Fréttablaðið - 25.07.2013, Side 66
25. júlí 2013 FIMMTUDAGUR| SPORT GOLF | 50
GOLF Íslandsmótið í höggleik fer
fram í 71. skipti þessa helgina en
í þetta sinn verður mótið haldið á
Korpúlfsstaðavelli sem var nýlega
stækkaður í 27 holur. Spilað verð-
ur á fyrstu átján holunum sam-
kvæmt nýja skipulaginu en þar fá
keppendur bæði að spreyta sig á
gömlum holum og nýjum.
Völlurinn skiptist í þrjár „slauf-
ur“ sem bera nöfnin Sjórinn, Áin
og Landið. Spilað verður á fyrstu
tveimur hlutunum en allar átján
holurnar eru útlistaðar hér til
hliðar.
Völlurinn þykir sérlega glæsi-
legur eftir breytingarnar og afrek-
skylfingarnir eru sammála um að
hann sé mjög krefjandi.
„Það eru hættur beggja vegna
brautarinnar á flestum holum og
því mikilvægt að vera vel á bolt-
anum og halda sér á braut,“ segir
atvinnumaðurinn Ólafur Björn
Loftsson en auk hans munu Birgir
Leifur Hafþórsson, Þórður Rafn
Gissurarson og Einar Haukur
Óskarsson allir spila um helgina.
Þeir hafa allir reynt fyrir sér á
atvinnumótaröðum erlendis.
„Þar að auki er völlurinn einn-
ig erfiður að því leyti að hann
reynir á stutta spilið hjá kylfing-
um. Hann reynir því á allar hlið-
ar golfsins og það er alveg ljóst að
maður kemst ekki í gegnum hann
á heppni,“ bætir Ólafur Björn við.
Eins og á alvöru móti í útlöndum
Birgir Leifur tekur í svipaðan
streng og segir Korpúlfsstaðavöll
nú í sérflokki á Íslandi. „Í fyrsta
skipti fær maður það nú á tilfinn-
inguna að maður sé að fara að
keppa á alvöru móti í útlöndum.
Sama hvernig aðstæðurnar verða
þarf maður alltaf frábær högg til
að komast sómasamlega frá þess-
um velli,“ segir hann.
Birgir Leifur segir að aðrir golf-
Korpan verður ekki kláruð á heppni
Íslandsmótið í höggleik hefst á Korpúlfsstaðavelli í dag en völlurinn skartar sínu fegursta eft ir að nýjar holur voru nýlega teknar í
notkun. Allir okkar bestu kylfi ngar taka þátt í mótinu að þessu sinni og eru áhorfendur sérstaklega boðnir velkomnir í Korpuna.
Eiríkur Stefán
Ásgeirsson
eirikur@frettabladid.is
Hér má sjá stutt
yfirlit yfir þær
holur sem verða
notaðar á Ís-
landsmótinu í
höggleik um
helgina. Fyrstu tólf
holurnar eru gamlar en
síðustu sex nýjar. Ágúst
Jensson, yfirvallarstjóri
GR, segir frá holunum:
KORPAN: SJÓRINN OG ÁIN
Við skutlum Júlíu heim
Póstdreifing | Vatnagörðum 22 | 104 Reykjavík | Sími 585 8300 | www.postdreifing.is
Birtingur treystir okkur fyrir
öruggri dreifingu á Júlíu
FYRRI NÍU: SJÓRINN
1. hola (par 5): Góð byrj-
unarhola sem gefur góðan
möguleika á fugli.
2. hola (par 5): Skemmtileg
hola sem gefur tækifæri ef
menn eru reiðubúnir að taka
smá áhættu.
3. hola (par 3): Löng og erfið.
Gott að ná pari.
4. hola (par 4): Erfið hola þar
sem menn labba sáttir í burtu
með par.
5. hola (par 4): Hér skiptir
teighöggið miklu máli og stað-
setning á braut, þar sem flötin
er mjög lítil.
6. hola (par 3): Stutt og
auðveld hola.
7. hola (par 5): Mikill mögu-
leiki á fugli fyrir sterka kylfinga.
Erfitt að sætta sig við parið hér.
8. hola (par 4): Staðsetning
eftir upphafshögg skiptir miklu
máli fyrir innáhöggið inn á flöt,
sem er hallandi.
9. hola (par 3): Skemmti-
leg hola þar sem allir
ættu að geta fengið par.
SEINNI NÍU: ÁIN
10. hola (par 4): Í góðum
aðstæðum er vel þess
virði að taka áhættu og
reyna við flötina.
11. hola (par 5):
Sennilega léttasta holan
á seinni níu. Hér vilja allir
fá fugl.
12. hola (par 4): Ein erf-
iðasta par 4 hola landsins.
Tré beggja vegna brautar
og teighöggið er þröngt.
13. hola (par 3): Fyrsta
holan á nýja hlutanum.
Mikið landslag á flöt og því
skiptir staðsetning máli.
14. hola (par 4): Hér geta
kylfingar tekið áhættu með
því að stytta sér leið í upp-
hafshögginu. En hún verður
mjög erfið ef það bregst.
15. hola (par 4): Góð og
sanngjörn hola þar sem
möguleikinn á fugli er góður.
16. hola (par 4): 415 metrar
en fyrstu tvö höggin eru
mjög strembin. Lítið um
fugla hér.
17. hola (par 3): Í lengri
kantinum en hér væri gott
að fá par.
18. hola (par 4): Löng hola
heim að skála, þar sem upp-
hafshöggið er mikilvægt.
klúbbar á Íslandi mættu taka sér
starf GR á Korpúlfsstaðavelli til
fyrirmyndar. „Ég tel að þessi völlur
muni skapa fullt af góðum kylfing-
um í framtíðinni og ég hvet unga
og efnilega kylfinga til að koma
hingað og æfa sig. Aðrir klúbbar,
eins og GKG, minn klúbbur, eiga
að líta til Korpunnar og byggja
upp velli sem gera íslenska kylf-
inga betri. Það ætti að vera mark-
mið okkar Íslendinga að búa til sem
flesta afrekskylfinga sem geta náð
árangri á erlendri grundu því það
væri besta mögulega auglýsingin
fyrir íslenskt golf.“
Birgir Leifur þekkir vel til
íslensks afreksstarfs í golfi en hann
var nýverið liðsstóri í forkeppni
Evrópumóts landsliða áhugamanna
þar sem Ísland vann sér inn þátt-
tökurétt í aðalkeppninni.
„Þetta var yngsta landslið sem
Ísland hefur nokkru sinni átt og
það var frábært að fá að starfa
með þessum drengjum. Við eigum
mikið af ungum kylfingum í bæði
karla- og kvennaflokki sem geta
spilað frábært golf. Það yrði svo
sannarlega engin skömm fyrir
okkur atvinnumennina að tapa
fyrir þeim sem spilar vel á þessum
velli því sá sem nær besta skorinu
hér um helgina verður svo sannar-
lega verðugur sigurvegari,“ segir
Birgir Leifur.
Völlurinn fljótur að refsa
Valdís Þóra Jónsdóttir og Har-
aldur Franklín Magnús eru
ríkjandi Íslandsmeistarar en sú
fyrrnefnda er nýkomin aftur til
landsins eftir að hafa lokið námi
í Banda ríkjunum. Hún stefnir á
að taka þátt í úrtökumóti fyrir
Evrópumóta röðina í haust.
„Þessi völlur hentar mér ágæt-
lega að ég tel. Ég slæ langt og
maður þarf ágætis lengd á nokkr-
um holum til að koma sér í gott
færi. Ég þarf bara að halda mér
á brautinni því völlurinn er fljót-
ur að refsa. Maður getur ekki drit-
að skotum í allar áttir eins og á
mörgum íslenskum völlum,“ segir
hún. „Það þekkist víða erlendis að
maður þarf að spila gott staðsetn-
ingargolf.“
25 konur hafa skráð sig til leiks á
Íslandsmótinu en 112 í karlaflokki.
Valdís Þóra á þó von á harðri sam-
keppni um Íslandsmeistaratitilinn.
„Við erum margar ungar, og
mjög góðar stelpur sem geta spil-
að vel og veitt manni mikla sam-
keppni. Það gerir mótið enn
skemmtilegra fyrir vikið en ég
stefni að sjálfsögðu að því að vinna
titilinn. Annars væri ég ekki að
taka þátt,“ segir hún en Valdís Þóra
varð einnig meistari árið 2009.
50. Íslandsmót Björgvins
Alls verða leiknar 72 holur á fjór-
um dögum. Að loknum fyrstu
tveimur keppnisdögunum verður
keppendum í karlaflokki fækkað
þannig að þeir 72 kylfingar sem
eru með lægsta skorið haldi áfram.
Verði fleiri en einn kylfingur jafn-
ir í 72. sæti halda allir áfram.
Að sama skapi verður keppend-
um í kvennaflokki fækkað í átján
eftir fyrstu tvo dagana en sá fyrir-
vari er á að allir þeir sem eru mest
tíu höggum frá efsta manni fá að
halda áfram. Fyrstu rás hóparnir
halda út klukkan 07.30 alla keppn-
isdagana en þess má geta að í
fyrsta ráshópnum í dag verður
Björgvin Þorsteinsson, GA, sem er
nú að taka þátt í sínu 50. Íslands-
móti.
REYNIR Á Guðrún Brá Björgvinsdóttir
slær upphafshögg á Korpúlfsstaðavelli
í vikunni. Úlfarsfellið er í baksýn en
fyrir aftan Guðrúnu eru nokkrir af
afrekskylfingum Íslands í karlaflokki.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA