Fréttablaðið - 25.07.2013, Blaðsíða 50
25. júlí 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 34
MIÐAVERÐ AÐEINS KR. 1 .000 Í FORSÖLU - FYRIR FYRSTU 1000 GESTINA.
MIÐAVERÐ EFTIR ÞAÐ OG VIÐ HLIÐIÐ KR. 1 .500. TAKMARKAÐUR MIÐAFJÖLDI !
MIÐASALA HEFST Í DAG KL. 10 :00 Á MIDI . IS !
W
W
W
.L
IN
L
O
E
.C
O
M
Saxófónleikarinn Sigurður Flosa-
son og organistinn Gunnar Gunn-
arsson halda tónleika í Fríkirkj-
unni í Reykjavík í kvöld klukkan
20.
Tilefnið er útkoma tveggja geisla-
diska. Nýs safndisks, „Icelandic
Hymns“, sem inniheldur einvörð-
ungu íslensk sálmalög af fyrri
diskum þeirra félaga og endur-
útgáfu á „Draumalandinu“, ætt-
jarðarlagadiski, en hann hefur
verið ófáanlegur um hríð. Á tón-
leikunum verða flutt bæði forn
sálmaþjóðlög og verk íslenskra
tónskálda af ólíkum kynslóðum.
Gunnar og Sigurður hafa leikið
saman síðan 1999 og gefið út fjóra
hljómdiska sem notið hafa mikilla
vinsælda. - fsb
Gunnar og
Sigurður í
Fríkirkjunni
Upplestur Yrsu er sá síðasti af fjórum sem
haldnir hafa verið í Munnhörpunni undan-
farnar vikur. Þórir Gunnarsson, eigandi
Munnhörpunnar, segir vel hafa tekist til og
að matargestir, bæði erlendir og íslenskir,
séu mjög ánægðir með framtakið. „Auður
Ava var hérna síðasta fimmtudag og þá var
nánast fullt út úr dyrum,“ segir hann. „Við
búumst við álíka aðsókn hjá Yrsu.
Upplestrarnir eru í tengslum við sýn-
inguna The Art of Being Icelandic sem
nú stendur yfir í Tjarnarsal Ráðhússins
á vegum Bókmenntaborgarinnar Reykja-
víkur. Sýningin, sem er samstarfs verkefni
Ráðhússins, Reykjavíkur Bókmennta borgar
UNESCO og Miðstöðvar íslenskra bók-
mennta, beinir sjónum að íslenskum bók-
menntum í þýðingum en umgjörð hennar er
íslensk hönnun. Þar gefur meðal annars að
líta stóla Valdimars Harðarsonar, Sóley, en
stóllinn á 30 ára afmæli í ár, og önnur stofu-
húsgögn sem gestir geta tyllt sér í á meðan
gluggað er í íslenska bók.
Rétt er að taka fram að helgin fram undan
er síðasta sýningarhelgi The Art of Being
Icelandic í Ráðhúsinu. - fsb
Yrsa les á ensku í Munnhörpunni
Yrsa Sigurðardóttir rithöfundur les í hádeginu í dag upp úr enskum þýðingum á verkum sínum á veitinga-
staðnum Munnhörpunni í Hörpu. Uppákoman er í tengslum við sýninguna The Art of Being Icelandic.
GLÆPADROTTNING Yrsa nýtur vinsælda erlendis.
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
FIMMTUDAGUR
25. JÚLÍ 2013
Ljósmyndasýningar
17.00 Sýning Helgu Láru Haraldsdóttur
Myndarlegt verður opnuð á 1. hæð
Borgarbókasafns í Tryggvagötu 15. Á
sýningunni eru texti og ljósmyndir sem
unnar hafa verið í photoshop.
Uppistand
21.00 Á þessum tilraunauppistands-
kvöldum er opinn mæk og gefst nýjum
uppistöndurum tækifæri á að spreyta
sig ásamt því að þeir eldri og reyndari
geta prufað nýtt efni. Kynnir er Gunnar
Hrafn Jónsson en ásamt honum koma
einnig fram: Rökkvi Vésteinsson, Johanna
Jakobsdottir, Hjálmar Örn Jóhannsson,
Perla Sif Þorkelsdóttir, Bjössi Dan, Atli
Sigurjónsson, Egill Friðrik og Örvar Ingi.
Aðgangur ókeypis.
Tónlist
12.00 Kári Allansson organisti og Margrét
Hannesdóttir sópran koma fram í Hall-
grímskirkju. Aðgangur 1.700 kr.
17.00 Fríða Dís Guðmundsdóttir spilar á
ókeypis Pikknikk tónleikum í gróðurhúsi
Norræna hússins. Fríða Dís flytur efni af
væntanlegri sólóplötu sinni en hún hefur
starfað um árabil með hljómsveitunum
Klassart og Eldar.
20.00 Nordic Affect heldur tónleika með
yfirskriftina Tónlist um stund. Yfirskriftin
vísar til verksins Music for a while eftir
Henry Purcell en dagskrá tónleikanna er
tileinkuð honum. Með hópnum koma
fram einsögnvararnir Hallveig Rúnars-
dóttir sópran, Benedikt Kristjánsson
tenór og Ágúst Ólafsson baritón. Meðal
erlendra gesta í Nordic Affect eru Ian
Wilson blokkflautuleikari og Tuomo Suni
fiðluleikari.
21.00 Hljómsveitin Brother Grass
heldur tónleika á Café Rosenberg í kvöld.
Aðgangseyrir kr. 2.000.
21.30 Tónleikar með Óskari Guðjónssyni
og brasilíska gítarleikaranum og söngvar-
anum Ife Tolantino. Miðaverð kr. 1.500.
22.00 Magnús Einarsson, Eðvarð Lárus-
son, Karl Pétur Smith og Tómas Tómas-
son leika lög eftir The Rolling Stones.
Leiðsögn
21.00 Minjasafn Reykjavíkur býður
gestum og gangandi til sögugöngu í
kvöld. Gengið verður um Öskjuhlíð og
minjar um umsvif hernámsliðsins skoð-
aðar. Sérfræðingar frá Minjasafni Reykja-
víkur leiða gönguna. Lagt verður upp frá
Nauthóli í Nauthólsvík. Allir velkomnir og
þátttaka ókeypis.
Söngur
20.30 Rölt verður um innsta hluta
Ásbyrgis og ljúfir tónar göngufólks munu
bergmála frá hamraveggjum. Lagt verður
af stað frá bílastæðinu innst í Ásbyrgi kl.
20.30 og tekur röltið um 1-1,5 klst.
Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@
frettabladid.is