Fréttablaðið - 25.07.2013, Síða 56

Fréttablaðið - 25.07.2013, Síða 56
25. júlí 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 40 KYNLEYSI Eitt prósent einstaklinga er kynlaust en lítið er vitað um þennan hóp fólks. NORDICPHOTOS/GETTY ? Ég var í sambandi með stúlku sem „allt í einu“ hafði engan áhuga á kynlífi og sagði að það tengdist ekki mér heldur hefði hún bara almennt misst allan áhuga á kynlífi. Ég skoðaði þetta á netinu og sá eitthvað um að það væru til einstaklingar sem hefðu enga kyn- löngun. Hvernig virkar það eigin- lega? Ég veit að maður getur verið í mismiklu stuði en er maður þá bara aldrei í stuði þegar kynlöng- unin er engin og getur það bara komið fyrir allt í einu? Við erum reyndar ekki saman lengur en ég hef mikið velt þessu fyrir mér. ● ● ● SVAR Það eru til einstaklingar sem skilgreina sína kynhneigð út frá því að hafa hvorki kynlöng- un né kynferðislegan áhuga (e. asexual). Ég hef því miður ekki gott íslenskt orð yfir þessa kyn- hneigð því kynlausir finnst mér ekki eiga við þótt það sé vissu- lega notað. Þetta er ekki eins leitur hópur og sumir þeirra stunda sjálfsfróun og aðrir ekki. Hins vegar hafa allir tilfinningalegar þarfir og því eru sumir í sambönd- um sem geta verið innileg og náin en þó án kynferðislegs sam neytis. Kynfærin geta samt sem áður svarað kynferðislegri örvun. Þá ber ekki að rugla þessum einstak- lingum saman við þá sem kjósa að lifa skírlífi en slíkt tengist oftar en ekki trúarlegum ástæðum og getur varað tímabundið. Það er áætlað að um eitt pró- sent einstaklinga sé kynlaust og þetta er yfirleitt ekki eitthvað sem gerist á einni nóttu, ekki frekar en aðrar kynhneigðir. Þetta hefur hins vegar ekki verið mikið rann- sakað, sérstaklega vegna þess að þetta er sjaldan valkostur fyrir kynhneigð í bakgrunnsbreytum rannsókna og því vitum við lítið um þennan hóp. Þó er ákveðin vit- undarvakning um málefni þeirra og verða kynlausir sem sérhópur í Gaypride-göngum til dæmis í Bretlandi og Kanada í ár. Nú er ómögulegt fyrir mig að segja til um hvort kærasta þín hafi tímabundið misst áhugann eða alfarið en það er vissulega þekkt fyrirbæri að kynlöngun í langtímasamböndum dvíni og það geta margar ástæður verið fyrir því, bæði líkamlegar og andlegar. Eitt prósent einstak- linga er kynlaust KYNLÍF TAKTU ÞÁTT! Sendu Siggu Dögg póst og segðu henni frá vandamáli úr bólinu. Lausnin gæti birst í Fréttablaðinu. kynlif@frettabladid.is „Oftast þarf maður að fara inn á heimasíður hjá sveitarfélögunum til þess að sjá hátíðar dagskrár en við vildum bara grípa þetta allt saman á einum og sama staðnum,“ segir Húsvíkingurinn Atli Björg- vinsson, sem opnað hefur vefsíð- una Hátíðir.is ásamt félaga sínum, Sigurði Má Sigurðssyni. Á vefsíð- unni verður hægt að finna hátíðar- dagskrá hinna ýmsu bæjar hátíða víðs vegar um landið. Strákarnir ætla að byrja á því að kynna dag- skrá Mæru daganna í heimabæ þeirra, Húsavík, sem fram fer um helgina. Hugmyndina fengu þeir frá félögum sínum. „Vinir okkar vildu vita hvaða bæjar- hátíðir væru í boði og hvar þær væri að finna. Við kunnum aðeins í forritun svo við ákváðum að taka saman hvað væri í boði. Í upp- hafi ætluðum við aðeins að gera þetta fyrir Mærudagana en síðan fékk svo góðar undirtektir að við ákváðum að setja þetta í loftið fyrir almenning,“ segir Atli. Hann bætir við að til standi að tækla flestar útihátíðir með tíð og tíma. Atli segir að fjöldi bæjarhátíða standi fólki til boða en að oft reynist erfitt að nálgast dagskrá. „Það er alveg hellingur af bæj- arhátíðum sem fólk veit ekki af. Oft reynir fólk líka að elta sólina á síðustu stundu og þá er gott að hafa vefsíðu sem sýnir hvað er í boði, hvort sem það er lítil hátíð á Húsavík eða Raufarhöfn eða Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum,“ segir Atli. kristjana@frettabladid.is Opna vefsíðu fyrir bæjarhátíðardagskrá Atli Björgvinsson og Sigurður Már Sigurðsson hafa opnað vefsíðuna Hátíðir.is. BYRJA UM HELGINA Þeir Atli og Sigurður Már sjá um vefsíðuna Hátíðir.is Þar er hægt að finna upplýsingar um bæjarhátíðir víðs vegar um landið. Mærudagar á Húsavík fara fram um helgina og eru allar upplýsingar um hana að finna á vefsíðunni. Eins og meðganga getur verið ánægjulegt tímabil kannast sennilega flestar mæður við að vera orðnar langþreyttar á biðinni eftir afkvæm- inu þegar komið er á 40. viku. Þó svo að þolinmæði sé lykilorðið fyrir langþreyttar verðandi mæður eru til ýmis ráð sem eiga að hjálpa til við að koma fæðingu af stað. Hvernig koma má fæðingu af stað Nokkur ráð fyrir örvæntingarfullar verðandi mæður. FÆÐING Ýmsar leiðir má reyna til að koma fæðingu af stað þegar kona er gengin 40 vikur. 1. Nálastungur Örvun á sumum nálastungu- punktum er talin mögulega geta komið fæðingu af stað. 2. Laxerolía Laxerolía er notuð víða um heim til að framkalla fæðingu en hún verkar örvandi á myndun prosta- glandína. 3. Sterkur matur Talið er að sterkur mati geti komið fæðingu af stað þar sem hann hefur örvandi áhrif á magann, sem hefur þar af leiðandi örvandi áhrif á legið. 4. Ananas Ananas inniheldur ensímið bromlein sem er talið hafa mýkjandi áhrif á legháls- inn. 5. Örvun geirvarta Að nudda geirvörturnar varlega er talið geta komið af stað samdrátt- um í leginu þar sem tilfinningin er lík því þegar barn er á brjósti. Við það framleiðist hormónið oxýtósín sem framkallar hríðir. 6. Kynlíf Samfarir geta stuðlað að framköllun fæðingar þegar fullri meðgöngu- lengd er náð. Þegar konan nær fullnægingu framleiðir líkami hennar hormónið oxýtósín, sem hefur áhrif á samdrætti í leginu, og sæði mannsins inniheldur prostaglandín-efni, sem þroska leghálsinn. 7. Göngutúr Þrýstingurinn þegar höfuð barnsins þrýstir á leghálsinn innan frá losar oxýtósín, sem eins og áður segir framkallar hríðir.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.