstöðunnar
á Alþingi. Bófaflokkarnir hafa
tekið þar völdin. Aumingja-
stjórnin er í minnihluta. Sam-
kvæmt ákvörðun kjósenda
munu stóru bófaflokkarnir
tveir taka við lyklavöldum
eftir mánuð.
http://www.jonas.is/
Jónas Kristjánsson
AF NETINU
Lokað laugardag
Fæst í apótekum, Fríhöfninni og verslunum um land allt. - www.celsus.is
Engin málamiðlun í gæðum. - Engin tilbúin efni.
Líkaminn tekur upp og nýtir næringuna sem hreina fæðu.
- sem gefur hreysti, orku og einbeitingu
Hrein lífræn næring
Celsus styrkir alþjóðasýninguna „Frá stríðsmenningu til friðarmenningar“ í Ráðhúsinu 4.-14. apríl 2013.
100 krónur af hverri seldri vöru af Lifestream bætiefnum rennur til styrktar sýningunni. Lifestream er frá Nýja Sjálandi sem er yfirlýst kjarnorkuvopnalaust
svæði. Markmið friðarsamtakanna SGI á Ísland með sýningunni er að styðja þá kröfu að sáttmáli um afvopnun og bann við kjarnorkuvopnum í heiminum verði
að veruleika fyrir árið 2015.
12
ÁRA
VELGENGNI Á ÍSLANDI