Fréttablaðið - 18.01.2014, Page 4

Fréttablaðið - 18.01.2014, Page 4
18. janúar 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 4 GETRAUN Íris Hulda Jónsdóttir úr Reykjavík hlaut verðlaunin fyrir lausn á myndagátu Fréttablaðsins sem birtist á gamlársdag. Bréf Írisar Huldu með lausninni var dregið úr miklum fjölda bréfa sem lesendur Fréttablaðsins höfðu sent og eru þeim færðar þakkir fyrir þátttökuna. Íris Hulda hlaut að launum gjafakort í Borgarleikhúsið. Í samtali við Fréttablaðið sagðist hún hafa verið í töluverðan tíma að glíma við getraunina, sem hafi verið ansi snúin í þetta sinn. Með hjálp unglings á heimilinu tókst henni þó að ljúka ætlunarverkinu. Lausnin á mynda- gátunni er á síðu 42 í blaðinu í dag. - fb Margir sendu lausnir á myndagátunni: Íris Hulda hlaut verðlaunin SKÓLAMÁL „Þessar hugmyndir verða ekki teknar upp á minni vakt. Þær eru gjörsamlega ónothæfar,“ segir Illugi Gunnarsson mennta- málaráðherra. Þar vísar ráðherra til hugmynda sem mennta- og menningarráðu- neytið sendi frá sér í tíð fyrr- verandi ríkisstjórnar og lúta að því að stjórnendur framhaldsskóla eigi að fara að rita sérstakt umsagn- arbréf með nemendum sem ljúka framhaldsskólaprófi. Hugmyndir- nar eiga rætur að rekja til náms- skrár framhaldsskólanna frá 2011. Fréttablaðið greindi frá málinu í gær. Atli Harðarson skólameistari hefur gagnrýnt tillögurnar harð- lega og telur það siðferðilega hæpið að stofnanir ríkisins felli dóma um þankagang, sjálfsþekkingu, sjálfs- mynd og siðferði fólks. Illugi kveðst taka undir gagnrýni Atla og vera sammála honum. Hann segir að ekki standi til að fara að meta nemendur með þessum hætti. „Það verður aldrei tekið upp þannig kerfi að skólastjórnendum verði lagt það á herðar að leggja siðferðilegt mat á nemendur á meðan ég er menntamálaráðherra,“ segir Illugi. Hann segir þó að það geti verið af hinu góða að kennarar gefi skrif- legar umsagnir um nemendur. „Það er ekkert að því að gefa skriflegt mat og getur í raun verið æskilegt. Það skiptir hins vegar miklu máli að vandað sé til verka, það sé skýrt á hverju slíkt mat er byggt og hvernig eigi að fram- kvæma það.“ Hafnar siðferðismati í framhaldsskólunum Menntamálaráðherra segir ekkert að því að gefa skriflegar umsagnir um nemend- ur en eigi að taka upp slíkt kerfi verði að vanda til verka. Ráðherra hafnar öllum hugmyndum um að skólastjórnendum verði falið að leggja siðferðismat á fólk. Þeir sem lokið hafa grunnskólanámi hafa hlotið jafngilda undirstöðu- menntun eða hafa náð 16 ára aldri eiga rétt á að hefja nám í framhalds- skóla. Þeir sem rétt eiga á að hefja nám í framhaldsskóla samkvæmt máls- grein þessari eiga jafnframt rétt á því að stunda nám í framhaldsskóla til 18 ára aldurs. Til að útskrifast með framhaldsskólapróf skal nemandi hafa lagt stund á nám sem svarar til 90–120 eininga samkvæmt námsskrá. Eiga rétt á námi í framhaldsskóla 8% samdráttur varð í sölu á nýjum fólksbílum í fyrra miðað við árið 2012. Á sama tíma keypti Bílaleiga Akureyrar 14 prósent allra nýrra fólksbíla sem seldust. 33% af þeirri raforku sem Danir notuðu í desember kom frá vindorku- verum. Þetta er heimsmet. 321 VÖRUNÚMER af bjór var til sölu í verslunum ÁTVR á síðasta ári. Sama tegund getur verið á fl eiri en einu númeri ef umbúðirnar eru mismunandi. 50.421 tonn veiddust af fi ski í desember samkvæmt upplýsingum Hagstofu Íslands. Þetta er 7.607 tonnum meira af fi ski en veiddist í desember 2012. 258% aukning varð á sölu rafb íla í fyrra miðað við árið 2011. Á sama tíma drógust nýskráningar á metanbílum saman um 64% PÁFAGARÐUR, AP Á árunum 2011 til 2012 svipti Benedikt 16. páfi nærri 400 kaþólska presta hemp- unni, eftir að þeir höfðu orðið upp- vísir að því að níðast kynferðis- lega á börnum. Þetta er töluverð fjölgun frá árunum 2008 og 2009, þegar sam- tals 171 kaþólskur prestur var sviptur hempunni af sömu sökum. Eldri tölur eru ekki sambærilegar. Þetta kemur fram í skjölum sem AP-fréttastofan hefur komist yfir. - gb Páfi brást við barnaníði: Svipti hundruð presta hempu VANDA TIL VERKA Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra segir hugmyndir um að skólastjórnendum verði falið að leggja siðferðilegt mat á þá sem ljúka framhaldsskóla- prófi ónothæfar. Hann segir að eigi að breyta námsmati verði að vanda til verka. ÁNÆGÐ Íris Hulda Jónsdóttir var að vonum ánægð með verð- launin fyrir myndagátuna. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Illugi segir að þetta sé hluti af stærra máli sem er hvernig ein- kunnir séu gefnar. „Það er búið að gera töluverðar breytingar á námsskránni sem kalla á endurmat á því hvernig við mælum árangur skólastarfsins,“ segir ráðherra. Það sé verið að horfa á fram- haldsskólaprófið og hvernig það geti gefið mynd af stöðu nemand- ans á þeim tímapunkti. „Þær breytingar sem við gerum á námsmati þurfa að vera skynsam- legar og vel hugsaðar,“ segir Illugi og ítrekar að þær hugmyndir sem búið er að senda út séu algerlega ónothæfar. johanna@frettabladid.is 11.1.2014 ➜ 17.1.2014 AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigrún Kristinsdóttir sigrunp@365.is, Sigurjón Viðar Friðriksson sigurjon@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Steinunn Sandra Guðmundsdóttir ssg@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Veðurspá Mánudagur Hæg breytileg átt. MILT Í VEÐRI NÆSTU DAGA Fremur hægur vindur í dag en allhvasst við SA-ströndina. Það verður rigning víða um austan- og suðaustanvert landið en þurrt að mestu annars staðar. Svipað næstu daga en kólnar fram til mánudags, hlýjast syðst. 3° 6 m/s 3° 7 m/s 5° 6 m/s 6° 13 m/s Á morgun Víðast hvar 3-10m/s, hvassast við Vestfi rðina. Gildistími korta er um hádegi 2° -1° 3° 2° 0° Alicante Basel Berlín 16° 6° 7° Billund Frankfurt Friedrichshafen 5 8° 8° Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas 4° 4° 20° London Mallorca New York 10° 9° 5° Orlando Osló París 12° -4° 10° San Francisco Stokkhólmur 18° -3° 4° 8 m/s 4° 11 m/s 4° 6 m/s 3° 9 m/s 4° 5 m/s 2° 4 m/s 2° 1° 3° 2° 1° Vordís Eiríksdóttir veðurfréttamaður FERÐALÖG Á morgun heldur ellefu manna hópur Íslendinga til Suður- skautslandsins undir fararstjórn Ara Trausta Guðmundssonar, jarð- vísindamanns og rithöfundar. Þetta er fyrsti almenni ferðahóp- urinn héðan til Suðurskautslands- ins, en flogið verður til suðurodda Suður-Ameríku og þaðan haldið á skipi yfir til Suðurskautslandsins og siglt þar milli eyja og um firði. Farið er í land á gúmmíbátum þar sem áhugi og færð leyfa. Komið verður til baka í byrjun febrúar. - gb Nýjung í ferðamennsku: Í hópferð til suðurskautsins
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.