Fréttablaðið - 25.07.2013, Blaðsíða 58
25. júlí 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 42
NÝ ÍSLENSK
FRAMLEIÐSLA
H
2
hö
nn
un
/
h
2h
.is
Jay-Z er að sögn slúðurmiðl-
anna vestanhafs duglegur við að
gefa hinum nýbaka föður, Kanye
West, uppeldisráð. Jay-Z eignað-
ist dótturina Blue Ivy með söng-
dívunni Beyoncé fyrir einu og
hálfu ári en hann ráðleggur vini
sínum West að halda kúlinu á
meðal almennings og einbeita
sér að föðurhlutverkinu. Kanye
og Kim Kardashian eignuðust
dótturina North West í júní. „Jay
hefur verið að fara í gegnum
það hvernig það er best að haga
sér á almannafæri. Hann sagði
Kanye að það væri best að ein-
beita sér ekki að því sem er að
gerast í kringum hann og þess í
stað njóta þess sem hann hefur,“
sagði heimildarmaður við dag-
blaðið Daily Star. Þetta kemur í
kjölfar atviks sem átti sér stað í
síðustu viku þegar Kanye lenti í
stóru rifrildi við ljósmyndara á
LAX flugvellinum. Ljósmyndar-
inn lét einhver ummæli falla sem
urðu til þess að rapparinn réðist
að honum og reyndi að slá hann.
Kanye á að hafa leitað til Jay-Z
eftir atvikið og beðið hann um
að hjálpa sér að haga sér betur
á almannafæri. „Kanye verður
svo reiður og pirraður yfir allri
athyglinni. Enginn skilur betur
en Jay-Z hvernig það er að vera í
sviðsljósinu allan sólarhringinn,“
bætti heimildarmaðurinn við.
Kanye fær uppeldisráð frá Jay-Z
Rapparinn Jay-Z er duglegur að ráðleggja vini sínum Kanye West.
Bruce Willis og Mary Louise
Parker voru gestir í breskum
útvarpsþætti þar sem þau áttu
meðal annars að kynna kvik-
myndina Red 2. Willis þótti sér-
lega ósamvinnuþýður og ókurt-
eis við þáttastjórnandann Jamie
Edwards.
„Hefur nokkur leikari sagt þér
þetta áður, Jamie? Nú er ég ekki
að leika, þú ert ef til vill að leika,
en ég er bara að kynna myndina.
Selja hana. Skemmtilegi hlutinn
var að leika í henni,“ sagði Willis
í viðtalinu. Þegar hann var svo
spurður út ökuleikni sína í kvik-
myndinni sagði hann: „Ég er að
hugsa um akstur einmitt þessa
stundina. Ég á erfitt með að ein-
beita mér að þessu viðtali. Þú ert
með alveg frábærar spurningar,
Jamie. Skemmtilegt spjall,“ sagði
hinn geðþekki leikari.
Ókurteis við
útvarpsmann
ÓKURTEIS Bruce Willis þótti ókurteis
við breskan útvarpsmann.
NORDICPHOTOS/GETTY
MIKLIR MÁTAR Þeir Jay-Z og Kanye
West eru miklir félagar. Jay-Z gefur nú
hinum nýbaka föður hin ýmsu ráð.
GETTY/NORDICPHOTOS
Selena Gomez mætti þunn í viðtal
til þáttastjórnandans Jay Leno á
dögunum. Stúlkan fagnaði 21 árs
afmæli sínu á mánudagskvöldið
og sletti ærlega úr klaufunum af
því tilefni. Leno spurði stúlkuna
hversu marga drykki hún hefði
fengið sér og hún svaraði um hæl:
„Ég man það ekki.“ Þá spurði
hann hana hvort hún væri að
berjast við þynnkuna og svaraði
hún því játandi. Stúlkan ætlar
þó ekki að láta mánudagsdjamm-
ið duga en hún ætlar að halda
þemapartí um helgina. „Það
verður afmælisveisla um helgina
með sígaunaþema. Ég hlakka
mikið til,“ sagði söng konan við
Jay Leno.
Selena mætti
þunn til Leno
AFMÆLISÞYNNKA Selena Gomez
mætti í viðtal til Jay Leno daginn eftir
21 árs afmælið sitt. GETTY/NORDICPHOTOS