Fréttablaðið - 25.07.2013, Side 64
25. júlí 2013 FIMMTUDAGUR| SPORT | 48
FÓTBOLTI „Ég vissi af því að Stjarn-
an hefði aldrei unnið KR. Það var
gott að vinna þá og líka á þessu
augnabliki. Það væri gaman að
endurtaka leikinn gegn þeim í bik-
arnum í næstu viku,“ segir Kennie
Chopart. Kennie fór á kostum í
3-1 sigri Stjörnunnar í 12. umferð,
sem kom Garðabæjarliðinu upp að
hlið FH á toppi deildarinnar.
„Varnarleikur okkar hefur verið
frábær. Við vorum aðeins brot-
hættir í fyrstu leikjunum enda
með þrjá til fjóra nýja leikmenn.
Nú þekkjumst við betur og erum
þéttir varnarlega,“ segir Kennie,
sem er á sínu öðru tímabili á
Íslandi. Hann elskar lífið á Íslandi
þrátt fyrir sólarleysið í borginni
það sem af er sumri.
„Ég held að þetta sé fyrsti
sumardagurinn síðan ég kom til
Íslands í fyrra,“ sagði Kennie í
léttum tón þegar undirritaður
heyrði í honum hljóðið á þriðjudag-
inn. Hann kann vel við félaga sína
í Garðabæjarliðinu.
„Mér líður eins og heima hjá
mér. Ég þekki strákana í lið-
inu betur, hangi mikið með þeim
og hef svo fjóra Dani í kring-
um mig.“ Auk Kennie leika land-
ar hans Michael Præst og Mart-
in Rauschenb erg með liðinum
auk þess sem Henrik Boedker er
markmannsþjálfari liðsins.
Erfitt að sitja á bekknum
Sumarið byrjaði ekki gæfulega
fyrir danska kantmanninn. Hann
Önnur hver gæti verið fyrirsæta
Daninn Kennie Chopart hefur stimplað sig inn í lið Stjörnunnar í Pepsi-deild karla eft ir töluverða bekkjarsetu framan af sumri.
Hann segir sjálfstraustið í botni, stemmninguna hjá Garðabæjarliðinu frábæra og ræðir um íslenskar stúlkur og skemmtanalíf.
FIMM FRÆKIN Kennie (lengst til vinstri) ásamt Michael Præst, Robert Sandnes og Martin Rauschenberg. Með þeim á myndinni
er Ragna Björg Kristjánsdóttir, stórvinkona strákanna og samstarfsmaður hjá Ormsson. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Atli Viðar
Björnsson
Antonio
Mossi
Samuel
Hernandez
Atli
Jóhannsson
Guðmann
Þórisson
Jóhannes Karl
Guðjónsson
Ásgeir Börkur
Ásgeirsson
Gunnleifur
Gunnleifsson
Viðar Örn
Kjartansson
Kennie
Chopart
Daníel LaxdalLI
Ð
U
M
FE
R
Ð
A
R
IN
N
A
R
MERK
JAVAR
A Á G
ÓÐU V
ERÐI
SPORTÍS
LAGE
RHRE
INSUN
!
ÓTRÚLEG VERÐ - NÝJAR VÖRUR DAGLEGA!
SPOR
TÍS
30 - 70% AFSLÁTTUR!
MÖRKIN 6 108 REYKJAVÍK S:520-1000 SPORTIS.IS
þurfti nokkuð óvænt að sætta sig
við töluverða bekkjarsetu framan
af sumri og fékk svo vænt höfuð-
högg í útileik gegn Skaganum.
„Það var erfitt. Í einum leiknum
fékk ég bara tíu mínútur,“ segir
Kennie um fyrri hluta mótsins.
Eftir það hafi hann horft á hlut-
ina frá nýju sjónarhorni; aukið
heimsóknir sínar í líkamsræktar-
stöðvarnar, stundað heilbrigðara
líferni og í kjölfarið hafi sjálfs-
traustið komið.
„Það er í botni þessa dagana,“
segir Kennie um sjálfs traustið.
Kennie starfar hjá raftækja-
versluninni Ormsson hér á landi
líkt og hinir Norðurlanda búarnir
hjá Stjörnunni. Hann lætur vel
af starfinu en þess utan séu þeir
mestmegnis í líkamsrækt eða að
spila tölvuleiki. Þá hefur spurst
út að hann sæki skemmtistaðinn
B5 um helgar og sé með síðustu
mönnum út.
„Ég get ekki neitað því. En
aðeins þær helgar sem við fáum
leyfi frá þjálfurunum til að
skemmta okkur,“ segir Kennie og
hlær.
Aðspurður hvernig hann kunni
við íslenska kvenfólkið stendur
ekki á svörum.
„Ísland er með fallegustu konur
í heimi. Þegar þú gengur um niðri
í miðbæ gæti önnur hver stelpa
verið fyrirsæta,“ segir Kennie.
Þær séu þó vissulega líka fallegar
í hinum Norðurlöndunum.
„En hérna er þetta hrein klikk-
un,“ segir Daninn eldhressi.
kolbeinntumi@365.is