Fréttablaðið - 25.07.2013, Blaðsíða 60

Fréttablaðið - 25.07.2013, Blaðsíða 60
25. júlí 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 44 BAKÞANKAR Bergs Ebba Benediktssonar Nokkrum sinnum á ári kynna fatahönn-uðir tísku sína. Þeir hanna nýja línu og fólk fylgist með hvernig kragar hafa síkkað, litir dekkst eða skósólar hækkað. Við vitum að þetta hefur ekkert með vís- indi að gera. Tíska er bara tíska. Kannski ekki hreinn hégómi en ekki heldur prakt- ísk. Það góða við fatatísku er þó að enginn metur hana mikilvægari en hún er. Fata- tíska er smekkur en ekki hugsjón. EN tíska er ekki bundin við fatnað. Segja má að tíska hafi áhrif á allt sem við- kemur lífsstíl. Húsgögn, garðyrkja og reiðhjól eru allt fyrirbæri sem eru háð tísku svo örfá dæmi séu tekin. Núna er í tísku að eiga gömul, ömmuleg og kósí hús- gögn en fyrir tíu árum síðan þóttu þau flottari minimalísk og köld. Í dag er í tísku að hafa kryddjurt- ir í garðinum en fyrir tíu árum þótti flottara að þekja hann með byko-sólpalli og í dag er í tísku að renna um á racer-reiðhjóli en fyrir tíu árum þótti flottara að vera á fjallahjóli. EN hvað með huglægari atriði? Geta ákveðnir málaflokkar komist í tísku? FYRIR tíu árum var umhverfisvernd í tísku og fólk hlekkjaði sig við vinnuvélar til að mótmæla virkjunarframkvæmdum. Í dag er búið að leggja niður umhverfis- ráðuneytið og fólk kvartar í mesta lagi á Facebook. Samt er umhverfið í alveg jafn mikilli hættu nú og það var fyrir tíu árum. Fyrir tíu árum var mikið rætt um ástandið í Palestínu en í dag er kynbundið ofbeldi algengara umræðuefni. Samt er ástandið í Palestínu síst skárra nú en það var þá. Fyrir tíu árum var það umhverf- ið og alþjóðleg málefni en í dag eru það fremur málefni sem varða persónufrelsi og nærbýli. Ég verð að fullyrða þetta án þess að styðjast við rannsóknir enda er erfitt að rannsaka tísku í þaula, hún bygg- ist fremur á tilfinningu. ÉG held að það sé aldrei gott þegar ákveðnir málaflokkar komast í tísku. Það þýðir að fólk fær leið á þeim og þeir detta úr tísku, rétt eins og mun gerast fyrir gallaskyrtur og NBA-derhúfur áður en langt um líður. Skoðanir og tíska Frægur fylgifi skur frægðarinnar Cory Monteith, úr Glee-þáttunum, fannst látinn eft ir að hafa tekið of stóran skammt á hótelherbergi sínu í Vancouver þann 13. júlí síðastliðinn. Margar stjörnur hafa farið sömu leið, með ógnvænlegum afl eiðingum. Cory Monteith lést á hótelherbergi sínu í Van- couver í Kanada þann 13. júlí eftir að hafa tekið of stóran skammt af heróíni. Hann var 31 árs gamall. Monteith var best þekktur fyrir leik sinn í þáttaröðinni Glee þar sem hann lék Finn Hudson. Cory hafði lýst því yfir opinberlega að hann ætti við vandamál að stríða og fór síðast í áfengis- og vímuefnameð- ferð í mars á þessu ári. Amy Winehouse söngkonan fannst látin á heimili sínu þann 23. júlí árið 2011. Hún var 27 ára gömul. Winehouse hafði háð opinbera baráttu við fíkniefni og áfengi um tíma. Winehouse dó vegna ofneyslu áfengis. Lagið sem skaut henni á toppinn ber heitið Rehab og fjallar um að margir hefðu reynt að fá hana til að fara í meðferð. Brian Epstein er sennilega frægasti umboðs- maður allra tíma, en hans frægustu skjólstæðingar voru án efa Bítlarnir. Epstein tókst að gera stórstjörnur úr Bítlunum, en sjálfur háði hann harða baráttu við eiturlyfjafíkn. Hann lést á heimili sínu árið 1967 vegna ofneyslu svefnlyfja, aðeins 32 ára gamall. Hann hafði um árabil neytt róandi lyfja, örvandi efna og áfengis í óhófi. Whitney Houston fannst látin í baðkari á hótelher- bergi í Los Angeles í fyrra. Hún drukknaði í baði eftir að hafa neytt kókaíns og áfengis, 48 ára gömul. Houston var ein dáðasta söngkona heims og hlaut fjölda verðlauna fyrir söng sinn. Hún átti lengi við vímuefnavanda að stríða og fór síðast í vímuefna- meðferð ári fyrir dauða sinn. Janis Joplin var þekkt sem drottning rokksins, þrátt fyrir ungan aldur og stuttan feril. Hún spilaði meðal annars á tónlistarhátíðunum Monterey Pop Festival og Woodstock. Umboðs- maður hennar kom að henni látinni á hótelherbergi sínu eftir að hún mætti ekki í upptökustúdíó á réttum tíma. Krufning leiddi í ljós að hún hafði tekið of stóran skammt af heróíni, aðeins 27 ára. Elvis Presley var kallaður konungur rokksins og naut gífurlegra vinsælda um lönd og álfur. Hann hlaut fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir tónlist sína, þar á meðal þrenn Grammy-verðlaun. Presley háði lengi baráttu við fíkniefni, en þegar hann lést var talið að um fjórtán tegundir efna og lyfja væru í líkama hans. Hann var 42 ára þegar hann lést. M YN D /G ET TY IM AG ES M YN D /G ET TY IM AG ES M YN D /G ET TY IM AG ES M YN D /G ET TY IM AG ES M YN D /G ET TY IM AG ES M YN D /G ET TY IM AG ES EGILSHÖLLÁLFABAKKA KRINGLUNNI MERKTAR MEÐ GRÆNU OG APPELSÍNUGULU Í BÍÓAUGLÝSINGUM SAMBÍÓA KR. 1000 Á GRÆNT OG KR. 750 Á APPELSÍNUGULT SPARBÍÓ AKUREYRI KEFLAVÍK DAGSKRÁIN ER Á WWW.BIOPARADIS.IS OG MIDI.IS WOLVERINE 8, 10.10(P) 3D GROWN UPS 2 6, 8, 10.30 R.I.P.D. 8, 10 3D SKRÍMSLA HÁSKÓLINN 3.50, 6 2D SKRÍMSLA HÁSKÓLINN 3.50 3D THE HEAT 5.30 -Empire -Entertainment Weekly Í STÆRSTU ORUSTU ÆVINNAR BERST HANN FYRIR SÍNU EIGIN LÍFI 5% ÞRIÐJUDAGSTILBOÐIN GILDA EKKI Í BORGARBÍÓ SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%5% BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS WOLVERINE 3D KL. 5.20 - 8 - 10.40 WOLVERINE 3D LÚXUS KL. 5.20 - 8 - 10.40 GROWN UPS 2 KL. 5.40 - 8 - 10.10 SKRÍMSLA HÁSKÓLINN 3D KL. 3.20 SKRÍMSLA HÁSKÓLINN 2D KL. 3.20 - 5.40 RIPD KL. 3.20 -5.50 - 8 THE HEAT KL. 8 - 10.10 THIS IS THE END KL. 10.30 WOLVERINE 3D KL. 5.20 - 8 - 10.40 GROWN UPS 2 KL. 5.40 - 8 – 10.10 RIPD 3D KL. 5.50 - 8 PACIFIC RIM KL. 9 THE HEAT KL. 5.30 THIS IS THE END KL. 10.10 WOLVERINE 3D KL. 8 - 10.20 RIPD 3D KL. 5.50 GROWN UPS 2 KL. 8 - 10 THE HEAT KL. 5.50 NEW YORK POST Miðasala á: og G.D.Ó., MBL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.