Fréttablaðið - 25.07.2013, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 25.07.2013, Blaðsíða 18
25. júlí 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR VIÐSKIPTI | 18 Arðsemi í rekstri íslensku bank- anna, sem einkavæddir voru á árunum 1998 til 2003, var hvað lakastur á árunum 2006 til 2007, á sama tíma og bókhaldslegur hagn- aður var hvað mestur. Þetta kemur fram í nýútkominni meistararitgerð Snorra Jakobs- sonar um áhrif eignarhalds á rekstrarárangur íslenskra inn- lánastofnana. Ritgerðin hlaut framúrskarandi einkunn í Hag- fræðideild Háskóla Íslands. Helstu niðurstöður eru þær að rekstur ríkisbankanna hafi ekki orðið skilvirkari eftir einkavæð- ingu þrátt fyrir að flestar rann- sóknir sýni fram á að einkabank- ar skili almennt meiri arðsemi og séu skilvirkari í rekstri. „Framkvæmd við einkavæðingu íslensku bankanna mistókst. Ríkis- bankarnir voru litlir og kostnaður var mjög hár. Í stað þess að fara í niðurskurð og hagræða í rekstri eftir einkavæðinguna ákváðu bankarnir heldur að fara í útrás,“ segir Snorri, sem bendir á að menn hafi ekki horft nógu mikið á grunnrekstur bankanna. Í ritgerðinni kemur fram að við fyrstu sýn hafi íslenska banka- kerfið virst standa traustum fótum. Arðsemi var há, hlutabréfa- verð hátt og lánshæfismat sterkt. Hins vegar þurfti ekki að kafa djúpt í reikninga þeirra til þess að sjá að grunnreksturinn var mjög veikur. „Að fara í niðurskurð er alltaf óvinsælt og hræðsla bankanna við að missa markaðshlutdeild sína gerði það að verkum að ekki var tekið til slíkra aðgerða,“ útskýrir Snorri. Í staðinn fyrir hagræðingu voru óreglulegir liðir í rekstri bank- anna, líkt og gengishagnaður, not- aðir til að bæta upp slakan grunn- rekstur. „Lítill munur var á rekstri bank- anna fyrir og eftir einkavæð- ingu. Hins vegar var bókhaldsleg arðsemi einkavæddu bankanna mun betri, sem gaf óraunveru- lega mynd af stöðu þeirra,“ segir Snorri. Samkvæmt niðurstöðum rann- sóknarinnar voru íslenskir bank- ar litlar og óhagkvæmar einingar. Eigendur höfðu því um tvennt að velja, pólitískt óvinsælan niður- skurð eða útrás. lovisa@frettabladid.is Einstaklingar greiða 11,7 milljarða króna í fjármagnstekjuskatt vegna ársins 2012, sem er 13,9 prósenta aukning frá síðasta ári. Um 42 þúsund greiddu fjármagnstekjuskatt á árinu. Alls greiddu 5.980 aðilar, um 3.100 fjölskyldur, samtals 5,6 milljarða króna í auðlegðarskatt vegna ársins 2012. Það er 0,3 prósenta lækkun frá árinu 2011. Viðbótarauð- legðarskattur var lagður á hlutabréfaeign 4.988 skattgreiðenda, samtals 3,5 milljarðar króna, sem er 44 prósenta aukning milli ára. Að fara í niðurskurð er alltaf óvinsælt og hræðsla bankanna við að missa markaðs- hlutdeild sína gerði það að verkum að ekki var tekið til slíkra aðgerða. Snorri Jakobsson hagfræðingur 25% 20% 15% 10% 5% 0% -5% -10% ARÐSEMI ÍSLENSKA BANKAKERFISINS 6,3% 0,2% 0,2% 8,5% 1,8% 5,3% 18,7% 22,3% 24,0% 1,3% 6,3% 11,3% 7,1% 3,1% -0,1% 1,4% 8,1% 2,3% -1,5%-1,5% -9,5% -7,6% 1,0% 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 Arðsemi reglulegs rekstrar eða grunnrekstrar Arðsemi bókhaldslegs rekstrar Heimild: Snorri Jakobsson Myndin sýnir að grunnrekstur íslensku bankanna fór versnandi eftir að ríkisbankarnir Landsbanki Íslands og Búnaðar banki Íslands voru að fullu komnir í eigu einkaaðila í lok árs 2003. Grunnrekstur var hvað verstur á árunum 2006 til 2007, rétt fyrir hrun, en á sama tíma var bókhaldslegur hagnaður hvað mestur. Óreglulegir liðir, líkt og gengis- viðskipti, voru notaðir til að bæta upp slakan grunnrekstur. Grunnrekstur var betri fyrir einkavæðingu Arðsemi íslensku bankanna varð minni við einkavæðingu þeirra Þótt rannsóknir bendi til að einkabankar séu skilvirkari í rekstri en ríkisbankar átti það ekki við um íslensku bankana eftir einkavæðingu ef marka má nýja ritgerð. Framkvæmd einkavæðingarinnar mistókst og gengishagnaður var notaður til að bæta upp slakan grunnrekstur. Skuldir íslenskra heimila jukust um rúmlega 1,5 prósent á síðasta ári og skuldar meðalheimilið nú um 12 milljónir króna. Eignirnar juk- ust þó meira, um 6,9 prósent sam- kvæmt samantekt Ríkisskattstjóra. Íslensk heimili skulduðu samtals 1.785 milljarða króna í árslok 2012 samanborið við 1.759 milljarða í byrjun þess árs. Um 68 þúsund fjölskyldur af þeim 94 þúsundum sem telja fram skulduðu í húsnæði sínu en 26 þús- und skulda ekkert í húsnæði sínu. Heildar skuldir heimilanna vegna húsnæðisskulda voru 1.159 millj- arðar í lok árs 2012. Þær fjölskyldur sem skulda vegna húsnæðiskaupa skulda um 17 milljónir að meðaltali. Eignir heimilanna námu 3.861 milljarði króna í lok síðasta árs og höfðu þá aukist um 6,9 prósent á árinu. Ástæðan er einkum hækkað verðmæti fasteigna. Verðmæti fast- eigna, sem er ríflega tveir þriðju af eignum heimilanna, jókst um 9 pró- sent í fyrra en verðmæti annarra eigna um 2,4 prósent. - bj Meðalfjölskyldan skuldar um tólf milljónir króna samkvæmt samantekt ríkisskattstjóra á skattamálum: Eignir heimilanna aukast meira en skuldir ➜ Fjármagnstekjuskattur skilar meiru EINKABANKARNIR EKKI ARÐSAMARI Landsbanki Íslands varð að fullu einka- væddur árið 2003, ásamt Búnaðarbanka Íslands. Ársverðbólgan mælist nú 3,8 pró- sent og hækkar lítillega eftir að hafa staðið í 3,3 prósentum síðustu mánuði. Samkvæmt mælingu Hagstofu Íslands lækkaði vísitala neyslu- verðs um 0,27 prósent milli júní og júlí. Ástæður þess að vísitalan lækkar á milli mánaða eru einkum sumarútsölur á fötum og skóm, sem ná að vega upp hækkun á áhrifum húsnæðis og hækkandi eldsneytisverðs, og ríflega það. - bj Verðbólgan mælist 3,8%: Sumarútsölur duga ekki til Áttu leið um Fljótsdal? Ef þú átt leið um Fljótsdal í sumar er upplagt að koma við í gestastofunni í Végarði og kynnast Fljótsdalsstöð, stærstu vatnsaflsstöð landsins. Þar er heitt á könnunni alla daga í sumar og boðið upp á leiðsögn við Kárahnjúkastíflu og Hálslón, vatnsmesta lón landsins. Gestastofur Landsvirkjunar eru opnar 10-17 alla daga í allt sumar: Búrfellsstöð Gagnvirk orkusýning og vindmyllur á Hafinu Kröflustöð Jarðvarmasýning í gestastofu Fljótsdalsstöð Gestastofa í Végarði og leiðsögn um Kárahnjúka mið. og lau. 14-17. Nánari upplýsingar á www.landsvirkjun.is/heimsoknir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.