Fréttablaðið - 18.01.2014, Síða 26

Fréttablaðið - 18.01.2014, Síða 26
18. janúar 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 26 í enskri þýðingu til Finnlands á leik- listarhátíð. Það var rosa gaman.“ Nú segir hún þær stöllur vera að hamast við að skrifa fyrir næsta uppistand sem verði um kyn- fræðslu fyrir tíunda bekk og frum- sýnt í Borgarleikhúsinu 10. febrúar. „Þetta eru svo miklir vitleysingar þessir Pörupiltar og við keyrum á húmornum en viljum opna umræðu um þetta mikilvæga mál,“ segir hún. Það er sem sagt ekkert verið að slá af. „Nei, maður finnur sér alltaf eitthvað að gera.“ En aftur að Gullna hliðinu. María segir að stefni í góða aðsókn. „Mér skilst að miðar rjúki út,“ segir hún. „Höfundurinn, Davíð Stefánsson, var náttúrlega Eyfirðingur og þetta er eitt mest leikna leikrit Íslands- sögunnar en nú eru nokkur ár sem það hefur legið í dvala, að minnsta kosti hjá stóru húsunum. Við megum ekki gleyma því sem við eigum og það var vel við hæfi að taka Gullna hliðið til sýningar á afmælisári bæði Davíðs og Leikfélags Akur- eyrar.“ Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is Þegar hringt er í Maríu svarar hún símanum í Reykhúsum í Eyjafirði. Ég hvái þegar ég heyri bæjarnafnið og dettur fyrst í hug hangikjöt og bjúgu en átta mig og spyr gáfulega: „Er jarðhiti þarna?“ „Já, já, þetta er samskonar nafngift og Reykja- vík,“ svarar María og kveðst vera á æskuslóðum. „Ég fæddist reyndar fyrir sunnan en flutti eins árs með foreldrum mínum hingað í Reyk- hús sem eru í gamla Hrafnagils- hreppnum, gekk í Hrafnagilsskóla fram til sextán ára aldurs og fór svo beint í MA.“ Gekk með veggjum Eftir stúdentspróf kveðst María fyrst hafa farið að þvælast um heiminn og síðan stefnt að því að verða kennari. En það var á þeim árum sem hún var uppgötvuð. „Ég datt inn í leiklistina hálfóvænt. Var svo sem búin að láta mig dreyma og fékk mér einhvern tíma eyðu- blað fyrir umsókn í leiklistarskól- ann, fyllti það út en sendi aldrei. Gekk með veggjum í menntaskól- anum og þorði ekki að taka þátt í leikstarfseminni. En í Kennó voru Guðný Helgadóttir og Guðlaug María Bjarnadóttir með skemmti- legt námskeið, þær kveiktu í mér og trúðu á mig svo það endaði með að ég sótti um í Leiklistarskólann og komst inn. Kláraði samt Kennó til vonar og vara síðar í fjarnámi þegar ég var í fæðingarorlofi.“ María er búsett í Mosfellsbæ, er hamingjusamlega gift Ólafi Ingi- marssyni bæklunarskurðlækni og þau eiga þrjú börn, ellefu og sjö ára stráka, Úlf og Bessa, og dótturina Sigríði Birnu, fimm ára. En fjöl- skyldan hefur verið tvístruð frá því um miðjan nóvember, að undan- skildum hátíðunum, því María hefur verið að æfa sig í að vera kerling fyrir norðan. Hún leikur hana nefni- lega í afmælissýningu Leikfélags Akureyrar, Gullna hliðinu, sem frumsýnd var í gær og framundan eru sýningarhelgar, væntan- lega fram yfir páska. Hún kveðst hafa tekið dótturina með norður, Rauðakrosshúsið Hamraborg 11 www.raudikrossinn.is/kopavogur Skráning er til 13. okt. Við leitum að sjálfboðaliðum til starfa í fatabúðum Rauða krossins á höfuðborgarsvæðinu. Búðirnar eru fjórar: Laugavegi 12 Laugavegi 116 Mjódd Strandgötu 24, Hafnarfirði Áhugasamir eru vinsamlega beðnir að hafa samband við Rauða krossinn í Kópavogi í síma 554 6626 eða með tölvupósti á sandra@redcross.is Ertu til? Þetta er mjög krefjandi ganga Þótt María Pálsdóttir ætti sér leyndan draum um að verða leikkona þorði hún ekki að leika í menntaskóla. En draumurinn rættist og nú leikur hún eitt aðalhlutverk íslenskra leikbókmennta, kerlinguna í Gullna hliðinu, með Leikfélagi Akureyrar. Kravattkontroll á leiklistarhátíð kvenna í Haparanda/Torneå Slavar! hjá LA This is not my body í Berlin og í Borgarleikhúsinu með Subfrau Svensexa för Dick með Subfrau Deildarstjóri fræðsludeildar Þjóðleikhússins 2004-2005 Ófríska konan í Eldhús eftir máli í Þjóðleikhúsinu … (ófrísk að Bessa) Dragnámskeið fyrir íslenskar leikkonur – Pörupiltar stofnaðir Verkefnastjóri hjá Borgar- bókasafni Reykjavíkur 2007- 2008 Halla í Halla og Kári hjá Hafnar- fjarðarleikhúsinu Bláa gullið, trúðaleiksýning um vatn, sem sjálfstæður leikhópur skrifaði og lék í samstarfi við Borgarleikhúsið Fíasól í Þjóðleikhúsinu Homo Erectus, uppistand Pöru- pilta í Þjóðleikhúskjallaranum Hermann hleypur – einleikur frumfluttur á Act alone á Suður- eyri sumarið 2013 NOKKUR AF VERKEFNUM MARÍU konum, nema þegar Hilmir Snær setti þetta verk upp um aldamótin síðustu. Þá lék Edda Heiðrún kerl- inguna og var ábyggilega ekki eldri en ég er núna. Kerlingin má nú heldur ekki vera komin að fótum fram því hún þarf að klöngrast með sálina hans Jóns síns upp í mót um urð og grjót til að komast að gullna hliðinu. Egill Ingibergs- son galdramaður sér um leikmynd og lýsingu og hann er búinn að gera alveg stórkostlega flotta klifurleið handa mér, baðstofugólfið fer bara upp í eitthvert þverhnípi og þetta er mjög krefjandi ganga. Ég er búin að vera bara í ókeypis líkamsrækt allt æfingatímabilið sem hefur staðið frá því um miðjan nóvember, nema hvað við fengum gott jólafrí.“ Er þetta klassísk uppfærsla á Gullna hliðinu? „Það held ég geti seint talist. Samt er fallegt hvað Egill Heiðar leikstjóri er trúr hinum horfna heimi. Það er baðstofuloft og þar er verið að segja okkur sögu. Stúlkur úr hljómsveitinni Evu, þær Jóhanna Vala Höskuldsdóttir og Sigríður Eir Zophoníasdóttir, sjá um músíkina og nota bæði tónlist úr verkinu og taka líka fleiri ljóð Davíðs Stefánssonar og semja ný lög við þau. Þær mynda frábæra umgjörð um verkið og segja okkur söguna um kerlinguna sem tekst á hendur mikið ferðalag, þegar mað- urinn hennar hefur kvatt þetta líf. Egill hefur stytt verkið og snúið aðeins uppá það og það gæti komið einhverjum á óvart hvernig leikar skipast við hlið Lykla-Péturs.“ Stelpurnar á varamannabekk Eins og fram hefur komið er María hagvön fyrir norðan og hlutverk kerlingarinnar er ekki það eina sem sést hefur til hennar á sviði þar. Fyrsta veturinn eftir útskrift úr Leiklistarskólanum lék hún með Leikfélagi Akureyrar, debúteraði í Klukkustrengjum eftir Jökul Jakobsson haustið 1999. Svo komu Blessuð jólin eftir Arnmund Ernst Backman og eftir áramót leikstýrði Viðar Eggertsson Tobacco Road þar sem María fékk að leika fátæka, hol- góma stelpu sem átti dálítið bágt. „Þetta var skemmtilega fjölbreytt- ur vetur. Ég var samt ekki tilbúin að festa mig, þó ég hefði fengið fast- ráðningu hér, þannig að ég fór eftir þennan vetur til Finnlands í fram- haldsnám í leiklist í sænskumæl- andi deild til að ná mér í masters- próf.“ Í kjölfar námsins í Finnlandi var María með í að stofna leikhópinn Subfrau ásamt öllum norrænu bekkjarsystrunum. Hann kom þrisvar til Íslands. „Þetta var kynja- miðaður hópur. Það var dálítið eld- fimt ástand þarna í skólanum þegar ég kom. Stelpurnar búnar að fá upp í kok af karlaslagsíðunni í leikritum. Það var Hamlet og Pétur Gautur og það var þessi karlinn og hinn karl- inn og þær fengu aldrei að láta ljós sitt skína. Svo tók steininn úr þegar leikstjóri mætti frá Litháen sem sagðist bara ekki geta unnið með konum, þær hefðu svo kynferðis- lega örvandi áhrif á hann. Við vorum því látnar sitja á varamanna- bekknum og hann lék sér úti á gólfi með strákunum. Um jól leist mér svo illa á þetta að ég var að hugsa um að hætta en eftir áramótin kom til okkar kona með dragnámskeið. Hún fann stemninguna í hópnum og hvatti okkur stelpurnar áfram, lét okkur leika hitt kynið, stúdera það og pæla í því og gaf okkur mikinn kraft. Það var gaman að leika stráka en jafnframt vorum við mjög fegnar að vera konur. Í kjölfarið stofnuðum við þennan leikhóp og hann starfaði í tíu ár en ég var ekki með í öllum sýningunum vegna anna og barn- eigna.“ Pörupiltar með kynfræðslu Nú þarf María aðeins að fá frí frá símtólinu til að greiða úr flækju. Hár einnar barbídúkku á heimilinu er fast í hálsmeni dótturinnar, trú, von og kærleik. En mamma kann ráð við öllu. Sagan af leikhópnum Subfrau og afrekum hans minnir á að María er einmitt í leikhópnum Pörupiltum, ásamt þeim Alexíu Björgu Jóhann- esdóttur og Sólveigu Guðmunds- dóttur. Pörupiltar hafa skemmt landsmönnum síðustu vetur með uppistandi í Þjóðleikhúskjallaranum við góðan orðstír. Þar kafa þeir ofan í samskipti kynjanna og skyggnast inn í karlmannssálina eins og ein- hvers staðar stendur á netinu. Þar kemur líka fram að sýningin endi í tómri vitleysu og slagsmálum. María gengst við þessu öllu. „Við vorum með sýningu sem hét HOMO ERECTUS og gekk mun lengur en við bjuggumst við í upphafi. Það endaði með að við fórum með hana LEIKKONAN „Maður finnur sér alltaf eitthvað að gera,“ segir María, sem fyrir utan að leika stórt hlutverk í Gullna hliðinu undirbýr nýtt uppistand með Pörupiltum. MYND/AUÐUNN plantað henni í leikskóla á svæð- inu og hún uni hag sínum hið besta. „Það gengur ótrúlega vel hjá þeim feðgum líka,“ segir hún. „Ég er svo heppin að eiga svona skilningsríka og frábæra fjölskyldu, allir hafa hjálpað til,“ bætir hún við. Hugsandi yfir kerlingunni En hvernig finnst Maríu að leika kerlingu, kornungri konunni? „Ég var nú aðeins hugsandi yfir því fyrst,“ viðurkennir hún. „Fannst ég heldur ung. En svo ef maður spáir í það þá var meðalaldur fólks áður fyrr ekkert ýkja hár. Konur voru útslitnar um fimmtugt og fólk almennt aðframkomið af vinnu og vosbúð þannig að ég hugsa að ég væri orðin kerling nú ef ég hefði verið uppi þá. Auðvitað hefur þetta oftast verið leikið af mun eldri leik- Svo tók steininn úr þegar leikstjóri mætti frá Litháen sem sagðist bara ekki geta unnið með konum, þær hefðu svo kynferðislega örvandi áhrif á hann.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.