Fréttablaðið - 25.07.2013, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 25.07.2013, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR 25. júlí 2013 | FRÉTTIR | 11 VÍSINDI Fjallgarðar á plánetunni Mars veita vísbendingar um að þar hafi rignt einhvern tímann í sögu plánetunnar rauðu. Vísindamenn við Brown- háskóla í Bandaríkjunum telja jarðmyndanir á fjöllunum svipa til fjalla á Havaí, þar sem vindur- inn blæs skýjum upp fjallgarðana en megnar ekki að koma þeim yfir. Þar af leiðandi rignir bara öðru megin á fjöllin. Vísindamenn eru almennt sam- mála um að vatn hafi verið á yfirborði Mars, en gögn hefur skort til að sýna fram á hvort það flæddi einfaldlega upp á yfir- borðið eða hvort því rigndi eða snjóaði yfir yfirborðið. - bj Fjöllin veita vísbendingu: Virðist hafa rignt á Mars SKORNINGAR Skorningar í fjöllunum á Mars gætu veitt vísbendingar um veður- far á plánetunni á meðan vatn fannst á yfirborðinu. MYND/NASA SVARTFJALLALAND, AP Nokkur hundruð manns gerðu aðsúg að gleðigöngu samkynhneigðra í Svartfjallalandi í gær. Þetta var fyrsta gleði- gangan í sögu landsins. Árásarmennirnir köstuðu grjóti, flöskum og glösum að göngufólkinu, og jafnvel stólum af kaffihúsum. Fáeinir tugir manna tóku þátt í göngunni og fékk hópurinn lögregluvernd, þannig að gang- an gekk stórslysalaust fyrir sig. Um tuttugu árásarmenn voru handteknir. „Því miður hefur Svartfjallaland á tuttugu ára umbreytingartímum ekki náð nægum þroska til að þola það að fólk sé mismunandi,“ sagði Rasko Konjevic innanríkisráðherra. Zdravko Cimbaljevitsj, sem árið 2010 varð fyrstur íbúa Svartfjallalands til að lýsa því yfir að hann væri samkynhneigður, sagðist vissu- lega hafa reiknað með andstöðu í gær, „…en þessi árás er satt að segja hin sanna ímynd Svartfjallalands.“ Íbúar landsins eru um 600 þúsund talsins. Samfélagið er íhaldssamt og karlremba sögð landlæg. Ekki hefur þótt þorandi að efna til gleðigöngu fyrr vegna hótana um ofbeldi. - gb Hundruð manna réðust á samkynhneigða í gleðigöngu í Svartfjallalandi: Köstuðu grjóti, glösum og stólum SAMKYNHNEIGÐIR Í LÖGREGLUFYLGD Lögreglan verndaði göngufólk gegn ofbeldi öfgamanna. NORDICPHOTOS/AFP EGYPTALAND, AP Yfirmaður egypska hersins hvetur fólk til að halda út á götur á morgun til að mótmæla ofbeldi og styðja bæði herinn og nýju stjórnina, sem herinn kom til valda í byrjun júlí. Abdel Fattah el Sisi herforingi, sem er í senn æðsti yfirmaður hersins, varnarmálaráðherra og aðstoðarforsætisráðherra, segir að fjölmenn mótmæli nú gefi stjórninni og hernum „umboð“ til að gera það sem þarf til að stöðva blóðsúthellingar, eins og hann orðaði það. - gb Herinn biður um stuðning: El Sisi hvetur til mótmæla VIÐSKIPTI Tekjur Marel hf. lækk- uðu um 4,3 prósent á öðrum árs- fjórðungi þessa árs miðað við sama tímabil í fyrra. Tekjurnar í ár námu 178,4 millj- ónum evra, sem samsvarar um 28,5 milljörðum króna. Rekstrar- hagnaðurinn nam því sem svarar um tveimur milljörðum króna. „Afkoma Marel á fyrri helmingi ársins 2013 endurspeglar krefj- andi markaðsaðstæður og áfram- haldandi töf á fjárfestingu á helstu mörkuðum félagsins,“ segir í tilkynningu félagsins. „Marel gerir ráð fyrir að viðsnúningur á mörkuðum verði á næsta ári í stað seinni hluta þessa árs og gerir ráð fyrir hóflegri lækkun tekna fyrir árið í heild.“ - gar Tekjur lækka milli ára: Marel býst við viðsnúningi THEO HOEN Forstjóri Marel reiknar með betri tíð. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Álagningar- og innheimtuseðlar einstaklinga eru aðgengilegir á þjónustuvef ríkisskattstjóra; www.rsk.is og www.skattur.is. Útborgun bóta og endurgreiðsla hefst 1. ágúst Barna- og vaxtabætur ásamt öðrum inneignum verða greiddar 1. ágúst. Innheimta eftirstöðva hefst á sama tíma. Unnt er að vitja inneigna hjá Tollstjóranum í Reykjavík og sýslumönnum um land allt. Álagningarskrár liggja frammi á starfsstöðvum ríkisskatt stjóra, dagana 25. júlí til 8. ágúst 2013 að báðum dögum meðtöldum. Kærufresti lýkur 26. ágúst 2013. Álagningu skatta er lokið skattur.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.