Fréttablaðið - 18.01.2014, Blaðsíða 26
18. janúar 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 26
í enskri þýðingu til Finnlands á leik-
listarhátíð. Það var rosa gaman.“
Nú segir hún þær stöllur vera að
hamast við að skrifa fyrir næsta
uppistand sem verði um kyn-
fræðslu fyrir tíunda bekk og frum-
sýnt í Borgarleikhúsinu 10. febrúar.
„Þetta eru svo miklir vitleysingar
þessir Pörupiltar og við keyrum á
húmornum en viljum opna umræðu
um þetta mikilvæga mál,“ segir
hún. Það er sem sagt ekkert verið að
slá af. „Nei, maður finnur sér alltaf
eitthvað að gera.“
En aftur að Gullna hliðinu. María
segir að stefni í góða aðsókn. „Mér
skilst að miðar rjúki út,“ segir hún.
„Höfundurinn, Davíð Stefánsson,
var náttúrlega Eyfirðingur og þetta
er eitt mest leikna leikrit Íslands-
sögunnar en nú eru nokkur ár sem
það hefur legið í dvala, að minnsta
kosti hjá stóru húsunum. Við megum
ekki gleyma því sem við eigum og
það var vel við hæfi að taka Gullna
hliðið til sýningar á afmælisári
bæði Davíðs og Leikfélags Akur-
eyrar.“
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
Þegar hringt er í Maríu svarar hún símanum í Reykhúsum í Eyjafirði. Ég hvái þegar ég heyri bæjarnafnið og dettur fyrst í hug hangikjöt og
bjúgu en átta mig og spyr gáfulega:
„Er jarðhiti þarna?“ „Já, já, þetta
er samskonar nafngift og Reykja-
vík,“ svarar María og kveðst vera á
æskuslóðum. „Ég fæddist reyndar
fyrir sunnan en flutti eins árs með
foreldrum mínum hingað í Reyk-
hús sem eru í gamla Hrafnagils-
hreppnum, gekk í Hrafnagilsskóla
fram til sextán ára aldurs og fór svo
beint í MA.“
Gekk með veggjum
Eftir stúdentspróf kveðst María
fyrst hafa farið að þvælast um
heiminn og síðan stefnt að því að
verða kennari. En það var á þeim
árum sem hún var uppgötvuð. „Ég
datt inn í leiklistina hálfóvænt. Var
svo sem búin að láta mig dreyma
og fékk mér einhvern tíma eyðu-
blað fyrir umsókn í leiklistarskól-
ann, fyllti það út en sendi aldrei.
Gekk með veggjum í menntaskól-
anum og þorði ekki að taka þátt í
leikstarfseminni. En í Kennó voru
Guðný Helgadóttir og Guðlaug
María Bjarnadóttir með skemmti-
legt námskeið, þær kveiktu í mér og
trúðu á mig svo það endaði með að
ég sótti um í Leiklistarskólann og
komst inn. Kláraði samt Kennó til
vonar og vara síðar í fjarnámi þegar
ég var í fæðingarorlofi.“
María er búsett í Mosfellsbæ, er
hamingjusamlega gift Ólafi Ingi-
marssyni bæklunarskurðlækni og
þau eiga þrjú börn, ellefu og sjö ára
stráka, Úlf og Bessa, og dótturina
Sigríði Birnu, fimm ára. En fjöl-
skyldan hefur verið tvístruð frá
því um miðjan nóvember, að undan-
skildum hátíðunum, því María hefur
verið að æfa sig í að vera kerling
fyrir norðan. Hún leikur hana nefni-
lega í afmælissýningu Leikfélags
Akureyrar, Gullna hliðinu, sem
frumsýnd var í gær og framundan
eru sýningarhelgar, væntan-
lega fram yfir páska. Hún kveðst
hafa tekið dótturina með norður,
Rauðakrosshúsið Hamraborg 11 www.raudikrossinn.is/kopavogur
Skráning er til 13. okt.
Við leitum að sjálfboðaliðum til starfa í fatabúðum
Rauða krossins á höfuðborgarsvæðinu.
Búðirnar eru fjórar:
Laugavegi 12
Laugavegi 116
Mjódd
Strandgötu 24, Hafnarfirði
Áhugasamir eru vinsamlega beðnir að hafa samband við
Rauða krossinn í Kópavogi í síma 554 6626 eða með
tölvupósti á sandra@redcross.is
Ertu til?
Þetta er mjög krefjandi ganga
Þótt María Pálsdóttir ætti sér leyndan draum um að verða leikkona þorði hún ekki að leika í menntaskóla. En draumurinn
rættist og nú leikur hún eitt aðalhlutverk íslenskra leikbókmennta, kerlinguna í Gullna hliðinu, með Leikfélagi Akureyrar.
Kravattkontroll á leiklistarhátíð
kvenna í Haparanda/Torneå
Slavar! hjá LA
This is not my body í Berlin og
í Borgarleikhúsinu með Subfrau
Svensexa för Dick með Subfrau
Deildarstjóri fræðsludeildar
Þjóðleikhússins 2004-2005
Ófríska konan í Eldhús eftir
máli í Þjóðleikhúsinu … (ófrísk
að Bessa)
Dragnámskeið fyrir íslenskar
leikkonur – Pörupiltar stofnaðir
Verkefnastjóri hjá Borgar-
bókasafni Reykjavíkur 2007-
2008
Halla í Halla og Kári hjá Hafnar-
fjarðarleikhúsinu
Bláa gullið, trúðaleiksýning um
vatn, sem sjálfstæður leikhópur
skrifaði og lék í samstarfi við
Borgarleikhúsið
Fíasól í Þjóðleikhúsinu
Homo Erectus, uppistand Pöru-
pilta í Þjóðleikhúskjallaranum
Hermann hleypur – einleikur
frumfluttur á Act alone á Suður-
eyri sumarið 2013
NOKKUR AF
VERKEFNUM MARÍU
konum, nema þegar Hilmir Snær
setti þetta verk upp um aldamótin
síðustu. Þá lék Edda Heiðrún kerl-
inguna og var ábyggilega ekki eldri
en ég er núna. Kerlingin má nú
heldur ekki vera komin að fótum
fram því hún þarf að klöngrast
með sálina hans Jóns síns upp í
mót um urð og grjót til að komast
að gullna hliðinu. Egill Ingibergs-
son galdramaður sér um leikmynd
og lýsingu og hann er búinn að gera
alveg stórkostlega flotta klifurleið
handa mér, baðstofugólfið fer bara
upp í eitthvert þverhnípi og þetta er
mjög krefjandi ganga. Ég er búin að
vera bara í ókeypis líkamsrækt allt
æfingatímabilið sem hefur staðið
frá því um miðjan nóvember, nema
hvað við fengum gott jólafrí.“
Er þetta klassísk uppfærsla á
Gullna hliðinu? „Það held ég geti
seint talist. Samt er fallegt hvað
Egill Heiðar leikstjóri er trúr hinum
horfna heimi. Það er baðstofuloft og
þar er verið að segja okkur sögu.
Stúlkur úr hljómsveitinni Evu, þær
Jóhanna Vala Höskuldsdóttir og
Sigríður Eir Zophoníasdóttir, sjá
um músíkina og nota bæði tónlist
úr verkinu og taka líka fleiri ljóð
Davíðs Stefánssonar og semja ný
lög við þau. Þær mynda frábæra
umgjörð um verkið og segja okkur
söguna um kerlinguna sem tekst á
hendur mikið ferðalag, þegar mað-
urinn hennar hefur kvatt þetta líf.
Egill hefur stytt verkið og snúið
aðeins uppá það og það gæti komið
einhverjum á óvart hvernig leikar
skipast við hlið Lykla-Péturs.“
Stelpurnar á varamannabekk
Eins og fram hefur komið er María
hagvön fyrir norðan og hlutverk
kerlingarinnar er ekki það eina
sem sést hefur til hennar á sviði
þar. Fyrsta veturinn eftir útskrift
úr Leiklistarskólanum lék hún með
Leikfélagi Akureyrar, debúteraði
í Klukkustrengjum eftir Jökul
Jakobsson haustið 1999. Svo komu
Blessuð jólin eftir Arnmund Ernst
Backman og eftir áramót leikstýrði
Viðar Eggertsson Tobacco Road þar
sem María fékk að leika fátæka, hol-
góma stelpu sem átti dálítið bágt.
„Þetta var skemmtilega fjölbreytt-
ur vetur. Ég var samt ekki tilbúin
að festa mig, þó ég hefði fengið fast-
ráðningu hér, þannig að ég fór eftir
þennan vetur til Finnlands í fram-
haldsnám í leiklist í sænskumæl-
andi deild til að ná mér í masters-
próf.“
Í kjölfar námsins í Finnlandi var
María með í að stofna leikhópinn
Subfrau ásamt öllum norrænu
bekkjarsystrunum. Hann kom
þrisvar til Íslands. „Þetta var kynja-
miðaður hópur. Það var dálítið eld-
fimt ástand þarna í skólanum þegar
ég kom. Stelpurnar búnar að fá upp í
kok af karlaslagsíðunni í leikritum.
Það var Hamlet og Pétur Gautur og
það var þessi karlinn og hinn karl-
inn og þær fengu aldrei að láta ljós
sitt skína. Svo tók steininn úr þegar
leikstjóri mætti frá Litháen sem
sagðist bara ekki geta unnið með
konum, þær hefðu svo kynferðis-
lega örvandi áhrif á hann. Við
vorum því látnar sitja á varamanna-
bekknum og hann lék sér úti á gólfi
með strákunum. Um jól leist mér
svo illa á þetta að ég var að hugsa
um að hætta en eftir áramótin kom
til okkar kona með dragnámskeið.
Hún fann stemninguna í hópnum og
hvatti okkur stelpurnar áfram, lét
okkur leika hitt kynið, stúdera það
og pæla í því og gaf okkur mikinn
kraft. Það var gaman að leika stráka
en jafnframt vorum við mjög fegnar
að vera konur. Í kjölfarið stofnuðum
við þennan leikhóp og hann starfaði
í tíu ár en ég var ekki með í öllum
sýningunum vegna anna og barn-
eigna.“
Pörupiltar með kynfræðslu
Nú þarf María aðeins að fá frí frá
símtólinu til að greiða úr flækju.
Hár einnar barbídúkku á heimilinu
er fast í hálsmeni dótturinnar, trú,
von og kærleik. En mamma kann
ráð við öllu.
Sagan af leikhópnum Subfrau og
afrekum hans minnir á að María er
einmitt í leikhópnum Pörupiltum,
ásamt þeim Alexíu Björgu Jóhann-
esdóttur og Sólveigu Guðmunds-
dóttur. Pörupiltar hafa skemmt
landsmönnum síðustu vetur með
uppistandi í Þjóðleikhúskjallaranum
við góðan orðstír. Þar kafa þeir ofan
í samskipti kynjanna og skyggnast
inn í karlmannssálina eins og ein-
hvers staðar stendur á netinu. Þar
kemur líka fram að sýningin endi
í tómri vitleysu og slagsmálum.
María gengst við þessu öllu. „Við
vorum með sýningu sem hét HOMO
ERECTUS og gekk mun lengur en
við bjuggumst við í upphafi. Það
endaði með að við fórum með hana
LEIKKONAN „Maður finnur sér alltaf eitthvað að gera,“ segir María, sem fyrir utan að leika stórt hlutverk í Gullna hliðinu undirbýr nýtt uppistand með Pörupiltum. MYND/AUÐUNN
plantað henni í leikskóla á svæð-
inu og hún uni hag sínum hið besta.
„Það gengur ótrúlega vel hjá þeim
feðgum líka,“ segir hún. „Ég er svo
heppin að eiga svona skilningsríka
og frábæra fjölskyldu, allir hafa
hjálpað til,“ bætir hún við.
Hugsandi yfir kerlingunni
En hvernig finnst Maríu að leika
kerlingu, kornungri konunni? „Ég
var nú aðeins hugsandi yfir því
fyrst,“ viðurkennir hún. „Fannst
ég heldur ung. En svo ef maður
spáir í það þá var meðalaldur fólks
áður fyrr ekkert ýkja hár. Konur
voru útslitnar um fimmtugt og fólk
almennt aðframkomið af vinnu og
vosbúð þannig að ég hugsa að ég
væri orðin kerling nú ef ég hefði
verið uppi þá. Auðvitað hefur þetta
oftast verið leikið af mun eldri leik-
Svo tók steininn úr þegar leikstjóri
mætti frá Litháen sem sagðist bara ekki
geta unnið með konum, þær hefðu svo
kynferðislega örvandi áhrif á hann.