Fréttablaðið - 25.07.2013, Síða 16
25. júlí 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR NEYTENDUR | 16
Rigningarveður og sólarleysi
á höfuðborgarsvæðinu í sumar
hafa gert það að verkum að sala
á sólarlandaferðum hefur aukist
til muna. Fólk skipuleggur ýmist
ferðalagið sjálft eða kaupir svo-
kallaðar pakkaferðir.
„Ýmis hagræði felast í því að
kaupa pakkaferð frekar en að
skipuleggja ferð sjálfur á netinu,“
segir Steinunn Tryggvadóttir,
sölustjóri hjá Úrval Útsýn. „Þegar
þú bókar farseðil sjálfur á netinu
þá er lítið um tryggingar.“
Hún segir þessu öðruvísi
farið með pakkaferðir
því um þær gilda laga-
ákvæði sem veita
neytendum vernd.
„Alferðarlögin
eru skýr og ein-
föld. Skilmálarn-
ir okkar fara vel
saman við skil-
mála neytenda-
samtakanna.“
Mikilvægt er að
neytendur átti sig
á stöðu sinni við kaup á slíkum
ferðum. Lög um alferðir tryggja
rétt kaupanda pakkaferðar til
þess að afpanta ferðina vegna
stríðsaðgerða, borgarastyrjald-
ar, lífshættulegra smitsjúkdóma
eða annars sem hefur afgerandi
áhrif á framkvæmd pakkaferðar
á áfangastað eða nálægt honum.
Ef ferð er aflýst á kaupandi rétt
á fullri endurgreiðslu eða að fá í
staðinn sambærilega ferð.
„Það er ekki mikið um að ferðir
séu felldar niður,“ segir Stein-
unn. „Það getur þó allt-
af eitthvað komið
upp. Til dæmis ef
við setjum upp
ferð, tökum frá
sæti og pönt-
um gistingu
úti í heimi
en hún selst
ekki þá þurf-
um við að fella
hana niður. Þá
látum við vita
í tæka tíð svo að
það verði eng-
inn skaði fyrir
kaupandann.“
Fyrrnefnd
lög t r ygg ja
það að verði
kaupandi ferð-
ar fyrir tjóni
vegna veru-
legra breytinga
á ferðatilhögun
eða vegna þess
að ferð hefur verið aflýst á hann
rétt á skaðabótum.
Steinunn segir slík mál alltaf
koma upp endrum og eins. „Stund-
um er fólk ósátt og þá er sérstök
þjónustudeild hjá okkur sem fer
í það að kynna sér málið.“ Hún
segir að þjónustudeildin og sá
sem kvartar komist stundum ekki
að sameiginlegri niðurstöðu en að
þá sé hægt að fara með málið til
Neytendasamtakanna.
„Fólk er meðvitað um sinn neyt-
endarétt,“ segir Steinunn og segir
Úrval Útsýn hafa alferðarlögin í
hávegum.
„Ég gerði verstu kaup lífs míns þegar ég fór í gegnum Hópkaups-tímabilið mitt hér fyrir
nokkrum árum,“ segir Eurovision-drottningin og danskennarinn Unnur Eggertsdóttir,
sem lenti í öðru sæti í Söngvakeppni Sjónvarpsins í ár.
Hópkaup er vefverslun sem býður viðskiptavinum sínum upp á alls kyns tilboð
á vörum og þjónustu. „Ég fékk æði þegar Hópkaup-síðan var stofnuð. Ég eyddi
samanlagt svona 15 þúsund krónum í alls kyns þjónustu sem ég nýtti mér
aldrei,“ segir Unnur, sem festi meðal annars kaup á hvalaskoðun sem var á
tilboðsverði á síðunni. Unnur hefur enga hvali séð enn.
Bestu kaupin voru hins vegar þegar Unnur keypti sér ferð á tónlistar-
hátíðina Rock Werchter í Belgíu. „Þetta var í fyrsta skipti sem ég fór til
útlanda án foreldra minna. Ég og bekkjarsystur mínar í Versló flugum til
Amsterdam og tókum lest þaðan á hátíðina,“ segir Unnur og bætir við að
The Black Eyed Peas hafi spilað fyrir hana í Belgíu á afmælisdeginum hennar.
„Þetta var sumarið 2009. Það var æðislegt veður, frábær hátíð og mjög eftir-
minnileg ferð.“ - le
NEYTANDINN Unnur Eggertsdóttir
Bestu kaupin miði á tónlistarhátíð
ht.is
HAFNARGÖTU 90 REYKJANESBÆ S: 414 1740 • EYRARVEGI 21 SELFOSSI S: 480 3700
• GARÐARSBRAUT 18A HÚSAVÍK S: 464 1600 • GLERÁRGÖTU 30 AKUREYRI S: 460 3380
• KAUPVANGI 6 EGILSSTÖÐUM S: 414 1735 • SUÐURLANDSBRAUT 26 REYKJAVÍK S: 569 1500
GLÆSILEG SAMSTÆÐA
MEÐ iPhone5 VÖGGU
OG BLUETOOTH
VERÐ
FRÁBÆRT VERÐ
59.995
Philips DTM3155
NÝTT FRÁ
• Samstæða með 50W RMS magnara
• iPod / iPhone5 vagga (Lightning tengi)
• wOOx / Digital Sound Control hljóðtækni
• Bluetooth innbyggt
• Stafrænt FM útvarp með 20 stöðva minni
• Lightning tengi f iPhone5 / iPod Nano
• USB Direct / MP3 Link tengi fyrir tónlist
• Innbyggður geislaspilari
• Hleður iPod / iPhone5
Neytendaréttur skýr
við kaup á ferðum
Kaupi manneskja pakkaferð í gegnum ferðaskrifstofu gilda um ferðina lagaákvæði
sem tryggja neytendavernd. Skilmálar ferðaskrifstofa eru í samræmi við lögin að
sögn Steinunnar Tryggvadóttur, sölustjóra hjá Úrval Útsýn.
STEINUNN
TRYGGVADÓTTIR
Mikill munur er á kostnaði vegna
hundahalds eftir því í hvaða
sveitarfélagi hundurinn er skráður.
Þannig rukkar Skeiða- og Gnúp-
verjahreppur hundaeigendur ekki
um árlegt gjald vegna hundahalds
en Seyðisfjarðarkaupstaður inn-
heimtir 17.350 krónur árlega
vegna þessa.
Ekkert kostar að halda kött í
flestum sveitarfélögum. Það gildir
þó ekki alls staðar. Sveitarfélögin á
Suðurnesjum rukka 15.000 krónur
án þess að veita nokkra þjónustu,
eins og ormahreinsun, í staðinn.
Þetta kemur fram í Neytenda-
blaðinu. - js
ÓLÍKT VERÐ FYRIR BESTA VININN
Neytendasamtökin fara fram
á að reglugerð verði breytt svo
sjúklingar fái notið afsláttar af
lyfjum í lyfjaverslunum.
„Að óbreyttu munu nýjar reglur
verða til þess að þessir afslættir
hætti að mestu leyti þar sem
Sjúkratryggingar [Íslands] gera
kröfu um að sá afsláttur sem
veittur er renni að stærstum hluta
til þeirra í stað þess að hann renni
til kaupenda lyfjanna eins og verið
hefur,“ segir í nýrri ályktun sam-
takanna.
Á þetta geta Neytendasamtökin
ekki fallist, enda sé lyfjamarkaður-
inn fákeppnismarkaður og fyrir-
komulagið brjóti lög. - js
NEYTENDASAMTÖKIN: VILJA FÁ AFSLÁTTINN
LYFJAVERÐ Verðið er á könnu hins opinbera. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
LANZAROTE Á KANARÍ-
EYJUM Lög tryggja neytend-
um vernd við kaup á ferðum.