Fréttablaðið - 18.01.2014, Page 10
18. janúar 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 10
STJÓRNSÝSLA Bæjarstjórn Ísafjarð-
arbæjar segir að þó oft hafi tekist
að koma fótunum undir opinberar
starfsstöðvar sem eigi fullt erindi
á Vestfirði þá fjari einhverra hluta
vegna undan þeim þegar frá líði.
„Átakanlegt dæmi um þetta er
lokun útibús Fiskistofu á Ísafirði.
Þrátt fyrir mikilvægi Vestfjarða
sem löndunarstöðvar á Íslandi er
nú enginn starfsmaður Fiskistofu
staðsettur þar. Nú eru einnig horfn-
ir héðan starfsmenn í fiskeldiseftir-
liti, þrátt fyrir að sjókvíaeldi fisks
sé bannað víðast hvar annars stað-
ar en á Vestfjörðum, þar sem jafn-
framt er þriðjungur strandlengju
Íslands,“ segir bæjarstjórnin sem
vill að ríkið standi vörð um slíkar
starfsstöðvar og óskar eftir við-
ræðum við fulltrúa ríkisstjórnar-
innar um nauðsynlegar úrbætur.
Bæjarstjórnin segir mikilvægt
að ríkið „komi af heilum hug að
uppbyggingu fjölbreyttrar atvinnu-
starfsemi á Vestfjörðum“ og kveðst
ítreka „mikilvægi þess að uppbygg-
ing í tengslum við fiskeldi hvort
sem það eru rannsóknir, eftirlit eða
menntun verði byggt upp á Vest-
fjörðum, enda ljóst að umfangsmik-
il starfsemi er nú þegar í fiskeldi á
svæðinu og er fyrirsjáanleg mikil
aukning í náinni framtíð.“
Þá skorar bæjarstjórnin á
Alþingi og ríkisstjórnina „að standa
með Vestfirðingum og byggja upp
öfluga miðstöð fiskeldis á Vest-
fjörðum á sviði eftirlits, rannsókna
og menntunar í gegnum Háskóla-
setur Vestfjarða og Rannsóknaset-
ur Háskóla Íslands.“ - gar
Bæjarstjórn Ísafjarðar segir iðulega fjara undan opinberum starfsstöðvum úti á landi og skorar á ríkisstjórn og Alþingi:
Ríkisvaldið verndi starfsstöðvar sínar á Vestfjörðum
Smáralind | Sími 512 1330
Laugavegi 182 | Sími 512 1300
Komdu í verslanir okkar og fáðu
mældan blóðþrýstinginn og/eða
púlsinn, niðurstöður birtast
samstundis í iPhone eða iPad.
15%
AFSLÁTTUR18-19. JANÚAR
18.-19. JANÚAR
Þráðlaus púls og súrefnismælir
Þráðlausir blóðþrýstingsmælar
Þráðlausir hreyf ingaskynjarar Þráðlaus vigt
Þráðlaus blóðsykurmælir
LÖNDUN
Ísfirðingar
segja lokun
útibús
Fiskistofu í
bænum átak-
anlegt dæmi
um örlög
opinberra
starfsstöðva
á landsbyggð-
inni.
FRÉTTABLAÐIÐ/
STEFÁN
STJÓRNSÝSLA „Það eru margar
spurningar sem vakna og þess
vegna þarf að fá fram skýring-
ar, sérstaklega út af þessum ríku
tengslum, sem komu nokkuð á
óvart,“ segir Árni Páll Árnason, for-
maður Samfylkingarinnar, um boð-
aðan fund í efnahags- og viðskipta-
nefnd á mánudag þar sem fjallað
verður um ákvörðun 50 milljarða
frískuldamarks vegna bankaskatts.
Umræða hefur verið á lofti um
tengsl milli stjórnarflokkanna og
MP banka í því ljósi að ávörðunin
um 50 milljarða frímarkið kom MP
banka betur en flestum fjármála-
fyrirtækjum. Fram hefur komið
að einn af framkvæmdastjórum
MP banka er Sigurður Hannesson,
sem er náinn ráðgjafi Sigmundar
Davíðs Gunnlaugssonar forsætis-
ráðherra, og Sigurður Atli Jónsson,
forstjóri MP, banka er giftur syst-
ur Sigmundar Davíðs. Þá er Bene-
dikt Gíslason, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri hjá MP banka, nú
ráðgjafi Bjarna Benediktssonar
fjármálaráðherra.
Innan bankageirans þykir þessi
ákvörðun orka tvímælis, bæði
hvernig þessi upphæð hafi komið
til, sem og tengingarnar milli MP
banka og stjórnarinnar. Hvernig
sem þetta hafi komið til, líti það
altjent illa út, sagði einn viðmælandi
Fréttablaðsins sem ekki vildi koma
fram undir nafni.
Forsvarsmenn Landsbanka og
Arion banka vildu ekki tjá sig um
málið og í svari frá Íslandsbanka
var ekki vikið sérstaklega að 50
milljarða frískuldamarkinu, heldur
deilt á bankaskattinn og íþyngjandi
áhrif hans á banka hérlendis.
Forsætisráðherra vildi ekki tjá
sig um málið þegar eftir því var
leitað, en Jóhannes Þór Skúlason,
aðstoðarmaður hans, sagði að ekk-
ert væri hæft í vangaveltum um
tengsl inn í MP-banka og setningu
frímarksins. Það væri alls ekki inni
á borði forsætisráðuneytisins.
Ekki náðist í fjármálaráðherra
við vinnslu fréttarinnar og upplýs-
ingar sem Fréttablaðið óskaði eftir
frá fjármálaráðuneytinu um tilurð
50 milljarða marksins bárust ekki
í gær.
Frosti Sigurjónsson, þingmað-
ur Framsóknarflokks og formað-
ur efnahags- og viðskiptanefndar,
hafnar því í samtali við Fréttablaðið
að þessi tengsl hafi nokkuð að gera
með ákvörðunina og nefndin hafi
ekki lagt mat á áhrif frímarksins
á einstaka banka. Fjármálaráðu-
neytið hafi ákvarðað upphæðina og
vafasamt sé hvort það sé hlutverk
alþingismanna í nefndinni að „velja
banka inn eða út“ úr markinu.
„Þarna eru einhver tengsl og
vensl, en það er ekki þar með sagt
að þar sé einhver sekt á ferðinni,“
segir Frosti.
Hann segir að nefndarfólk hafi
verið meðvitað, í ljósi athugasemda
frá slitastjórnum, að allt sem þau
Margar spurningar
enn á lofti um MP
Beðið er útskýringa á tilurð frískuldamarks vegna bankaskatts, sem spyrt hefur
verið við tengsl við forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar. Frosti Sigurjónsson þvertekur
fyrir að nokkuð vafasamt hafi átt sér stað, en gott sé að fá allt upp á borðið.
Frosti Sigurjónsson, þingmaður Framsóknarflokksins og formaður
efnahags- og viðskiptanefndar, játar að hafa farið rangt með í viðtali við
Stöð 2 um síðustu helgi. Þar sagði hann að rök mætti færa fyrir því að MP
banki ætti ekki að þurfa að greiða neinn bankaskatt, þar eð hann hafi ekki
valdið ríkissjóði tjóni í hruninu.
„Það er búið að benda mér á að þær upplýsingar sem ég hafði voru ekki
réttar,“ segir Frosti nú. „Það má færa rök fyrir að MP banki hafi bakað
ríkinu tjón án þess að ég viti hvað það er mikið. Maður fær svampinn
[hljóðnema fréttamanns] framan í sig og dettur eitthvað í hug. Ég hafði
lesið þetta einhvers staðar eða séð í fréttum, hvort sem það var hjá Þor-
steini Pálssyni eða hvað. Ég veit ekki einu sinni hvar ég hafði heimildir
fyrir því, en þessu skaut upp í hausinn á mér þarna og var ekki rétt, eftir á
að hyggja.“
„Ekki rétt, eftir á að hyggja“
Í ritinu 300 stærstu sem Frjáls verslun gaf út undir lok síðasta árs var
MP banki í níunda sæti yfir stærstu fjármálafyrirtæki landsins með 5,9
milljarða króna veltu. Til samanburðar er Landsbankinn í efsta sæti með
tæplega 109 milljarða veltu, Íslandsbanki með 86 milljarða og Arion
banki í þriðja sæti með 82 milljarða veltu. Frá fjórða til áttunda sæti eru
Íbúðalánasjóður, Seðlabankinn, LÍN og kortafyrirtækin Valitor og Borgun.
Stærsti sparisjóðurinn er Sparisjóður Siglufjarðar með 1,5 milljarða
veltu og Straumur fjárfestingabanki er með 1,3 milljarða.
Heildarskuldir MP banka eru þar sagðar um 64 milljarðar sem er innan
við tíu prósent af því sem stóru bankarnir þrír eru með.
MP banki 9. stærsta fjármálafyrirtækið
Það er
ekkert hér
sem þolir
ekki dagsins
ljós. Þess
vegna fagna
ég því að
fjölmiðlar skoði málið.
Frosti Sigurjónsson,
formaður efnahags- og viðskiptanefndar
MP BANKI Spurningar hafa vaknað um tengsl ýmissa stjórnenda bankans við for-
svarsmenn ríkisstjórnarinnar í samhengi við setningu frímarks vegna bankaskatts.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
að hækkun marksins, án þess að
velta fyrir sér áhrifum þess á ein-
stök fjármálafyrirtæki.
Frosti segir að langbest sé að allt
sé uppi á borðum í þessum málum.
„Það er ekkert hér sem þolir ekki
dagsins ljós. Þess vegna fagna ég
því að fjölmiðlar skoði málið.“
thorgils@frettabladid.is
gerðu í málinu gæti orkað tvímæl-
is fyrir dómstólum, ákvæðu þær að
fara þá leið fyrir þessi lög.
„Þess vegna vorum við mjög á
tánum að passa að allt væri eins
vandað og hægt væri, og það dettur
engum í hug að gera eitthvað sem
orkar tvímælis við slíkar aðstæður.
Það er enginn hvati til þess, heldur
þvert á móti stórhættulegt. Ég trúi
ekki að nokkrum detti slíkt í hug.“
Í umsögnum vegna bankaskatts-
ins lögðu Straumur og Samband
íslenskra sparisjóða til frímörk, ann-
ars vegar sjö milljarða og hins vegar
þriggja milljarða, en það var áður en
skattprósentan hækkaði margfalt
eftir að ákveðið var að nýta skatt-
inn til að fjármagna lánaleiðrétt-
ingaáætlun ríkisstjórnarinnar.
Frosti segir að eftir það hafi
nefndarmenn haft áhyggjur af
áhrifunum á minni banka og fagn-