Fréttablaðið - 25.07.2013, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 25.07.2013, Blaðsíða 48
25. júlí 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 32 Þetta gerðist allt mjög hratt, eins og gerist oft hér fyrir vestan,“ segir Elfar Logi Hannesson spurður hvað hafi orðið til þess að hann fór af stað með Act alone-hátíðina fyrir tíu árum. „Oft eru þetta reyndar ein- hverjar galnar hugmyndir sem ekki kom- ast í framkvæmd, en þessi varð að veru- leika, sem betur fer, og er nú orðin elsta leiklistarhátíð landsins og sú stærsta utan höfuðborgarinnar.“ Elfar Logi segir hátíðina til að byrja með hafa verið „lítinn sætan króga“, þrjár sýningar og einn fyrirlestur, en hún hafi heldur betur vaxið úr grasi og í ár verði um tuttugu viðburðir á Act Alone. „Eins og gerist með margar góðar hugmyndir þá varð þessi stjórnlaus og hélt sína leið, ég þurfti bara að elta.“ Svo umfangsmikil er Act alone-hátíð- in orðin að í vor var í fyrsta sinn stofnuð stjórn til að sjá um framkvæmd hennar. Í henni sitja engir aukvisar; Jón Viðar Jónsson, Rakel Garðarsdóttir og Sigurð- ur Péturs son og meðstjórnendur eru þau Ilmur Kristjánsdóttir og Elías Guðmunds- son. „Þetta er orðið heljarinnar batterí,“ segir Elfar Logi. „En við höfum samt náð að halda upphaflegu hugmyndinni til streitu. Hún var einfaldlega sú að kynna einleiksformið og bjóða upp á rjómann af einleiksárinu hverju sinni, sem og nýjar, ferskar, tilraunakenndar sýningar.“ Þú hefur sjálfur verið einna ötulastur á landinu við sýningu einleikja, hvað er það við þetta form sem heillar þig svona mikið? „Það er góð spurning. Yfirleitt ræður maður ekki miklu í lífi sínu sem leikari og listamaður og þó mann dreymi kannski stundum um stóra sigra á stórum leiksviðum þá hefur þetta form bara hel- tekið mig alveg frá því ég byrjaði að fást við það árið 2001. Þannig að formið hefur eiginlega valið mig frekar en öfugt. Þetta er líka rosaleg áskorun og ég held að í þessu formi sjáist það fljótar en í mörg- um öðrum hvort hlutirnir ganga upp eða ekki.“ Hátíðin í ár fer fram á Suðureyri, verð- ur þorpið ekki algjörlega undirlagt þessa daga? „Jú, það má segja það. Við höfum hingað til verið á Ísafirði en í fyrra komu til okkar miklir hugsjónamenn í ferða- mennskunni og atvinnulífinu á Suðureyri sem sáu sér hag í því að fá Act alone yfir til sín. Svona hátíð fylgir nefnilega fleira en einstök skemmtun. Þetta hefur töluverð áhrif á efnahagskerfið, hvað þá í svona litlu þorpi. Þannig að okkur fannst bara fallegt að færa okkur þarna yfir, enda til- heyrir Suðureyri Ísafjarðarbæ svo við erum ekki að taka hátíðina úr bænum.“ Frítt er inn á alla viðburði hátíðarinn- ar og Elfar Logi segir það eitt af því sem sett var í stefnuskrá strax í upphafi. „Það hefur alltaf verið frítt inn og mun alltaf verða. Það er óumbreytanlegt.“ fridrikab@frettabladid.is Litli sæti króginn er orðinn tíu ára og heljarinnar mikið batterí Leiklistarhátíðin Act alone verður haldin á Suðureyri dagana 8.-11. ágúst. Þetta er í tíunda sinn sem hátíðin er haldin og er hún orðin elsta leiklistarhátíð á landinu. Upphafsmaður hennar er Elfar Logi Hannesson leikari og segir hann sig ekki hafa órað fyrir því í upphafi að hátíðin yrði svona stór. Afmælisdagskráin er fj ölbreytt og boðið upp á námskeið, töfrabrögð, leiksýningar og tónleika. HELTEKINN AF EINLEIKJUM Elfar Logi segist eiginlega ekki hafa valið einleiksformið meðvitað, það hafi frekar valið hann. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA BJARNI HAUKUR ÞÓRSSON HOW TO BECOME ICE- LANDIC IN 60 MIN. ÁLFRÚN HELGA ÖRNÓLFSDÓTTIR KAMELJÓN VÍKINGUR KRISTJÁNSSON KISTUBERI HELGA ARNALDS SKRÝMSLIÐ LITLA SYSTIR MÍN MUGISON HELDUR TÓNLEIKA ➜ Dagskráin í ár er vegleg eins og hæfir tímamótunum, en meðal þeirra sem koma fram má nefna Bjarna Hauk Þórsson, Álfrúnu Helgu Örnólfsdóttur, Helgu Arnalds, Víking Kristjánsson og töframanninn Einar Mikael að ógleymdum sjálfum Mugison. Þetta er mjög skemmtileg flóra í ár, við erum bjóða upp á allt frá töfrabrögðum til tónlistar og leiklistar. EINAR MIKAEL TÖFRAMAÐUR Sýnir og kennir töfrabrögð á Act alone. MENNING
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.