Fréttablaðið - 18.01.2014, Qupperneq 30
18. janúar 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 30
Farmers Market tekur þátt í þriðja sinn.
Farmers Market tók þátt í fyrstu RFF-
sýningunni sem var haldin í Kaaber-
húsinu og í sýningunni í fyrra.
➜ Skemmtilegast við RFF:
RFF er gott tækifæri til
að kynna vörulínu
ársins og þar með
veröld Farmers
Market eins og við
sjáum hana.
➜ Tísku-
fyrirmyndin:
Móðir
náttúra sem
alltaf tekst að
tolla í tískunni.
Tískubólur ársins:
Hjá unglingunum sýnist
mér að Buffalo-skótískan
sé að skella á enn eina ferðina.
➜ Í hvaða flík myndir þú aldrei láta
sjá þig? Þegar maður er farinn að upplifa
spíralinn sem tískan þræðir ætti maður að fara
varlega í að segja aldrei. Með útsjónarsemi má
vinna með nánast hvað sem er.
Bergþóra
Guðna-
dóttir:
Farmer‘s
Market
FR
ÉT
TA
BL
AÐ
IÐ
/S
TE
FÁ
N
K
AR
LS
SO
N
Þessir hönnuðir sýna á RFF2014
Átta íslenskir hönnuðir koma til með að sýna á Reykjavík Fashion Festival í ár. Þeir eru Cintamani, Ella, Farmers
Market, JÖR by Guðmundur Jörundsson, magnea, REY, Sigga Maija og Ziska. Hátíðin fer fram
í fimmta sinn samhliða HönnunarMars, 27. til 30. mars. Fréttablaðið tók púlsinn á hönnuðunum
sem taka þátt, spurði hverju þeir myndu aldrei klæðast og hvað sé skemmtilegast við RFF.
Ólöf
Skaftadóttir
olof@frettabladid.is
Ella tekur þátt í RFF í þriðja sinn í ár.
➜ Skemmtilegast við RFF: Mér finnst það nauðsynlega lærdómsríkt fyrir
ungt tískuhús á borð við ELLU. Listrænn stjórnandi þarf að velja sögu sem
hann ætlar að segja og hún þarf að vera viðeigandi. Sagan
verður samt að vera ný og sjóvið að stela augnablikum frá
áhorfandanum.
Að búa til fatnaðinn er eitt, að setja upp sýninguna er
svo allt annar hlutur. Mér finnst skemmtilegast að vinna
með ólíku fólki sem allt er sérfræðingar á sínu sviði.
Við hjá ELLU höfum verið ákaflega ánægð með hópinn
okkar.
➜ Tískufyrirmyndin: Ég á mér margar tískufyrir-
myndir og leita þá aðallega í konur sem hafa breytt
heiminum. Konur sem voru á sínum forsendum,
var sama um hvað öðrum fannst um þær og lifðu
lífinu. Á meðal þeirra sem heilla mig eru Amelia
Earhart, fyrst kvenna til að fljúga einsömul yfir
Atlantshafið, Sophia Loren hefur lengi verið
í uppáhaldi og Lauren Hutton. Á meðal sam-
tímafólks verð ég að nefna fiðluleikarann Charlie
Siem– hann er músan mín þessa dagana.
➜ Tískubólur ársins: Í hinum fullkomna
heimi ætti fólk að klæða sig eftir eigin smekk,
lífsgildum og persónu. Að klæða sig eftir sann-
færingu er alltaf heillandi – ef það er gert af
einhverri hugsun þá leyfist ansi margt. Þess vegna elska ég klassískan
fatnað, sem undirstrikar persónuna og auðvelt er að breyta og gera
að sínu. Svo finnst mér falleg efni eftirsóknaverð. Helsta tískubólan á
þessu ári að mínu mati er klassíkin.
➜ Í hvaða flík myndir þú aldrei láta sjá þig? Ég held ég sé of
listræn fyrir þetta svar. Kannski glansandi Jane Fonda-leikfimibún-
ingi frá tíunda áratugnum. Nema ég verði súperfit næstu árin. Hver veit.
Rebekka
Jónsdóttir
tekur nú
þátt í RFF
í fjórða
sinn.
➜ Skemmtilegast við RFF:
Öll samvinnan, mér finnst
virkilega gaman að vinna
að því að allt smelli saman
með fagfólkinu, sviðið,
tónlistin, förðunin, hárið,
módelin og svo fram-
vegis.
➜ Tískufyrirmyndin:
Þar sem þessu er
svarað á afmælis-
degi Kate Moss
hlýtur hún að
standa upp úr í dag.
➜ Tískubólur ársins: Víðar
buxur. Og svo munum við sjá miklu
meira af bomber-jökkum.
➜ Í hvaða flík myndir þú aldrei láta
sjá þig? Crocs.
➜ Rebekka
Jónsdóttir:
REY
Sigga Maija tekur þátt í fyrsta
sinn í RFF undir eigin merki.
Áður hefur hún unnið að
sýningum fyrir aðra, eins og
JÖR og Hildi Yeoman.
➜ Skemmtilegast við
RFF: Allt ferlið, og
vitandi það að það
tekur í raun aldrei
enda.
➜ Tískufyrir-
myndin: Ég á
mér engar
sérstakar tísku-
fyrirmyndir. Ég
fæ innblástur
frá alls konar
fólki og úr alls
konar ástæðum.
Fyrir mér er áhugaverðara að tala um
innblástur.
Innblásturinn kemur oftast eftir nýjar
uppgötvanir og töluvert grúsk og stundum
fær maður hann úr óvæntustu áttum. Svo
sæki ég mér hann í listir, tækni, kvikmyndir,
tónlist og bækur, bækur, bækur.
➜ Tískubólur ársins: Ég er ekki mikið að
pæla í tískubólum. Mér finnst áhuga-
verðara að horfa á heildarmyndina og
hvað það er sem mun hafa áhrif á okkur
og hvernig það kemur út í því sem við
viljum klæðast.
Ég held að kjörorðin á næsta ári séu full-
orðinslegt og klassískt með góðri skvettu af
nútímanum.
➜ Í hvaða flík myndir þú aldrei láta sjá þig?
Hmmm, veit ekki hvað skal segja, en ég veit
það þegar ég sé hana.
➜ Sigríður
Margrét:
Sigga Maija
Cintamani tekur þátt í RFF í fyrsta sinn í ár.
➜ Skemmtilegast við RFF: Útivist og fatn-
aður er ástríða okkar og það er okkur sönn
gleði að sýna afrakstur vinnu okkar undanfarin
ár.
➜ Tískufyrirmyndin: Við horfum bæði til
tísku og þess sem er að gerast í útivist og sækjum innblástur til beggja
átta. Öll góð hönnun sem samþættir tæknieiginleika, hreyfigetu og stíl-
hreina fagurfræði höfðar til okkar. Cintamani hefur núna sterka ímynd
sem byggir á þessum þáttum.
➜ Tískubólur ársins: Það er í okkar augum samruni útivistar og tísku sem
er í raun engin bóla heldur það sem koma skal.
➜ Í hvaða flík mynduð þið aldrei láta sjá
ykkur? Aldrei að segja aldrei… en ætli við
getum ekki sagt með vissu að ekkert okkar
sjáist í magabol aftur.
➜ Þóra Ragnarsdóttir,
Rún Gunnarsdóttir,
Neil Smith, Guðbjörg
Jakobsdóttir:
Cintamani
➜ Elínrós
Líndal: Ella
MYND/ÚR EINKASAFNI
Rauðakrosshúsið Hamraborg 11 www.raudikrossinn.is/kopavogur
Skráning er til 13. okt.
Allar nánari upplýsingar
á skyndihjalp.is
og í síma 554 6626.
Skyndihjálparnámskeið hjá
Rauða krossinum i Kópavogi
Fjögurra tíma námskeið
21. jan., 18. feb., 4. mars, 9. apr. og 14. maí
Þátttakendur læra grundvallaratriði í skyndihjálp
og endurlífgun. Markmiðið er að þátttakendur
verði hæfir til að veita fyrstu hjálp á slysstað.
Slys og veikindi barna
10. febrúar, 5. mars, 14. apríl og 5. maí
Fjallað er um varnir gegn slysum á börnum og
orsakir slysa almennt, þroska barna og slys sem
tengjast aldri. Leiðbeint er í skyndihjálp við barnaslysum og áverkum
af ýmsu tagi, endurlífgun barna og andlegum undirbúningi við komu
barna á sjúkrahús.
M
YN
D
/S
AG
A
SI
G
FRÉTTABLAÐ
IÐ
/PJETU
R