Fréttablaðið - 25.07.2013, Side 8
25. júlí 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 8
Ora grillsósur fást í næstu verslun!
Bernaisesósa
NÁTTÚRA Fimm daga lundaveiði-
tímabili lauk í fyrradag í Vest-
mannaeyjum. Óskar P. Friðriks-
son ljósmyndari fékk að fljóta með
fríðum flokki sem hélt til veiða í
Hellisey síðasta daginn.
Eins og sjá má á myndunum er
þetta ekki ferð fyrir lofthrædda,
en fara þarf upp um hundrað metra
keðjustiga. „Maður hugsar ekkert
um þetta þegar maður er þarna
uppi,“ segir Sigurjón Ingvarsson,
sem veiddi flesta lundana í ferð-
inni. „Ef það eru einhverjir loft-
hræddir með þá skjótum við með
þeim svona öryggislínu,“ bæti
hann við.
Sigurjón segir þá hafa séð mikið
af lunda þegar loks létti til en þoka
var mikil framan af. Hann sá þá
líka hafa eitthvert æti í goggi. En
sá sem nú lifir í hve mestum vel-
lystingum úti um allar eyjar er
súlan, enda súlan ekki matvandur
fugl, en hún hefur nú bætt mak-
rílnum á matseðilinn.
„Við veiddum aðeins þrjátíu
og þrjá lunda,“ segir Sigurjón.
„Menn hentu gamni að því að ég,
viðvaningur inn sjálfur, veiddi
eina þrjátíu meðan jarlinn sjálfur,
Bragi Steingrímsson, varð að láta
sér lynda þrjá. Þetta var hroðaleg
útreið fyrir jarlinn,“ segir Sigurjón
og hlær við.
jse@frettabladid.is
Helst ekki fyrir
lofthrædda
Veiði var ekki mikil þá fimm daga sem veiða mátti lunda í Vestmannaeyjum.
Veiðimaður segir súluna lifa í vellystingum og er ekki svartsýnn á afkomu
lundans. Klifra þeir óbundnir um hundrað metra stiga upp í klett.
LUNDARNIR KOMA Í LJÓS Þegar létti til sást fagurgoggurinn víðast hvar og í ágætum
holdum.
SÚLAN Í VELLYSTINGUM Þessi fugl hefur það aldeilis gott enda á hann auðvelt með
að veiða og er ekki matvandur. Fuglinn er einn af þeim sem ekki sýta komu makríls.
JARLINN NÆR EINUM Bragi Steingrímsson, alvanur lundaveiðimaður, lét viðvaninginn um mestu veiðina og tók aðeins þrjá
sjálfur, sem var síðan tilefni til mikilla gamanmála. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR FRIÐRIKSSON
EKKI LÍTA NIÐUR Sigurjón
er hér að koma upp keðju-
stigann. Ef einhver er loft-
hræddur er splæst í öryggis-
línu en Eyjapeyjar segjast
ekki þurfa á slíku að halda.
SAMGÖNGUR Tuttugu og fjór-
ar milljónir ökutækja hafa ekið
í gegnum Hvalfjarðargöngin á
þeim fimmtán árum sem þau
hafa verið opin. Til stendur að
afhenda ríkinu göngin í septem-
ber árið 2018.
Þann 11. júlí síðastliðinn voru
15 ár frá því að Davíð Oddsson,
þáverandi forsætisráðherra,
klippti á borða sunnanmegin í
Hvalfirði og opnaði göngin form-
lega. Síðan þá hafa landsmenn
notið þess að sleppa við tæplega
hundrað kílómetra langan spotta
sem Hvalfjörðurinn er.
Daginn eftir fimmtán ára
afmælið, 12. júlí síðastliðinn,
höfðu 24 milljónir ökutækja ekið
um göngin. Það gerir rúmlega
eina og hálfa milljón ökutækja
á hverju ári.
Það vekur athygli að veg-
gjaldið í dag, þúsund krónur
fyrir stakan fólksbíl, er það
sama og fyrir fimmtán árum.
„Þetta hefur bara gengið
vonum framar, göngin hafa
sýnt og sannað að þau áttu full-
an rétt á sér. Því er hægt að
hægt að halda gjaldinu í sama
farinu,“ segir Marinó Tryggva-
son, afgreiðslustjóri Spalar, sem
sér um rekstur Hvalfjarðar-
ganganna.
Þegar göngin voru opnuð árið
1998 var hægt að fá 13,3 lítra
af bensíni fyrir þúsundkall-
inn sem kostaði í göngin. Núna,
árið 2013, er hægt að fá 3,9 lítra
fyrir sömu upphæð.
bodi@365.is
Hvalfjarðargöngin fagna 15 ára afmæli nú í júlí en gjaldið er enn þúsund krónur fyrir stakan fólksbíl:
24 milljónir ökutækja í göngin á 15 árum
HVALFJARÐARGÖNG Þann 11. júlí síðastlið-
inn voru 15 ár liðin frá opnun ganganna.
INDLAND, AP Meena Kumari, skóla-
stjóri í Patna á Indlandi, hefur
verið handtekinn í tengslum við
rannsókn á mataraeitrun í skól-
anum sem kostaði 23 börn lífið í
síðustu viku. Skólastjórinn flúði
um leið og börnin tóku að veikjast,
eftir að hafa lagt sér skólamáltíð
til munns.
Staðfest hefur verið að skordýra-
eitur var í matnum í lífshættu-
lega miklu magni. Fjölmörgu börn
veiktust alvarlega, auk þeirra sem
létust. - gb
Matareitrunin á Indlandi:
Skólastjórinn
handtekinn