Fréttablaðið - 25.07.2013, Page 48
25. júlí 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 32
Þetta gerðist allt mjög hratt, eins og gerist oft hér fyrir vestan,“ segir Elfar Logi Hannesson spurður hvað hafi orðið til þess að hann fór af stað með Act alone-hátíðina
fyrir tíu árum. „Oft eru þetta reyndar ein-
hverjar galnar hugmyndir sem ekki kom-
ast í framkvæmd, en þessi varð að veru-
leika, sem betur fer, og er nú orðin elsta
leiklistarhátíð landsins og sú stærsta utan
höfuðborgarinnar.“
Elfar Logi segir hátíðina til að byrja
með hafa verið „lítinn sætan króga“, þrjár
sýningar og einn fyrirlestur, en hún hafi
heldur betur vaxið úr grasi og í ár verði
um tuttugu viðburðir á Act Alone. „Eins
og gerist með margar góðar hugmyndir þá
varð þessi stjórnlaus og hélt sína leið, ég
þurfti bara að elta.“
Svo umfangsmikil er Act alone-hátíð-
in orðin að í vor var í fyrsta sinn stofnuð
stjórn til að sjá um framkvæmd hennar.
Í henni sitja engir aukvisar; Jón Viðar
Jónsson, Rakel Garðarsdóttir og Sigurð-
ur Péturs son og meðstjórnendur eru þau
Ilmur Kristjánsdóttir og Elías Guðmunds-
son. „Þetta er orðið heljarinnar batterí,“
segir Elfar Logi. „En við höfum samt
náð að halda upphaflegu hugmyndinni til
streitu. Hún var einfaldlega sú að kynna
einleiksformið og bjóða upp á rjómann af
einleiksárinu hverju sinni, sem og nýjar,
ferskar, tilraunakenndar sýningar.“
Þú hefur sjálfur verið einna ötulastur
á landinu við sýningu einleikja, hvað er
það við þetta form sem heillar þig svona
mikið? „Það er góð spurning. Yfirleitt
ræður maður ekki miklu í lífi sínu sem
leikari og listamaður og þó mann dreymi
kannski stundum um stóra sigra á stórum
leiksviðum þá hefur þetta form bara hel-
tekið mig alveg frá því ég byrjaði að fást
við það árið 2001. Þannig að formið hefur
eiginlega valið mig frekar en öfugt. Þetta
er líka rosaleg áskorun og ég held að í
þessu formi sjáist það fljótar en í mörg-
um öðrum hvort hlutirnir ganga upp eða
ekki.“
Hátíðin í ár fer fram á Suðureyri, verð-
ur þorpið ekki algjörlega undirlagt þessa
daga? „Jú, það má segja það. Við höfum
hingað til verið á Ísafirði en í fyrra komu
til okkar miklir hugsjónamenn í ferða-
mennskunni og atvinnulífinu á Suðureyri
sem sáu sér hag í því að fá Act alone yfir
til sín. Svona hátíð fylgir nefnilega fleira
en einstök skemmtun. Þetta hefur töluverð
áhrif á efnahagskerfið, hvað þá í svona
litlu þorpi. Þannig að okkur fannst bara
fallegt að færa okkur þarna yfir, enda til-
heyrir Suðureyri Ísafjarðarbæ svo við
erum ekki að taka hátíðina úr bænum.“
Frítt er inn á alla viðburði hátíðarinn-
ar og Elfar Logi segir það eitt af því sem
sett var í stefnuskrá strax í upphafi. „Það
hefur alltaf verið frítt inn og mun alltaf
verða. Það er óumbreytanlegt.“
fridrikab@frettabladid.is
Litli sæti króginn er orðinn tíu ára
og heljarinnar mikið batterí
Leiklistarhátíðin Act alone verður haldin á Suðureyri dagana 8.-11. ágúst. Þetta er í tíunda sinn sem hátíðin er haldin og er hún orðin
elsta leiklistarhátíð á landinu. Upphafsmaður hennar er Elfar Logi Hannesson leikari og segir hann sig ekki hafa órað fyrir því í upphafi
að hátíðin yrði svona stór. Afmælisdagskráin er fj ölbreytt og boðið upp á námskeið, töfrabrögð, leiksýningar og tónleika.
HELTEKINN AF EINLEIKJUM Elfar Logi segist eiginlega ekki hafa valið einleiksformið meðvitað, það hafi frekar
valið hann. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
BJARNI HAUKUR
ÞÓRSSON
HOW TO
BECOME ICE-
LANDIC IN 60
MIN.
ÁLFRÚN HELGA
ÖRNÓLFSDÓTTIR
KAMELJÓN
VÍKINGUR
KRISTJÁNSSON
KISTUBERI
HELGA ARNALDS
SKRÝMSLIÐ LITLA
SYSTIR MÍN
MUGISON
HELDUR TÓNLEIKA
➜ Dagskráin í ár er vegleg eins og
hæfir tímamótunum, en meðal
þeirra sem koma fram má nefna
Bjarna Hauk Þórsson, Álfrúnu Helgu
Örnólfsdóttur, Helgu Arnalds, Víking
Kristjánsson og töframanninn Einar
Mikael að ógleymdum sjálfum
Mugison.
Þetta er mjög
skemmtileg flóra í ár,
við erum bjóða upp á
allt frá töfrabrögðum til
tónlistar og leiklistar.
EINAR MIKAEL
TÖFRAMAÐUR Sýnir
og kennir töfrabrögð á
Act alone.
MENNING