Fréttablaðið - 25.07.2013, Side 12

Fréttablaðið - 25.07.2013, Side 12
JARÐBÖÐIN Jarðböðin við Mývatn eru gjarnan kölluð Bláa lón norðursins. Kynngimögnuð fjallasýn í bland við basíska gufuna gera heimsóknina að endurnærandi stoppi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM hafa góð áhrif á vöðvabólgu. Böðin eru staðsett í gömlu enduruppgerðu verkstæði í náttúrulegu umhverfi Reykhóla. Verð 2.900 krónur. Frítt fyrir 12 ára og yngri. Af- sláttur fyrir ungmenni. 4. Jarðböðin við Mývatn Náttúrulega heitt lón en uppspretta þess er í 130 gráðu heitur borholuvökvi. Eigin- leikar vatnsins eru sérstakir. Það er ríkt af jarðefnum og í því þrífast ekki óæskileg- ar bakteríur og gróður. Lónin eru tilbúin mannvirki með malar- og sandbotni. Verð 3.200 krónur fyrir 16 ára og eldri. Frítt fyrir börn 15 ára og yngri í fylgd foreldra. Afsláttur fyrir námsmenn, eldri borgara og öryrkja. 5. Musterið á Borgarfirði eystri Í gamla frystihúsinu á Borgarfirði eystri er nú glæsileg aðstaða með útipotti og gufu á palli sem reistur var alveg við fjöruna. Gestir vellíðunaraðstöðunnar geta því auðveldlega bætt sjósundi í heimsókn sína, en sjósund er talið bæta ónæmiskerfið, auka brennslu hita- eininga og koma blóðinu á hreyfingu. Verð 2.500 krónur. Bræðslan á Borgarfirði eystra 26.-28. júlí Árleg tónlistarhátíð haldin síðan árið 2005 í gamalli síldarbræðslu. Meðal þeirra sem koma fram eru Ás- geir Trausti og John Grant. GÍSLI MARTEINN BALDURSSON Lifði á landsins gagni og gæðum í Indíánagili UPPÁHALDSSTAÐURINN MINN Á ÍSLANDI INDÍÁNAGIL HÁTÍÐIR HELGARINNAR VEÐUR Föstudagur 10-20°C HLÝJAST INN TIL LANDSINS Hæg breytileg átt eða hafgola. Bjart með köflum og síðdegisskúr- ir á stöku stað, en víða þokuloft við ströndina, einkum austantil. Gamla Gæsavatnaleiðin hefur verið opnuð fyrir breytta jeppa en Dyngjufjallaleið er enn lokuð. Verið er að vinna við að opna veginn í Fjörður og stendur til að það verði gert um helgina. Nánari upplýsingar Vegagerdin.is eða í síma 1777. Laugardagur 10-20°C HITI BREYTIST LÍTIÐ Lítil breyting á veðri frá föstudegi. Skýjað með köflum og víða skúrir síðdegis. Sunnudagur 11-15°C KÓLNAR OG RIGNIR VÍÐA Fremur hæg austlæg eða breytileg átt 3-8 m/s, skýjað með köflum og allvíða skúrir. Heldur kólnandi. Heimild: vedur.is HÁLENDIÐ | FRÉTTIR FERÐIR | 12 MUSTERIÐ Nú er komið spa á Borgarfirði eystri. Þar eru tvær gerðir af gufu auk inni- og útipotta. 1. Fontana við Laugarvatn Gufan á baðsvæði heilsulindarinnar Fontana er byggð yfir náttúrulegan hver og er hitastig hennar breyti- legt eftir náttúrulegum aðstæð- um. Einnig er á staðnum sauna að finnskri fyrirmynd sem er heitari en gufan en rakastig þar er lægra. Þrjár laugar eru á staðnum sem kall- aðar eru Lauga, Sæla og Viska. Þær eru misheitar og fjölbreytilegar. Ferða- langurinn ætti því að geta fundið slökun við sitt hæfi umvafinn náttúrunni. Verð 2.800 krónur. Frítt fyrir börn yngri en 12 ára. Afsláttur fyrir eldri borgara og ungmenni. Með- ferðir og nudd kosta aukalega. 2. Frost og funi í Hveragerði Heilsulindin á gistiheimilinu Frost og funi við Hveragerði samanstendur af útisund- laug, heitum pottum og gufubaði á ár- bökkum Varmár. Hún er staðsett við þrjá heita hveri sem nýttir eru til upp hitunar lauganna. Skammt frá heilsulindinni eru heitir lækir þar sem hægt er að baða sig. Á staðnum er einnig boðið upp á nudd og ýmsar meðferðir auk þess sem aðgangur er að slökunarherbergi. Aðgangur Fyrir gesti gistiheimilisins. 3. SjávarSmiðjan á Reykhólum Þaraböð SjávarSmiðjunnar sameina þara- hráefnið frá Þörungaverksmiðjunni og heita hveravatnið á Reykhólum. Þari er efnaríkur, virkar mýkjandi og styrkir húð- ina. Það að baða sig í þara er einnig talið ➜ Baðlækningar eru vel þekkt fyrirbæri og geta dregið úr sjúkdómseinkennum. 12 3 4 5 Lúxusheilsulindir í íslenskri náttúru Böð eru endurnærandi fyrir líkama og sál og það eru líka ferðalög í margbreytilegri náttúru. Nú hafa nokkrir staðir á landinu sameinað þessa tvo þætti og opnað lúxusheilsulindir eða spa. Munaðarins er hægt að njóta gegn vægu gjaldi. GUFUBAÐIÐ Á LAUGARVATNI Laugvetningar hafa farið í gufu síðan árið 1929 og er sagt að gufan þar hafi lækningarmátt. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR „Þarna fannst manni maður vera kominn í eitthvað ævintýraland, mönnum fannst eins og þeir væru indíánar þarna,“ segir Gísli Marteinn Baldursson borgarfulltrúi um Indíánagil. Þar er gróinn reitur í Elliðaárdalnum sem Gísli sótti sem barn. „Þegar ég var að alast upp var þarna nánast eini skógurinn sem ég komst í. Þarna voru trén þegar orðin stór. Þau tré hafa síðan vaxið upp þannig að íbúunum þykir nóg um.“ Gísli á æskuminningar úr Indíánagili. „Við fórum þarna og tjölduðum og vorum allan daginn og menn voru að veiða sér til matar, það er að segja hornsíli. Við ímynduðum okkur að við værum að lifa á landsins gagni og gæðum,“ segir hann og hlær við. „Allir sem að hafa alist upp í Breiðholtinu eða Árbænum þekkja Indíánagil. Fólk kemur þarna með teppi og er í lautarferð. Nokkurn veginn í miðju höfuðborgarsvæðisins er eins og þú sért gjörsamlega í einhverjum öðrum heimi, eða að minnsta kosti ekki inni í borg.“ Franskir dagar á Fáskrúðsfirði 25.-29. júlí Hátíðin hefur verið haldin árlega síðan árið 1996 og er ætlað að halda minningu um veru Frakka á staðnum. Þar verða dansleikir, fornbíla- sýning og ævintýrastund fyrir yngstu kynslóðina. Tálknafjör á Tálknafirði 26.-28. júlí Á bæjarhátíðinni Tálkna- fjör verður ratleikur, dorgveiðikeppni, Sirkus Íslands með sýnikennslu og grill á laugardags- kvöldinu. Eftir grillið verður hljómsveitin Festival með lifandi tónlist. Eldur í Húnaþingi 24.-27. júlí Bæjarhátíð á Hvamms- tanga. Fimmtudagskvöldið verður tónlistarveislan Melló Músíka. Á föstudeg- inum munu Ragnheiður Gröndal og Hjálmar stíga á stokk og á laugardeginum verður haldinn árlegur fjölskyldudagur. www.fronkex.is Súkkulaðibitakökur kemur við sögu á hverjum degi

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.