Fréttablaðið - 25.07.2013, Blaðsíða 28
25. júlí 2013 FIMMTUDAGUR| TÍMAMÓT | 28TÍMAMÓT
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Okkar ástkæra eiginkona og móðir,
SVANDÍS ÓLAFSDÓTTIR
kennari,
lést 19. júlí sl. á dvalar- og hjúkrunarheimilinu
Grund. Útför hennar fer fram frá
Fossvogskirkju mánudaginn 29. júlí kl. 13.
Eyþór Einarsson, Margrét, Ingibjörg,
Sigríður og Þórey Eyþórsdætur og fjölskyldur.
Innilegar þakkir til allra þeirra fjölmörgu
sem sýndu okkur samúð, hlýju og vináttu
við andlát og útför okkar elskulega
sonar, bróður, mágs og frænda,
SIGURDÓRS HALLDÓRSSONAR
Hamrabyggð 7, Hafnarfirði.
Halldór Gunnlaugsson
Bára Fjóla Friðfinnsdóttir
Skarphéðinn Halldórsson
Birta Dögg Birgisdóttir
Birgir Smári Skarphéðinsson
Emil Árni Skarphéðinsson
Fjölbreytt úrval legsteina
Frí áletrun og uppsetning
Sjá nánar á granithollin.is sími 555 38 88
Bæjarhrauni 26 (á móti Fjarðarkaupum)
Bæjarhrauni 26 - 220 Hafnarfirði
www.granithollin.is
Sími 555 38 88
Eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
SIGURÐUR HELGASON
sem lést 20. júlí, verður jarðsunginn frá
Háteigskirkju miðvikudaginn 31. júlí kl. 13.00.
Minningargreinar vinsamlegast afþakkaðar.
Stefanía Kemp
Oddný Sigurðardóttir Helena Leufstadius
Helgi Sigurðsson Ólöf Finnsdóttir
Sigurður Helgason
Þórunn Helgadóttir
Finnur Helgason
Ástkær móðir mín, fósturmóðir,
tengdamóðir, amma, langamma
og langalangamma,
PETRÍNA JÓNA ELÍASDÓTTIR
frá Skógum í Mosdal,
Arnarfirði,
lést laugardaginn 20. júlí á dvalar- og
hjúkrunarheimilinu Grund. Útförin fer fram
frá Háteigskirkju í Reykjavík fimmtudaginn 1. ágúst kl. 15.00.
Hallveig Elín Indriðadóttir Ólafur Kristinsson
Steingrímur Guðni Pétursson Sigríður Jónsdóttir Lepore
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður, faðir,
tengdafaðir og afi,
DANÍEL JÓNSSON
frá Dröngum á Skógarströnd,
lést aðfaranótt laugardagsins 20. júlí
á Landspítalanum í Fossvogi. Útförin fer
fram frá Árbæjarkirkju þriðjudaginn
30. júlí kl. 13.00.
Steinunn Bjarnadóttir
Hrafnkell Daníelsson Karen Dögg Gunnarsdóttir
Aðalsteinn Bjarni Bjarnason Kristín Guðbjörg Gísladóttir
Anna María Bjarnadóttir Karl Einarsson
og barnabörn.
Okkar ástkæra,
GUÐRÍÐUR BJARNHEIÐUR
ÁRSÆLSDÓTTIR
Skúmsstöðum,
Vestur-Landeyjum,
sem andaðist 13. júlí, verður jarðsungin frá
Akureyjarkirkju laugardaginn 27. júlí kl. 16.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ragnheiður Þorvaldsdóttir og fjölskylda.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi, langafi og bróðir,
LÚÐVÍK HARALDSSON
fæddur Lloyd Martin Kyvik,
Krossi í Ölfusi,
lést á heimili sínu föstudaginn 19. júlí.
Jarðarförin fer fram frá Kotstrandarkirkju
laugardaginn 27. júlí kl. 14.30.
Eyrún Rannveig Þorláksdóttir
Ragnheiður Lúðvíksdóttir Þorsteinn Jóhann Vilmundarson
Magnús Arnulf Lúðvíksson Laufey Jónsdóttir
afabörn, langafabörn, systkini og aðrir aðstandendur.
Ástkær faðir okkar, frændi og vinur,
JAKOB BIRGIR GUÐBJARTSSON
lést á Kumbaravogi 12. júní sl. Jarðarförin
fór fram í kyrrþey frá Stokkseyrarkirkju
15. júlí.
Aðstandendur.
Elskuleg amma okkar og systir,
MARGRÉT ÁSGEIRSDÓTTIR
Mávabraut í Keflavík,
lést á sjúkrahúsi Suðurnesja 5. júlí sl. Útför
hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu. Þökkum starfsfólki spítalans fyrir góða
umönnun og öðrum auðsýnda samúð og
umhyggju.
Rakel A. Garðarsdóttir
Garðar D. Garðarsson
Ásgeir Garðarsson
Gerður Petra Clements
„Við héldum tónleika í kirkjunni
á Hólmavík og fórum svo í partí
í Bragganum á eftir. Þá sáum við
hversu frábær staðurinn er og að
það gæti verið gaman að halda tón-
leika þar. Nú ætlum við að drífa í
því,“ segir söngkonan Jóhanna V.
Þórhallsdóttir. Jóhanna, ásamt stöll-
um sínum Björk Jónsdóttur og Sig-
nýju Sæmundsdóttur í sönghópnum
3 klassískar, heldur tónleika í Bragg-
anum á Hólmavík annað kvöld, föstu-
daginn 26. júlí, klukkan 20.30. Með í
för verða Bjarni Jónatansson píanó-
leikari og Gunnar Hrafnsson bassa-
leikari. Rúsínan í pylsuendanum er
sjálfur meistari Megas, sem ferðast
með til Hólmavíkur og tekur lagið
með hópnum.
„Upphaflega ætluðum við að
heiðra tvo risa í íslenskri tónlistar-
sögu, Gunnar Þórðarson, sem er auð-
vitað frá Hólmavík, og Megas, með
því að syngja lög eftir þá á tónleik-
unum. Svo kom það upp á á síðustu
stundu að Megas var til í að koma
með okkur og auðvitað þáðum við það
með þökkum,“ útskýrir Jóhanna og
segist afar spennt fyrir tónleikunum
annað kvöld.
Meðal laga eftir Megas sem 3
klassískar taka fyrir eru Spáðu í
mig, Aðeins eina nótt, Táraborg og
Vertu mér samferða inn í blóma-
landið amma. „Hann Megas semur
svo dásamleg lög og það er virkilega
gaman að koma með örlítil klassísk
áhrif inn í þau. Það má ekki syngja
lög eftir Megas án þess að vanda til
verka og við höfum legið yfir þessum
lögum í lengri tíma,“ segir Jóhanna.
Sönghópurinn 3 klassískar hefur
starfað saman í tvo áratugi og haldið
fjölda tónleika um allt land. Hópurinn
gaf einnig út plötuna Fyrir austan mána
og vestan sól fyrir tíu árum en hún er
nú uppseld. Í ferðinni hyggst hópurinn
einnig skella sér út í Grímsey og njóta
náttúrufegurðarinnar þar. „Svo verður
auðvitað bara standandi partí eftir tón-
leikana, það er ekki annað hægt,“ segir
Jóhanna og hlær. „Partíin verða betri
eftir því sem tónleikarnir eru betri.“
kjartan@frettabladid.is
Verður standandi partí
eft ir tónleikana
Sönghópurinn 3 klassískar heiðrar tvo risa í íslenskri tónlistarsögu á tónleikum
í Bragganum á Hólmavík annað kvöld, þá Gunnar Þórðarson og Megas. Sá síðarnefndi
verður með í för og tekur lagið með hópnum.
3 KLASSÍSKAR OG 2 PRÚÐBÚNIR Söngkonurnar Björk Jónsdóttir, Signý Sæmundsdóttir og
Jóhanna V. Þórhallsdóttir, ásamt Bjarna Jónatanssyni píanóleikara og Gunnari Hrafnssyni
bassa leikara, halda tónleika á Hólmavík annað kvöld. Megas tekur einnig lagið.
Þennan dag árið 1510 hóf Hekla að gjósa
eftir 120 ára hlé. Þetta var kraftmikið gos
sem hófst með gríðarlegum jarðskjálfta
og dynkjum. Logarnir teygðu sig til lofts
og ösku og glóandi grjóti rigndi yfir
nálægar sveitir.
Gosið olli miklum skaða um allt
Suðurland, meðal annars mannskaða.
Heimildir herma að fjórir menn hafi
farist í Rangárvallasýslu og einn hafi
rotast af steinkasti í Skálholti. Vindur
stóð af norðaustri og askan barst yfir
Rangárvelli og Landeyjar en einnig yfir
Landsveit og Holt og allt vestur í Flóa. Í
jarðvegi á Suðurlandi er askan frá 1510
langþykkasta og grófasta Heklulagið frá
sögulegum tíma.
Mikið hraunrennsli varð einnig í gosinu.
Megnið rann til suðurs milli Trippafjalla
og Vatnafjalla og samkvæmt heimildum
virðist sem fá gos hafi orðið afdrifaríkari
fyrir byggðaþróun á Suðurlandi.
ÞETTA GERÐIST: 25. JÚLÍ 1510
Gríðarlegt gos hefst í Heklu