Fréttablaðið - 25.07.2013, Blaðsíða 66

Fréttablaðið - 25.07.2013, Blaðsíða 66
25. júlí 2013 FIMMTUDAGUR| SPORT GOLF | 50 GOLF Íslandsmótið í höggleik fer fram í 71. skipti þessa helgina en í þetta sinn verður mótið haldið á Korpúlfsstaðavelli sem var nýlega stækkaður í 27 holur. Spilað verð- ur á fyrstu átján holunum sam- kvæmt nýja skipulaginu en þar fá keppendur bæði að spreyta sig á gömlum holum og nýjum. Völlurinn skiptist í þrjár „slauf- ur“ sem bera nöfnin Sjórinn, Áin og Landið. Spilað verður á fyrstu tveimur hlutunum en allar átján holurnar eru útlistaðar hér til hliðar. Völlurinn þykir sérlega glæsi- legur eftir breytingarnar og afrek- skylfingarnir eru sammála um að hann sé mjög krefjandi. „Það eru hættur beggja vegna brautarinnar á flestum holum og því mikilvægt að vera vel á bolt- anum og halda sér á braut,“ segir atvinnumaðurinn Ólafur Björn Loftsson en auk hans munu Birgir Leifur Hafþórsson, Þórður Rafn Gissurarson og Einar Haukur Óskarsson allir spila um helgina. Þeir hafa allir reynt fyrir sér á atvinnumótaröðum erlendis. „Þar að auki er völlurinn einn- ig erfiður að því leyti að hann reynir á stutta spilið hjá kylfing- um. Hann reynir því á allar hlið- ar golfsins og það er alveg ljóst að maður kemst ekki í gegnum hann á heppni,“ bætir Ólafur Björn við. Eins og á alvöru móti í útlöndum Birgir Leifur tekur í svipaðan streng og segir Korpúlfsstaðavöll nú í sérflokki á Íslandi. „Í fyrsta skipti fær maður það nú á tilfinn- inguna að maður sé að fara að keppa á alvöru móti í útlöndum. Sama hvernig aðstæðurnar verða þarf maður alltaf frábær högg til að komast sómasamlega frá þess- um velli,“ segir hann. Birgir Leifur segir að aðrir golf- Korpan verður ekki kláruð á heppni Íslandsmótið í höggleik hefst á Korpúlfsstaðavelli í dag en völlurinn skartar sínu fegursta eft ir að nýjar holur voru nýlega teknar í notkun. Allir okkar bestu kylfi ngar taka þátt í mótinu að þessu sinni og eru áhorfendur sérstaklega boðnir velkomnir í Korpuna. Eiríkur Stefán Ásgeirsson eirikur@frettabladid.is Hér má sjá stutt yfirlit yfir þær holur sem verða notaðar á Ís- landsmótinu í höggleik um helgina. Fyrstu tólf holurnar eru gamlar en síðustu sex nýjar. Ágúst Jensson, yfirvallarstjóri GR, segir frá holunum: KORPAN: SJÓRINN OG ÁIN Við skutlum Júlíu heim Póstdreifing | Vatnagörðum 22 | 104 Reykjavík | Sími 585 8300 | www.postdreifing.is Birtingur treystir okkur fyrir öruggri dreifingu á Júlíu FYRRI NÍU: SJÓRINN 1. hola (par 5): Góð byrj- unarhola sem gefur góðan möguleika á fugli. 2. hola (par 5): Skemmtileg hola sem gefur tækifæri ef menn eru reiðubúnir að taka smá áhættu. 3. hola (par 3): Löng og erfið. Gott að ná pari. 4. hola (par 4): Erfið hola þar sem menn labba sáttir í burtu með par. 5. hola (par 4): Hér skiptir teighöggið miklu máli og stað- setning á braut, þar sem flötin er mjög lítil. 6. hola (par 3): Stutt og auðveld hola. 7. hola (par 5): Mikill mögu- leiki á fugli fyrir sterka kylfinga. Erfitt að sætta sig við parið hér. 8. hola (par 4): Staðsetning eftir upphafshögg skiptir miklu máli fyrir innáhöggið inn á flöt, sem er hallandi. 9. hola (par 3): Skemmti- leg hola þar sem allir ættu að geta fengið par. SEINNI NÍU: ÁIN 10. hola (par 4): Í góðum aðstæðum er vel þess virði að taka áhættu og reyna við flötina. 11. hola (par 5): Sennilega léttasta holan á seinni níu. Hér vilja allir fá fugl. 12. hola (par 4): Ein erf- iðasta par 4 hola landsins. Tré beggja vegna brautar og teighöggið er þröngt. 13. hola (par 3): Fyrsta holan á nýja hlutanum. Mikið landslag á flöt og því skiptir staðsetning máli. 14. hola (par 4): Hér geta kylfingar tekið áhættu með því að stytta sér leið í upp- hafshögginu. En hún verður mjög erfið ef það bregst. 15. hola (par 4): Góð og sanngjörn hola þar sem möguleikinn á fugli er góður. 16. hola (par 4): 415 metrar en fyrstu tvö höggin eru mjög strembin. Lítið um fugla hér. 17. hola (par 3): Í lengri kantinum en hér væri gott að fá par. 18. hola (par 4): Löng hola heim að skála, þar sem upp- hafshöggið er mikilvægt. klúbbar á Íslandi mættu taka sér starf GR á Korpúlfsstaðavelli til fyrirmyndar. „Ég tel að þessi völlur muni skapa fullt af góðum kylfing- um í framtíðinni og ég hvet unga og efnilega kylfinga til að koma hingað og æfa sig. Aðrir klúbbar, eins og GKG, minn klúbbur, eiga að líta til Korpunnar og byggja upp velli sem gera íslenska kylf- inga betri. Það ætti að vera mark- mið okkar Íslendinga að búa til sem flesta afrekskylfinga sem geta náð árangri á erlendri grundu því það væri besta mögulega auglýsingin fyrir íslenskt golf.“ Birgir Leifur þekkir vel til íslensks afreksstarfs í golfi en hann var nýverið liðsstóri í forkeppni Evrópumóts landsliða áhugamanna þar sem Ísland vann sér inn þátt- tökurétt í aðalkeppninni. „Þetta var yngsta landslið sem Ísland hefur nokkru sinni átt og það var frábært að fá að starfa með þessum drengjum. Við eigum mikið af ungum kylfingum í bæði karla- og kvennaflokki sem geta spilað frábært golf. Það yrði svo sannarlega engin skömm fyrir okkur atvinnumennina að tapa fyrir þeim sem spilar vel á þessum velli því sá sem nær besta skorinu hér um helgina verður svo sannar- lega verðugur sigurvegari,“ segir Birgir Leifur. Völlurinn fljótur að refsa Valdís Þóra Jónsdóttir og Har- aldur Franklín Magnús eru ríkjandi Íslandsmeistarar en sú fyrrnefnda er nýkomin aftur til landsins eftir að hafa lokið námi í Banda ríkjunum. Hún stefnir á að taka þátt í úrtökumóti fyrir Evrópumóta röðina í haust. „Þessi völlur hentar mér ágæt- lega að ég tel. Ég slæ langt og maður þarf ágætis lengd á nokkr- um holum til að koma sér í gott færi. Ég þarf bara að halda mér á brautinni því völlurinn er fljót- ur að refsa. Maður getur ekki drit- að skotum í allar áttir eins og á mörgum íslenskum völlum,“ segir hún. „Það þekkist víða erlendis að maður þarf að spila gott staðsetn- ingargolf.“ 25 konur hafa skráð sig til leiks á Íslandsmótinu en 112 í karlaflokki. Valdís Þóra á þó von á harðri sam- keppni um Íslandsmeistaratitilinn. „Við erum margar ungar, og mjög góðar stelpur sem geta spil- að vel og veitt manni mikla sam- keppni. Það gerir mótið enn skemmtilegra fyrir vikið en ég stefni að sjálfsögðu að því að vinna titilinn. Annars væri ég ekki að taka þátt,“ segir hún en Valdís Þóra varð einnig meistari árið 2009. 50. Íslandsmót Björgvins Alls verða leiknar 72 holur á fjór- um dögum. Að loknum fyrstu tveimur keppnisdögunum verður keppendum í karlaflokki fækkað þannig að þeir 72 kylfingar sem eru með lægsta skorið haldi áfram. Verði fleiri en einn kylfingur jafn- ir í 72. sæti halda allir áfram. Að sama skapi verður keppend- um í kvennaflokki fækkað í átján eftir fyrstu tvo dagana en sá fyrir- vari er á að allir þeir sem eru mest tíu höggum frá efsta manni fá að halda áfram. Fyrstu rás hóparnir halda út klukkan 07.30 alla keppn- isdagana en þess má geta að í fyrsta ráshópnum í dag verður Björgvin Þorsteinsson, GA, sem er nú að taka þátt í sínu 50. Íslands- móti. REYNIR Á Guðrún Brá Björgvinsdóttir slær upphafshögg á Korpúlfsstaðavelli í vikunni. Úlfarsfellið er í baksýn en fyrir aftan Guðrúnu eru nokkrir af afrekskylfingum Íslands í karlaflokki. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.