Fréttablaðið - 25.07.2013, Qupperneq 70
25. júlí 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 54
„Ég teikna eiginlega allt sem mér
þykir fallegt en dýr eru algengustu
viðfangsefnin,“ segir Ásta Katrín
Viggósdóttir, nítján ára listakona.
Hún tekur að sér að teikna myndir
af gæludýrum fólks og eru teikning-
ar hennar vinsælar tækifærisgjafir.
Ásta Katrín hefur teiknað frá því
hún man eftir sér og stundar nú list-
nám við Fjölbrautaskólann í Breið-
holti. „Listnámið í FB heillaði mig
og ég er núna búin með þrjú ár þar
og hefur fundist það mjög gaman,“
segir hún.
Ásta Katrín tekur að sér að
gera blýantsteikningar eftir pönt-
unum og eru verk hennar vinsæl-
ar tækifæris gjafir. „Þetta byrjaði
þannig að vinir og fjölskylda báðu
mig stundum um að teikna fyrir sig
myndir af fólki eða dýrum. Þetta
breiddist svo út og brátt urðu fyrir-
spurnirnar fleiri og fleiri. Mér
fannst sniðugt að reyna að þéna
pening með því að gera það sem
mér þykir skemmtilegast og próf-
aði að auglýsa mig á nokkrum vef-
síðum. Ekki löngu eftir það urðu
fyrirspurnirnar nánast yfirþyrm-
andi,“ útskýrir Ásta Katrín og bætir
við að hún geri aðeins blýantsteikn-
ingar því hún sé ekki jafn fær með
pensilinn. „Ég er alveg hræðilegur
málari, þess vegna held ég mig við
blýantinn,“ segir hún hlæjandi.
Ásta Kristín fær helst fyrir-
spurnir um að teikna hunda og ketti
og segir aðspurð að erfiðast sé að
teikna síðhærða hunda og smádýr.
„Það er tímafrekara að teikna síð-
hærða hunda en snögghærða. Svo
geta smádýrin líka verið flókin því
þar er svo mikið um smáatriði sem
ég þekki ekki nógu vel.“
Í sumar hefur Ásta Kristín starf-
að með skapandi sumarhópi í Garða-
bæ en hópurinn samanstendur af
listamönnum á aldrinum 17 til 25
ára. Uppskeruhátíð hópsins fer
fram í Ásgarði milli klukkan 16 til
19 í dag.
Hægt er að panta verk eftir Ástu
Kristínu með því að hafa sam-
band við hana í gegnum Facebook.
sara@frettabladid.is
Teiknar myndir af
gæludýrum fólks
Ásta Katrín Viggósdóttir, nítján ára Garðbæingur, tekur að sér að teikna myndir
af gæludýrum fólks. Myndirnar eru vinsælar tækifærisgjafi r að hennar sögn.
HÆFILEIKARÍK Ásta Katrín Viggósdóttir tekur að sér að gera blýantsteikningar eftir pöntunum. Hún teiknar oftast dýr en
einnig fólk. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
BOLABÍTUR Mynd eftir Ástu Katrínu.
DY
NA
M
O
RE
YK
JA
VÍ
K
1. SÆTI
BÓKSÖLULISTIN
N - ALLAR BÆKU
R
VIKUM SAMAN
Í FYRSTA SÆTI!
SJARMA
SPRENGJA
SUMARSINS!
„Á SKILIÐ AÐ
VERÐA SUMAR-
SMELLUR!“
★★★★★
„Stórkostleg saga.
Hún grætir og kætir.“
– Kristjana Guðbrandsdóttir,
DV
„Ekki láta sumarið líða
án þess að lesa Maður
sem heitir Ove ... í senn
hrífandi og fyndin.“
– Kolbrún Bergþórsdóttir,
Morgunblaðinu
„Einfaldlega
hrein
dásemd“
– Kolbrún Bergþórsdóttir,
Morgunblaðinu
– Kolbrún Bergþórsdóttir, Mbl.
„Feykiskemmtile
g“
– FRIÐR
IKA BEN
ÓNÝS,
FRÉTTAB
LAÐINU
„Svona netkosningar eru náttúru-
lega aðallega til að ýta undir
möguleika keppenda í aðalkeppn-
inni,“ segir Ólafur Geir Jónsson,
betur þekktur sem DJ Óli Geir, um
kærustu sína, Ásdísi Lísu Karls-
dóttur, sem tekur nú þátt í undan-
keppni Ungfrú Heims í Filipps-
eyjum.
„Hún er alveg í skýjunum. Þessi
sigur ætti að skila henni einhverju
inn í lokakeppnina á föstudag-
inn,“ segir hann. „Ásdís var búin
að vera í þriðja eða fjórða sæti
allan tímann, alveg fimm þúsund
atkvæðum undir þeirri sem
var í fyrsta sæti. En svo
gáfum við bara í þarna
undir lokin. Íslendingar
stóðu saman, sem skilaði
henni tæplega 20 þúsund
atkvæðum. Það er eitthvað
um þrjú þúsund atkvæð-
um yfir þeirri sem endaði í
næsta sæti,“ bætir Óli Geir
við. „Þetta var eiginlega
bara rúst,“ útskýrir Óli
Geir léttur í bragði. - ós
„Þetta var eiginlega bara rúst“
Ásdís Lísa vann netkosningar í undankeppni Ungfrú Heims í Filippseyjum.
STÍF DAGSKRÁ Ásdís Lilja
tekur þátt í undankeppni
Ungfrú Heims á föstu-
daginn. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
SUMARFRÍIÐ
„Þetta er sérstaklega skemmtilegt í ljósi þess
að hátíðin hefur ekki einu sinni verið haldin,“
segir rithöfundurinn Ragnar Jónasson, sem
skipuleggur íslensku glæpasagnahátíðina Ice-
land Noir ásamt þeim Yrsu Sigurðardóttur og
Quentin Bates.
Hátíðin fer fram 21. til 23. nóvember en
þrátt fyrir að eiga enn eftir að fara fram
komst hún á lista yfir bestu glæpasagna-
hátíðir heims hjá vefsíðu The Guardian nú
fyrir helgi. Þar segir að gestir hátíðarinnar
ættu að skella sér í Bláa lónið og leita uppi
norðurljósin á milli þess sem þeir sækja
spennandi fyrirlestra. Ragnar segir undir-
búninginn vel á veg kominn. „Það hefur
gengið ótrúlega vel að fá erlenda höfunda til
að taka þátt. Við renndum blint í sjóinn með
þetta allt saman en við ákváðum að láta á
þetta reyna.“ Meðal þeirra sem boðað hafa
komu sína eru rithöfundurinn Ann Cleeves,
höfundur sagnanna um Veru Stanhope sem
kvikmyndaðar hafa verið af BBC, og Jorn
Lier Horst, handhafi norræna Glerlykil-
sins 2013. Ragnar segir að ókeypis verði inn
á hátíðina og að áhugasamir geti skráð sig á
vefsíðunni Icelandnoir.com. Spurður að því
hvort til standi að halda hátíðina ár hvert
segir Ragnar það enn óljóst. „Það er aldrei að
vita. Ef þetta gengur vel er alveg ástæða til
þess að prófa þetta aftur.“ - ka
Íslensk glæpasagnahátíð á lista hjá Guardian
Iceland Noir komst á lista yfi r bestu glæpasagnahátíðir heims. Hátíðin hefur ekki enn farið fram.
Í UNDIRBÚNINGI Rithöfundurinn Ragnar Jónasson
skipuleggur glæpasagnahátíðina Iceland Noir sem
fram fer í nóvember. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 9-17.
óðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...
Blaðberinn
bíður þín
„Ég fór í brúðkaupsferð til Halifax
og dvaldi þar í 12 daga hjá fjöl-
skyldu eiginmanns míns. Það var
yndislegt frí og rökrétt framhald af
yndislegu brúðkaupi.“
Fríða Dís Guðmundsdóttir, söngkona hljóm-
sveitarinnar Klassart